Læknablaðið - 15.09.1992, Síða 36
296
LÆKNABLAÐIÐ
sjúklingum og urðu eðlileg í báðum tilvikum
eftir meðferð. Lyfjasaga fékkst hjá 38
einstaklingum og kom í ljós að samsett lyf
sem innihalda parasetamól eru mun algengari
(27 tilfelli) en parasetamól eitt sér (11 tilfelli)
(sjá töflu).
Ef litið er á aldursdreifingu kemur í ljós að
73,9% einstaklinga eru frá 14 til 39 ára og
er það mun hærri tala en búast mætti við hjá
þessum aldurshópi, en í desember 1987 voru
49,7% íslendinga á aldursbilinu 10-39 ára.
UMRÆÐA
Mikið hefur verið skrifað um parasetamól-
eitranir í erlend læknisfræðirit á undanfömum
árum. Tíðni þeirra hefur yfirleitt farið vaxandi
með aukinni notkun lyfsins eins og við er að
búast. I stórri bandarískri rannsókn (1) sem
gerð var 1976-1985 á mörgum sjúkrahúsum
voru skráð yfir 11.000 tilfelli og 2.540
sjúklingar voru meðhöndlaðir með N-acetyl-
cysteini sem gefið var um munn. Þar konr í
ljós að því fyrr sem lyfið er gefið þeim mun
minni hætta er á lifrarskemmdum. Einungis
komu fram lifrarskemmdir í 6,1% tilfella
þegar N-acetyl-cystein var gefið innan 10
tíma frá því parasetamól var tekið og í 26,4%
tilfella ef meðhöndlun var hafin 10-24 tímum
eftir lyfjatöku. Hjá þeim sem fengu meðferð
16-24 tímum eftir lyfjatöku var lifrarskemmd í
41% tilfella. Eru þessar niðurstöður í samræmi
við þá skoðun að N-acetyl-cystein sé mjög
gagnlegt, ef það er gefið innan 16 stunda frá
lyfjatöku og gæti gert eitthvert gagn allt að
24 tímum eftir töku lyfsins. í þessari stóru
rannsókn dóu 11 sjúklingar, eða 0,43%.
Nýlega birtust í British Medical Journal (3)
niðurstöður rannsóknar þar sem N-acetyl-
cystein var gefið sjúklingum með alvarlega
lifrarbilun af völdum parasetamóls. Voru
liðnar að meðaltali 55 klukkustundir frá
töku lyfsins þar til N-acetyl-cystein-meðferð
hófst. Rannsóknin var framsýn og náði til
50 sjúklinga. Fékk helmingur sjúklinganna
hefðbundna meðferð en hinn helmingurinn
fékk einnig N-acetyl-cystein í stöðugu
innrennsli í æð þar til einkenni gengu til baka
eða sjúklingur lést. Með tillitil til dauðsfalla,
heilabjúgs og blóðþrýstingsfalls var árangur
nteðferðar marktækt betri hjá þeim sem
fengu N-acetyl-cystein. í N-acetyl-cystein
hópnum lifðu 48% (12/25) en í hópnum
sem fékk aðeins hefðbundna meðferð lifðu
20% (5/25). Engar alvarlegar hjáverkanir
komu fram við gjöf lyfsins. Samkvæmt
niðurstöðum þessarar rannsóknar er reynandi
að gefa sjúklingum með alvarlega lifrarbilun
af völdum parasetamóls N-acetyl-cystein þó
langt sé liðið frá töku lyfsins.
Á Borgarspítalanum hefur einn sjúklingur
látist af völdum parasetamóleitrunar (6) og
frá rannsóknastofu Háskólans í lyfjafræði eru
heimildir um annað dauðsfall og jafnframt
tvö önnur tilfelli þar sem parasetamól er talin
meðvirkandi dánarorsök (7).
Þótt lifrarskemmdir séu langalvarlegasta
eiturverkun parasetamóls og algengasta
dánarorsök getur lyfið einnig í ofskömmtum
valdið nýrnabilun (8) og skráð hefur
verið tilfelli þar sem sjúklingur dó vegna
hjartavöðvabólgu (toxic myocarditis) af
völdum parasetamóls (9). Lifrarskemmdir
af völdum parasetamóls virðast ekki
verða varanlegar og sjúklingar ná sér
yfirleitt að fullu. Talin er aukin hætta á
lifrarskemmdum hjá áfengissjúklingum, að
öllum líkindum vegna aukinnar verkunar
cytochrom P-450 oxíðasakerfisins og einnig
minnkunar á glútatíon-birgðum hjá þeim
(10). Þá er jafnvel talin aukin hætta á
lifrarskemmdum hjá áfengissjúklingum við
langvarandi notkun parasetamóls í eðlilegum
lækningaskömmtum. Lýst hefur verið örfáum
tilfellum lifrarskemmda hjá sjúklingum
sem ekki voru áfengissjúklingar og virtust
aðeins hafa notað parasetamól sem verkjalyf í
eðlilegum skömmtum (10). Börn eiga erfiðara
með að binda parasetamól við glúkúron-
sýru en fullorðnir, en þrátt fyrir það virðist
heldur minni hætta á parasetamóleitrunum og
lifrarskemmdum hjá þeim en hjá fullorðnum
við sambærilega skammta.
Eins og áður er getið er parasetamól
eitt helsta niðurbrotsefni fenasetíns.
Eiturverkanir fenasetíns á nýru eru vel
þekktar og því eðlilegt að menn velti fyrir
sér hvort parasetamól geti einnig valdið
nýmaskemmdum við langvarandi notkun
lyfsins.
Sandler og fleiri (11) athuguðu nýlega notkun
verkjalyfja hjá sjúklingum með varanlega
sermikreatínín hækkun þar sem þekktir
nýmasjúkdómar voru útilokaðir. I ljós kom,
að miðað við samanburðarhóp, var mikið
aukin notkun fenasetíns hjá sjúklingum með