Læknablaðið - 15.09.1992, Side 54
312
LÆKNABLAÐIÐ
mun sennilega verða skráður 1993. Þannig
verður unnt að grípa til fleiri nikótínlyfja
hjá þeim sem reykja en þurfa að leggjast
inn á spítala þar sem reykingar kunna að
vera bannaðar. Heilbrigðisstarfsfólk verður
að gera meira af því að ræða reykingar í
hreinskilni við sjúklingana og finna leiðir sem
eru ásættanlegar og til hins betra.
Erlendis hefur sums staðar tekist að úthýsa
reykingum algerlega á sjúkrahúsum og fara þá
þeir sem reykja út á meðan. Rétt er að minna
á að reykingar minnka viðnámsþrótt gegn
sýkingum en ferskt loft og hreyfing er almennt
til góðs. Hérlendis geta þó veður orðið slík
að ómögulegt er að standa óstuddur utandyra
hvað þá að reykja úti.
Þess vegna væri rétt að koma til móts við
óskir um lágmarksaðstöðu til reykinga,
að minnsta kosti fyrir sjúklinga. Á þeim
stöðum þar sem húsnæði innan byggingar
er nauðsynlegt fyrir heilbrigðisþjónustu væri
afdrep reist á lóðinni utan við viðkomandi
byggingu eðlileg lausn. Stefna ber að því
að leggja niður reykherbergi sem eru inni
á spítölunum. Þetta getur tekið nokkur
ár en hafa ber í huga að þótt leitað sé
gaumgæfilega að rökum, sem kynnu að
réttlæta reykingar inni á sjúkrahúsum finnast
varla nokkur. Flest rök hníga hins vega að
því að heilbrigðisstarfsfólk beiti sér enn
meira gegn tóbaksnotkun; bæði sínum eigin
reykingum á vinnustað og annarra.
hospitals in August 1991 showed that non-smokers
thought that 23-24% of the patients smoked in the
hospital, whereas smokers thought that 36-37% did.
Sixty-three percent of those who smoked and 78%
of those who did not supported the ban on smoking
in the hospitals. Forty-four percent of smokers and
71% of non-smokers considered that the ban on
smoking was an improvement. Given the three
choices of an unchanged condition, tougher rules,
or minimal facilities for smoking, 81% of the
smokers and 53% of the non-smokers chose the
third altemative.
ÞAKKIR
Við þökkum Hildi Thors, Elísabetu Benedikz,
Guðmundi Rúnarssyni og Brynjari Viðarssyni
fyrir hjálp við gagnasöfnun.
HEIMILDIR
1. Guðmundsdóttir Á, Ólafsdóttir H, Harðarson
Þ, Tómasson H, Bjömsson JK, Helgason T.
Reykingakönnun á ríkisspítölum. Læknablaðið 1990;
76; 449-56.
2. Blöndal Þ, Hardarson Þ, Helgason T, Ragnarsson J.
Tobaken eller livet? Minskad rökning i Island 1985-
1990. Nord Med 1991; 106: 11-2.
3. Ragnarsson J, Blöndal Þ. Reykingavenjur 1989-1990.
Heilbrigðisskýrslur. Fylgirit 1990 nr. 5. Reykjavík:
Landlæknisembættið. 1990.
4. Stefánsdóttir A, Magnússon M, Blöndal Þ. Læknar og
reykingar. Læknablaðið 1991; 77: 78-81.
5. Reykdal S, Blöndal Þ. Tóbaksnautn í læknadeild -
venjur og viðhorf. Læknaneminn 1989; 42(1-2); 53-
8.
6. Eyjólfsson GI. Skýrsla reykingavamanefndar
Borgarspítalans. Spítalapósturinn 1984; 10(3); 2-5.
SUMMARY
A survey of smoking habits of patients and
personnel on the wards in the Icelandic state