Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1992, Page 15

Læknablaðið - 15.05.1992, Page 15
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 171 171 NABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafélag íslands og Læknafélag Reykjavikur 78. ARG. MAI 1992 Mataræði íslendinga Nýlega lauk mikilli könnun á mataræði Islendinga á vegum Heilbrigðisráðuneytis og Manneldisráðs. Niðurstöður könnunarinnar sýna matarvenjur nútíma Islendinga í allri sinni margbreytni, allt eftir aldri, kyni, búsetu og öðrum aðstæðum fólks, auk þess sem þær varpa ljósi á sérkenni íslensks mataræðis borið saman við aðrar þjóðir (1,2). Könnunin sýnir glöggt að íslenskt fæði er eindæma prótínríkt enda er fæða úr dýraríkinu óvenju fyrirferðamikil í neyslu Islendinga. Flestir fá nægilegt magn nauðsynlegra næringarefna en þó er jám af skomum skammti í fæði kvenna á bameignaaldri og eins skortir bæði vítamín og steinefni í fæði margra aldraðra. Helsti ókostur á fæðuvenjum flestra fullorðinna Islendinga er þó tvímælalaust of mikil fita en lítið af grænmeti og öðru jurtafæði. Að jafnaði veitir fita 41% af orku í fæði Islendinga en samkvæmt manneldismarkmiðum væri æskilegt að hlutur fitu væri innan við 35% (3). En neysluvenjur einstaklinga eru ólíkar og hollusta fæðunnar er að sama skapi misjöfn. Hverju sætir þessi munur og hvaða þættir hafa mest áhrif á neysluvenjur og hollustu? Niðurstöður könnunarinnar sýna meðal annars að ýmsar ytri aðstæður, til dæmis mötuneyti vinnustaða, geta haft veruleg áhrif á mataræði og hollustu. Fjöldi fólks borðar aðalmáltíð dagsins að staðaldri í mötuneyti. Karlar eru þar í meirihluta og samkvæmt könnuninni er fæði þeirra mun fituríkara að jafnaði en karla sem ekki borða heitan mat í mötuneyti, með 44% orku úr fitu borið saman við 41% (p<0,05, fervikagreining). Það er umhugsunarefni að þjónusta sem öðru fremur er ætlað að bæta hag starfsmanna, getur þannig haft gagnstæð áhrif með tilliti til hollustu á vinnustað. Mikilvægi mötuneytisfæðis kemur einnig skýrt í ljós í grein Reynis Þorsteinssonar og félaga í þessu hefti Læknablaðsins. Þar er greint frá athyglisverðri íhlutun sem gerð var á fjölmennum vinnustað með það fyrir augum að lækka kólesteról í blóði starfsfólks. Fæði í starfsmannamötuneyti var breytt, dregið var úr notkun fitu og aukið framboð á grænmeti auk þess sem fræðslufundir voru haldnir fyrir starfsmenn einu sinni til tvisvar á ári. Tveimur árum eftir að íhlutun hófst hafði heildarkólesteról í blóði starfsmanna lækkað um 7,6% að jafnaði miðað við upphaf rannsóknarinnar og um 13% nteðal þeirra sem mældust með hækkað kólesteról í byrjun. Hér er því á ferðinni óvenju áhrifarík en jafnframt tiltölulega einföld íhlutun í hollustuátt sem jafnframt ætti að vera framkvæmanleg á fjölda annarra vinnustaða. Arangur þessarar aðgerðar verður ef til vill ekki metinn af vísindalegri nákvæmni þar sem enginn samanburðarhópur var hafður til hliðsjónar við rannsóknina. Eins hefði verið fróðlegt að fá gleggri upplýsingar um samsetningu fæðisins fyrir og eftir íhlutun. Þær umbætur sem gerðar voru í mötuneyti starfsmanna á Grundartanga eru fyrst og fremst lofsvert framtak og nýlunda í heilbrigðismálum á Islandi. Vonandi verður þessi frábæri árangur öðrum hvatning til svipaðra aðgerða. Laufey Steingrímsdóttir HEIMILDIR 1. Laufey Steingrímsdóttir, Hólmfríður Þorgeirsdóttir, Stefanía Ægisdóttir. Könnun á mataræði fslendinga 1. Helstu niðurstöður. Rannsóknir Manneldisráðs fslands 1991. Reykjavík: Manneldisráð íslands, 1991. 2. Laufey Steingrímsdóttir, Hólmfríður Þorgeirsdóttir, Stefanía Ægisdóttir. Könnun á mataræði íslendinga 2. Mataræði og mannlíf. Rannsóknir Manneldisráðs íslands 1992. Reykjavík: Manneldisráð fslands, 1992. 3. Manneldismarkmið fyrir fslendinga. Reykjavík: Manneldisráð fslands, 1987.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.