Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1992, Page 32

Læknablaðið - 15.05.1992, Page 32
188 LÆKNABLAÐIÐ viðbótar hefðu verið metnir með jákvætt svar og mundi það auka tíðni jákvæðra svara úr 29,3% eins og fannst við fyrstu svörun, í 34,9%. Neikvætt svar við endurtekna prófun útilokar þó ekki fyrri sýkingu með mýkóbakteríum, jafnvel þótt prófið hafi verið endurtekið með 250 TU (15). Minna má á, að 7% þeirra, sem hafa virka berkla, reynast neikvæðir á berklaprófi (2). Athuganir á tíðni jákvæðra berklaprófa á Islandi á síðasta áratugi (I) sýndu vaxandi tíðni með hækkandi aldri, eða frá 20-29 ára 1,7%; 30-39 ára 5,3%; 40-49 ára 11,5%; og 60-69 ára 24%. I okkar rannsókn meðal aldraðs fólks á stofnunum var tíðnin 35,7% í yngsta aldurshópnum 67-79 ára, en fór síðan lækkandi í 28,9% í aldurshóp 80-89 ára og 21% í elsta hópnum 90-101 ára. Báðar þessar rannsóknir taka til valinna hópa. Þannig rís tíðni jákvæðra berklaprófa hæst á milli sextugs og sjötugs en lækkar síðan með hækkandi aldri. Ætla má að elstu aldurshóparnir hafi verið mest útsettir fyrir berklasmiti og hefðu jákvæð berklapróf átt að finnast mun oftar á meðal þeirra, ef ekki kæmu til aðrir áhrifavaldar. Svörun við túberkúlíni byggist á frumubundnu ónæmissvari, sem meðal annars byggist einnig á að ósértæk bólgusvörun líkamans sé í lagi (3). Þekkt er að hvort tveggja getur dvínað með aldri og einnig vegna vannæringar, lyfja og sjúkdóma eins og ristilkrabbameins (16) og alnæmis (17). Húðsvörunin byggist á T- eitilfrumna íferð, sem aftur er tengd HLA-DR vefjaflokkum (18,19). Mesta áhætta að sýkjast af berklum er meðal þeirra sem sýkjast með eyðniveiru og hafa berklasmit fyrir (20). Ahætta undir þeim kringumstæðum er um 30% en til samanburðar er áhætta á berklaveiki eftir nýsmitun 5-10% fyrstu árin. Ný berklatilfelli á Islandi eru í 85% tilvika sprottin upp úr forðalind gamalla berklahreiðra meðal einstaklinga sem tekið hafa berklabakteríuna löngu áður. Birtar hafa verið rannsóknir sem sýnt hafa samband á milli lifunar og vansvörunar á berkla- og öðrum húðprófum bæði meðal heilbrigðra aldraðra (7) og aldraðra á hjúkrunarheimilum (6,8). Þetta samband kom ekki fram í okkar rannsókn hvorki meðal þeirra þar sem berklaprófið hafði dvínað á löngum tíma, né heldur á milli svörunar á húðprófum og lifunar næstu þrjú árin á eftir. A þessum þremur árum Iést meir en helmingur fólksins. Rannsóknin hefur sýnt að um þriðjungur fólks á stofnunum fyrir aldraða í Reykjavík hefur jákvætt berklapróf. Svörun þessi fer minnkandi með aldri og virðist ekki háð langvinnum sjúkdómum, fötlun eða heilabilun. Bendir það til að dvínunin sé tengd þróun öldrunarinnar sjálfrar og kann að vera að hún sé skýrara »ellimark« en þeir sjúkdómar, sem fylgja háum aldri. SKIL Þriðjungur fólks á stofnunum fyrir aldraða hefur jákvætt berklapróf og annar hver maður, sem hefur sögu um jákvætt berklapróf hefur glatað því. Endurómun fékkst fram hjá 8%. Hvorki fannst fylgni á milli jákvæðs berklaprófs og hjúkrunarþyngdar né heilabilunar. Ekki fannst heldur munur á lifun þeirra, sem svöruðu berklaprófi jákvætt eða neikvætt. Það fannst ekki heldur munur á lifun þeirra, sem höfðu glatað fyrra jákvæðu svari og hinna, sem höfðu haldið því. Jákvætt berklapróf dvínaði marktækt með aldri. Engir virkir berklar fundust meðal rannsóknarhópsins. SUMMARY In 1987 a survey of tuberculin reactivity was carried out amongst residents in geriatric wards in Borgarspítalinn and associated nursing homes. Included were 215 individuals, 46 males (mean age 84.2 years) and 169 females (mean age 84.1 years). A standard 5-TU Mantoux test (PPD RT-23) was performed and the skin reaction considered positive if an area of induration equal or more than 8 mm developed within 48-72 hours of testing. The prevalence of tuberculin positivity was found to be 29.3% irrespective of nursing dependency or mental test score and 38% in 61 with history or findings suggestive of previous tuberculosis and 43% in 29 residents with documented positive Mantoux test up to 30 years earlier. By December 1990, 118 residents (55%) had died. Survival was compared with tuberculin reactivity

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.