Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1992, Blaðsíða 6

Læknablaðið - 15.09.1992, Blaðsíða 6
268 LÆKNABLAÐIÐ sem fylgt hefur verið eftir í tvö til 17 ár. Gefst þannig tækifæri til að bera saman vægi hinna helstu áhættuþátta meðal kynjanna. Aðferðir og þýði: Rannsókn Hjartavemdar er ferilrannsókn, sem hófst haustið 1967 og er enn í gangi. Nákvæm greinargerð um skipulag rannsóknarinnar, val úrtaks, þátttöku og framkvæmd hefur þegar verið birt í skýrslum Hjartavemdar (7,8). 1 stuttu máli var boðið til rannsóknarinnar öllum körlum sem samkvæmt þjóðskrá 1. desember 1966 áttu lögheimili á höfuðborgarsvæðinu og fæddir voru árin 1907, ’10, ’ 12, ’ 14, ’16, ’17, ’18, ’19, ’20, ’21, ’22, ’24, ’26, ’28, ’31 og ’34. Konumar sem boðin var þátttaka voru fæddar ári síðar, þ.e. 1908, 1911 o.s.frv. Rannsóknin hefur verið framkvæmd í nokkrum áföngum (mynd 1). Bæði karla- og kvennahópnum var skipt eftir fæðingardögum og í fyrsta áfanganum var boðið þeim sem fæddir voru 1., 4., 7., ...28. til 31. hvers mánaðar (B-hópur). Þegar fyrsta áfanga karlarannsóknarinnar var lokið í árslok 1968 tók við fyrsti áfangi kvennarannsóknarinnar og var þá boðið þeim konum sem áttu sömu fæðingardaga. í annan áfanga var sömu hópum boðið á ný en einnig þeim sem fæddir voru 2., 5., 8. dag hvers mánaðar o.s.frv. (C-hópur). Karlarnir voru rannsakaðir á árunum 1970-1971, en konumar í öðrum áfanga á árunum 1971-1972. í þriðja áfanganum 1974-1978 var þessum tveimur hópum (B og C) boðið enn á ný og nýjum rannsóknarhópi, hópi A, þeim sem fæddir voru 3., 6., 9. o.s.frv. bætt við. Loks í fjórða áfanga var fyrsta hópnum boðið í fjórða sinn og síðan fjórða hópnum, hópi D, sem aldrei hafði komið áður, en það voru þeir sem fæddir voru 1., 4., 7. dag hvers mánaðar o.s.frv. árin 1908, ’09, ’ 11, ’ 13, ’ 15, ’23, ’25, '21, ’29, ’30, ’32 og 1933, árin sem í upphafi vóru undanskilin. Fjórða áfanga karlarannsóknarinnar lauk 1981 en fjórða áfanga kvennarannsóknarinnar 1984. Alls var 10.263 karlmönnum boðin þátttaka í rannsókninni. Þar af hafa 8001 komið að minnsta kosti einu sinni. Mætingarhlutfall meðal karla er því um 78% (tafla I). Boðið var 11.069 konum og 8468 (76,5%) komu einu sinni eða oftar. Sérhverju boðsbréfi um þátttöku fylgdi staðlaður spumingalisti um félagslegar aðstæður, lifnaðarhætti og heilsufar. Study plan Participants Stage I 1967-'68 Stage II 1970-71 Stage III 1974-76 Stage IV 1979-'81 Figure 1. Study plan of the Reykjavík Study showing the number of participants in each cohort and the years when the different stages of the study were carried out. Table I. Participants in the Reykjavík Study who were invited and examined in stages I-IV. Males Invited Examined Response % Stage 1 1967-’68 2941 2203 (74.9) Stage II 1970-71 5589 4058 (72.7) Stage III 1974-76 7994 5564 (69.6) Staqe IV 1979-’81 4662 3244 (69.6) Females Invited Examined Response % Stage 1 1968-’69 3085 2371 (76.9) Stage II 1971-72 6011 4184 (69.6) Stage III 1976-78 5801 3902 (67.3) Stage IV 1981-’84 4992 3577 (71.7) Spurningalistinn hefur áður verið birtur í heild (7,8). Sérþjálfaður ritari fór síðan yfir spumingamar með hverjum þátttakanda til að tryggja sem áreiðanlegastar upplýsingar. Ýmsar þessara spuminga lúta beint að áhættuþáttum kransæðasjúkdóms. ítarlega var spurt út í reykingavenjur með spumingum sem flestar voru þýddar úr breskum spumingalista (9). Einnig var spurt um háan blóðþrýsting og meðferð við honum. Hins vegar var ekki spurt um mataræði né um áfengisneyslu. Niðurstöður spumingalistans lágu fyrir þegar sérhver þátttakandi gekkst undir ítarlega læknisrannsókn um 10 dögum síðar. Þá lágu einnig fyrir niðurstöður úr fastandi blóðrannsókn fyrri heimsóknar sem og hjartarafrit. Blóðþrýstingur var mældur í báðum heimsóknum, í fyrra skiptið af hjúkrunarfræðingi en í hið síðara af lækni. Meðaltal beggja var lagt til grundvallar í mati á vægi blóðþrýstings sem áhættuþáttar. Af blóðrannsóknum komu mælingar á blóðsykri, kólesteróli og þríglýseríðum í sermi til álita sem áhættuþættir. Mælingaaðferðum og gæðaeftirliti hefur áður verið lýst (10).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.