Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1992, Page 37

Læknablaðið - 15.05.1992, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 193 ómun til hjálpar við mismunargreiningu. Sjást þá ómríkar sepalaga breytingar í slímhúð og ómsnauðar belglaga breytingar þar undir (24,27). í vefjasýnum sést þykknun á kirtlum magaslímhúðarinnar og belglaga breytingar djúpt í þeim. Einnig sést íferð eitilfrumna (lymphocyta), plasmafrumna og eosínfíkla í eiginþynnu magaslímhúðar. I langt gengnum tilfellum koma slímframleiðandi frumur í stað eðlilegra saltsýrufrumna (parietal cells) og höfuðfrumna (chief cells) (3,13,17,20-22). í svæsnum tilfellum er mælt með vefjasýni, sem nær í gegnum allan gamavegginn (full thickness biopsy), þar sem einkennandi breytingar geta legið djúpt í slímhúðinni (3,17,21). Orsakir sjúkdóms Menetrier eru óþekktar. Nefndir hafa verið margir orsakaþættir. Mest hefur verið ritað um þrjá; A) ofnæmissvörun, B) sýkingar og C) sjálfsofnæmissvörun. A) Það sem styður ofnæmissvörun er að flestir sjúklinganna hafa eosínfíklager í deilitalningu. Einnig er íferð eosínfíkla algeng í vefjasýninu. Hvort tveggja hverfur þegar sjúklingum batnar (17,20,21,23). Fyrri saga og fjölskyldusaga um ofnæmissjúkdóma, er þó sjaldnast jákvæð. Pensilínmeðferð hefur verið tengd upphafi einkenna í fjögurra ára dreng (13), sömuleiðis neysla krabbakjöts í fjömtfu og níu ára konu. Hún hafði einnig ofnæmissvörun gegn krómi. Einkenni hennar gengu yfir á þremur vikum, sjúkdómsgangur sem líkist fremur sjúkdómi Menetrier í bömum en fullorðnum (33). Lýst hefur verið þremur bömum með hækkun á IgE þrátt fyrir að aðrir mótefnaflokkar væru lækkaðir (19,25). Stillman gerði RAST-próf fyrir algengustu fæðuofnæmisvöldum, en það var neikyætt (19). B) CMV hefur verið nefndur, sem hugsanlegur orsakavaldur. Tengsl við CMV-sýkingu hafa fundist í 13 börnum með sjúkdóm Menetrier. I sjö skipti hefur CMV verið einangraður úr þvagi (14,16,19,20,23,28,29), en í níu tilvikum inældust hækkaðir hjástoðarbindingartítrar (complement fixations titer) (10,14,15,20,23,27,28-30). CMV innlyksa (inclusion body) hefur einu sinni fundist í magaslímhúð (8). CMV hefur aðeins einu sinni ræktast úr magaslímhúð (19). í einu tilfelli einangraðist Parainfluenza virus úr nefkoki (7). Hugsanlegt er að veimsýkingar valdi beinum frumuskemmdum í magaslímhúð. Þannig gætu ofnæmisvaldamir frekar komist í gegnum slímhúðina og valdið ofnæmissvari. Því hefur verið haldið fram að veirusýkingar hamli IgE T-bælifrumum, einnig að IgE T-hjálparfrumur geti örvað IgE myndun og stuðlað þannig að næmingu (sensitization) gegn ofnæmisvöldum (34). C) Að lokum hefur sjálfsofnæmi verið nefnt sem hugsanlegur orsakaþáttur. Mótefni gegn saltsýrufrumum magans hafa fundist í fullorðnum sjúklingi með sjúkdóm Menetrier (35). Þetta hefur ekki verið mælt í bömum. Mismunargreiningar eru margar. Einkenni, gangur, röntgenrannsókn og vefjagreining skilja helst á milli. Hjá bömum sem hafa blóðprótínlækkun og bjúg þarf að útiloka vannæringu, auk lifrar- og nýrnasjúkdóma. Ef slíkt er ekki fyrir hendi ber að gruna prótíntap um göm (protein-losing enteropathy). Allir sjúkdómar, sem hafa þykknun á slímhúðarfellingum í maga og/eða prótíntap um görn, koma til greina. Helstu mismunargreiningar eru; diffuse eosinophilic gastroenteritis (36-38), helicobacter pylori sýking í magaslímhúð (39-43), hypertrophic hypersecretory gastritis (44,45), Zollinger- Ellison syndrom (19,20,44), eitlaæxli (primer lymphom) og eitlabundin meinvörp í maga (46-48) og að lokum sjúkdómur Crohn í maga (49). Horfur og meðferð: Sjúkdómur Menetrier í bömum byrjar oftast skyndilega, er skammvinnur og yfirleitt hættulaus. Langflest verða einkennalaus innan tveggja mánaða. Oftast er engrar meðferðar þörf (17,20). Ef bjúgur er mikill er gefið albúmin í æð, prótínríkt fæði og stundum er gripið til þvagræsilyfja. Af alls um 50 tilfellum í bömum, þurftu tvö að gangast undir magabrottnám vegna blæðinga (6,17). Tvö böm hafa látist. Annað fór í aðgerð og var maginn fjarlægður vegna gmns um eitlaæxli. Lést bamið úr nýrnabilun skömmu síðar (8). Hitt fékk graftarsótt (sepsis) og dó vegna hjarta- og öndunarbilunar (25). Sjúkdómur Menetrier í fullorðnum er hins vegar langvinnur með viðvarandi einkennum og slímhúðarbreytingum í maga. Tveir þriðju hafa þarfnast magabrottnáms. Jafnframt er aukin hætta á magakrabbameini (3). Lyfjameðferð hefur ekki reynst árangursrík.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.