Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1992, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.09.1992, Blaðsíða 7
LÆKNABLAÐIÐ 269 Við mat á áhættuþáttum var byggt á gögnum sem aflað var við fyrstu heimsókn hvers þátttakanda. í árslok 1985 voru liðin fimm til 17 ár frá fyrstu heimsókn karla, en tvö til 16 ár frá fyrstu heimssókn kvenna. Þá höfðu 1140 (14,2%) karlar og 537 (6,3%) konur látist. Farið var yfir öll dánarvottorð, krufningaskýrslur kannaðar í þeim tilvikum, sem krufning hafði farið fram (61% karla og 53% kvenna) og í einstaka tilvikum var viðbótarupplýsinga aflað úr sjúkraskrám sjúkrahúsa (Mynd 2). Dánarorsök var skráð í samræmi við Alþjóðlegu sjúkdóms- og dánarmeinaskrána, níundu endurskoðun (ICD 9). I þessari grein er fjallað um dánarorsakimar 410-414 í dánarmeinaskránni, þ.e. bráða kransæðastíflu og aðra blóðþurrðarsjúkdóma í hjarta. Tölfrœðileg úrvinnsla: Sjálfstæð áhrif hinna ýrnsu heilsufars- og lifnaðarþátta á líkur þess að deyja úr kransæðasjúkdómi, bráðri kransæðastíflu eða öðrum tilbrigðum blóðþurrðar í hjarta voru metin með fjölþáttagreiningu Cox (11), sem tekur bæði tillit til þess að margir þættir hafa áhrif og einnig tímalengdar milli athugunar og dánardægurs. Eins og fyrr getur var aðeins ntiðað við upplýsingar úr fyrstu heimsókn þátttakenda. Marktekt var miðuð við 5% mark. í heildamiðurstöðum (töflum 11 og III) er gengið út frá margföldunarlíkani, þ.e. að áhætta einstaklings ákvarðist af margfeldi talna, sem hver um sig táknar hlutfallslega áhættu vegna ákveðins áhættuþáttar. Þetta líkan rniðar einnig við að áhættuhlutfall vegna samfelldra breytistærða sé veldisfall. Þar að auki var efniviði skipt í sex flokka eftir kólesterólmagni og niðurstöður fengnar fyrir hvem flokk fyrir sig (myndir 3 til 5). NIÐURSTÖÐUR Dánarorsakir: Helstu dánarorsakir beggja kynja eru sýndar á mynd 2. Þar kemur fram að meðal karla er kransæðasjúkdómur langalgengasta dánarorsökin (43%), en öll krabbamein tekin sem einn flokkur koma þar næst í röð (27%). Miklu færri eða 7% deyja úr heilablóðföllum og enn færri úr »öðrum hjartasjúkdómum« (lokusjúkdómum, meðfæddum hjartagöllum, Coronary heart disease Cancer Cancer Coronary heart disease irOther causes Cerebro Cerebrovascular h rt vascular disease ?ther heart disease oisease diseases Males (N: 1140) Females (N: 537) Figure 2. Causes of death in hoth sexes afler follow-up for 2 to 17 years. hjartavöðvasjúkdómum og hjartasjúkdómum af völdum háþrýstings). Ymsir aðrir sjúkdómar, svo sem nýmasjúkdómar, lungnasjúkdómar, sýkingar og slys valda samtals 19% dauðsfalla. Skipting dánarorsaka meðal kvenna er að því leyti frábrugðin, að krabbamein orsaka flest dauðsföll (42,3%) en kransæðasjúkdómur telst dánarorsök í aðeins 19,4% tilfella. Aftur á móti er heilablóðfall 7%, sama hlutfall dánarorsaka og meðal karla. Áhœttuþœttir: Eins og fram kemur í greinargerð fyrir tölfræðilegri úrvinnslu var fjölþáttagreiningu Cox beitt til að meta sjálfstæð áhrif hinna ýmsu þátta á hlutfallslega áhættu þess að deyja úr kransæðasjúkdómi (hazard ratio). í töflu II eru skráðir þeir áhættuþættir sem marktækir reyndust hjá körlum og í töflu III er sambærileg skráning marktækra áhættuþátta meðal kvenna. í ntargföldunarlíkaninu liggur, að viðbótaráhætta vegna hvers áhættuþáttar verður því meiri eftir því sem áhættan eykst vegna annarra þátta. Ahrif aldurs eru metin með aldurinn sem samfellda breytistærð. Aldur reyndist mjög marktækur áhættuþáttur og jukust líkur á kransæðadauða um 1.103 eða 10,3% á ári hjá körlum, en um 1.123 eða 12,3% á ári hjá konum. Þar sem hlutfallsleg áhættuaukning reiknast af sífellt hærri tölu með hækkandi aldri verður viðbót hvers árs sífellt hærri. Blóðþrýstingur í slagbili reyndist einnig mjög marktækur áhættuþáttur kransæðadauða með báðum kynjum. Hver hækkun um einn mm Hg jók áhættuna um 1,0% meðal karla en 1,3% meðal kvenna og er munurinn milli kynjanna ekki marktækur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.