Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1992, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.05.1992, Blaðsíða 44
200 LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 200-4 Btzéfl tiL Blaösins Athugasemdir viðgreinaflokkinn »Skoðanir lækna á starfssviðum sérgreina« í septemberhefti Læknablaðsins 1991 birtist finrmta og síðasta greinin um ofangreint efni eftir þá Jóhann Ág. Sigurðsson, Hjalta Kristjánsson, Guðjón Magnússon og Leif Berggren (1-5). Efni greinanna er byggt á skoðunum íslenskra lækna á 65 fullyrðingum. Leitað var til 185 sérmenntaðra lækna í sjö greinum, 150 svöruðu og var skiptingin eftirfarandi (innan sviga fjöldi þeirra sem svöruðu): Heimilislæknar 58 (58), bamalæknar 32 (20), öldrunarlæknar 4 (4), kvensjúkdómalæknar 26 (21), geðlæknar 30 (20), háls-, nef- og eymalæknar 18 (16) og lyflæknar 17 (11). Hér var um samnorræna könnun að ræða og voru fullyrðingamar sóttar í doktorsritgerð síðast talda höfundarins, Leif Berggren við Gautaborgarháskóla (6). Svörin voru dregin saman í megin niðurstöður og er einnig rætt vítt og breitt um störf íslenskra lækna og fyrirkomulag heilbrigðiskeríisins. Meðferð niðurstaðna, ályktanir, tölfræðilegir útreikningar og ýmsar staðhæfingar í greinum þessum eru með þeim hætti, að ekki verður konrist hjá að gera við þær athugasemdir. Segja má, að meginefni greinaflokksins sé sótt í áðurnefnda doktorsritgerð, sem fjallar um svokallaða vallhöslun bæði einstaklinga og hópa í sænska heilbrigðiskerfinu. Fyrri hluti ritgerðarinnar er framsetning á tilgátum um vallhöslun, að hún sé fyrir hendi, hvernig hennar verði vart og svo framvegis. í seinni hluta hennar era kenningamar prófaðar og það er í þeini hluta sem fullyrðingamar 65 koma fram. Undirritaður skildi doktorsritgerðina svo, að svörin við fullyrðingununr væru notuð til að sýna fram á, að vallhöslun væri fyrir hendi og þar er ekki með tölfræðiúrvinnslu lagt mat á skoðanamun eftir sérgreinum, nema að litlu leyti og þá með svokallaðri multivariate analysis. Fullyrðingarnar 65 eru fróðlegar útaf fyrir sig, en það er ámælisvert hvernig svörin eru túlkuð. Gefnir voru fimm valmöguleikar á svörum: (a) »Hiklaust sammála« (b) »Samþykki með nokkrum efasemdum« (c) »Hef ekki skoðun á málinu« (d) »Neita með nokkrum efasemdum« (e) »Neita hiklaust« Við mat og túlkun á niðurstöðum voru famar tvær ólíkar leiðir. Sú fyrri var að skipta svarendum í þrennt, þ.e. draga saman þá sem eru sammála (svara »a« eða »b«), þá sem tóku ekki afstöðu (svöruðu »c«) og þá sem voru ósammála (svöruðu »d« eða »e«). Þessi skipting er sýnd á skýran hátt í öllum myndum greinanna. Seinni leiðin var að gefa stig fyrir svörin, þannig: (a) »Hiklaust sammála«............ 100 stig (b) »Samþykki með nokkrum efasemdum«...................... 75 stig (c) »Hef ekki skoðun á málinu«.... 50 stig (d) »Neita með nokkrum efasemdum«...................... 25 stig (e) »Neita hiklaust« ............... 0 stig Svör einstakra sérfræðihópa eru svo metin þannig, að reiknaður er meðalstigafjöldi hvers hóps. Við samanburð eru bomar saman skoðanir heimilislækna annars vegar og skoðanir einstakra sérfræðihópa hins vegar og þá borinn saman meðalstigafjöldi hópanna. Hvort skoðanamunurinn er marktækur eða ekki er metið með svokölluðu kí-kvaðratprófi (1). Hinn mjói vegur tölfræðinnar er vandrataður og nrikilvægt að reglunr hennar sé fylgt. Ofangreind leið til að meta ntarktækni á skoðanamun er ekki rétt og skulu hér raktar nokkrar ástæður þess: 1. Óheimilt er að beita kí-kvaðratprófi á meðalstigafjölda! Einungis má nota
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.