Læknablaðið - 15.09.1992, Blaðsíða 48
306
LÆKNABLAÐIÐ
Á NORÐURSLÓÐUM
Prófessor Olivecrona mun fyrstur manna á
Norðurlöndum hafa gert skurðaðgerð við
brjósklosi í baki. Snorri Hallgrímsson segir
svo frá árið 1946 að þá hafi langflestar
slíkar aðgerðir í Svíþjóð verið gerðar á
Vanföreanstalten og hafi þær verið innleiddar
þar af Ameríkumanninum J.G. Love árið
1938. Ég var um tíma aðstoðarmaður Dr.
Love á námsárum mínum við Mayo Clinic
í Rochester, Minnesota árin 1967-71. Hann
hafði verið þar yfirlæknir en fór á eftirlaun
um þetta leyti. Víðfrægur en sérstæður maður.
Hörkutól af gamla skólanunt.
Fyrsti sjúklingurinn hér á landi, kona, var
skorin upp á Sjúkrahúsi Hvítabandsins í
Reykjavík 6. september 1943 en fyrsta
aðgerðin á Landspítalanum var gerð 13. mars
1944. Báðar aðgerðirnar voru framkvæmdar
af Snorra Hallgrímssyni. Árið 1966 höfðu
á handlækningadeild Landspítalans verið
skomir upp 320 sjúklingar vegna brjóskloss
í baki (11). Á Landakotsspítala hafa
brjósklosaðgerðir verið gerðar í áraraðir.
Dr. Bjami Jónsson tjáir mér að þær hafi
upphaflega byrjað um 1945 og þá í samvinnu
við Dr. Bjarna Oddsson en hann hafi svo gert
þær einn eftir að sá síðarnefndi féll frá. Slflcar
aðgerðir hafa verið gerðar utan Reykjavíkur
og þá sérstaklega á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri hin síðari ár. Á Borgarspítalanum
hófust þessar aðgerðir árið 1971 en árið 1981
var byrjað að gera þar smásjáraðgerðir vegna
brjóskloss og er sú aðgerð ríkjandi þar nú
(12). Vorið 1991 var einnig hafist þar handa
með baksjáraðgerðir (percutaneous endoscopic
luntbar discectoiny) (13).
FERÐIN TIL MARS
Það verður að segjast að greining og meðferð
á brjósklosi í baki hefur tekið stórstígum
framförum á undanförnum áratugum.
Rannsóknir og aðgerðir fá orðið lítið á
sjúklinginn og legutíminn er stuttur. Koma
má að mestu í veg fyrir örmyndun með því
að leggja áherslu á að varðveita lig. flavum.
Batahorfur eru yfirleitt góðar. Fjöldi aðgerða
er mikill en margir komast þó hjá aðgerð með
hvíld, deyfingum og sjúkraþjálfun. Hinsvegar
hefur ekki enn tekist að koma í veg fyrir að
brjósklos endurtaki sig eftir aðgerðir en það
hendir í um 10% tilfella. Mjög erfitt er að
bæta líðan þeirra sjúklinga sem ekki lagast
þrátt fyrir vel heppnaða aðgerð. Oft er líka
erfitt að bæta þá sem hafa slæma verki í
fótum sem líkjast einkennum settaugarbólgu
en brjósklos finnst ekki. Sumir þeirra lenda
í gagnslausum aðgerðum og þá verr farið
en heima setið. Það er nefnilega fleira en
brjósklos sem veldur verkjum þótt erfitt kunni
að reynast að gefa því nafn.
Ef til vill öðlast menn meiri þekkingu á
verkjum í baki og fótum með betri klínískum
rannsóknum og þær þyrfti að efla. Ef til vill
leiðir segulómunin eitthvað nýtt í ljós.
Það er trú mín að baksjáraðgerðir geti átt
mikla framtíð fyrir sér ef tekst að þróa
núverandi tækjabúnað og auka þar með
notagildi aðgerðarinnar.
Að lokum spyr sig margur maðurinn hvort og
þá hvemig megi koma í veg fyrir bakveiki
og brjósklos. Streita, kyrrseta og oft slæm
vinnuaðstaða skiptir þama miklu máli. Hætta
að reykja og koma sér í betra líkamlegt horf?
Hætt er við að nokkuð langt sé í land þar til
fullnægjandi árangri verður náð hvað þetta
snertir.
HEIMILDIR
1. Harrington TR. Sciatica and the history of surgical
treatment of lumbar disc disease. BNI Quarterly
1988; 4(2); 24-9.
2. Bennett G. History. The Egyptian period. In: Howorth
MB, ed. Injuries of the spine. Baltimore: Williams &
Wilkins, 1964: 1-3.
3. Markham JW. Surgery of the spinal cord and
vertebral column. In: Walker AE, ed. A history of
neurological surgery. New York: Hafner Publ., 1967:
364-92.
4. Hallgrímsson S. Nokkur orð um diskus prolaps.
Læknablaðið 1946; 15: 44-62.
5. Gurdjian ES, Thornas LM. Surgery of ruptured
and protruded intervertebral discs. In: Operative
neurosurgery. 3rd ed. Baltimore: Williams & Wilkins,
1970; 408-13.
6. Mixter WJ, Barr JS. Rupture of the intervertebral disc
with involvement of the spinal canal. N Engl J Med
1934; 211: 210-5.
7. Love JG. Removal of protruded intervertebral disks
without laminectomy. Proc Staff Meet, Mayo Clinic
1939; 14: 800.
8. Williams RW. Microlumbar discectomy. A
conservative approach to the virgin hemiated lumbar
disc. Spine 1978; 3(2): 175-82.
9. Jónsson B. Discographia lumbalis. Læknablaðið 1978;
Fylgirit 5: 17-20."
10. Jónasson K. Hryggþófarannsóknir með skuggaefni.
Læknablaðið 1978, Fylgirit 5: 21-6.
11. Sigurðsson K. Brjósklos í mjóbaki. Arangur
skurðaðgerða innan átta vikna frá byrjun einkenna.
Læknablaðið 1971; 16: 5-14.