Læknablaðið - 15.06.1996, Qupperneq 11
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
439
Table II. Crohn ’s disease in Iceland 1980-1989. Localization of inflammation at diagnosis infour different age groups (number
of patients).
Age Small bowel only lleocolic Large bowel only Stomach Total
0-19 4 3 2 1 10
20-39 7 9 16 0 32
40-59 5 1 6 0 12
> 60 3 1 17 0 21
Total 19 (25.3%) 14 (18.7%) 41 (54.7.%) 1 (1.3%) 75 (100%)
The relative increase with age of inflammation limited to the colon shows significant linear trend (p=0.003).
sjúklingunum, lítil slímhúðarsýni úr meltingar-
vegi hjá 60 (80%), en mjógirnis- eða ristilhlut-
ar hjá 33 (44%). Blönduð bráð og langvarandi
bólga fannst í sýnum frá 71 sjúklingi (95%),
einkennandi bólguhnúðar hjá 46 (61,3%), sár
hjá 45 (60%) og kirtilkýli (crypt abscess) hjá 21
sjúklingi (28%). Hjá níu sjúklingum (12%) var
lýst fistilmyndun, en rofi á görn hjá fjórum
(6%).
Sjúkdómseinkenni: Algengustu sjúkdóms-
einkenni voru kviðverkir (84%), tíðar hægðir
eða niðurgangur (79%), blóð í hægðum (32%)
og endaþarmskveisa (tenesmus) (27%). Ein-
kenni frá einu eða fleiri líffærum utan melting-
arvegar, lifur, gallvegum, liðum, augum og
húð, höfðu 34,6%. Rúmlega helmingur sjúk-
linganna (51%) hafði greinst innan þriggja
mánaða frá byrjun einkenna, tveir þriðju hlut-
ar (67%) innan sex mánaða, en hjá rúmlega
fjórðungi sjúklinga (27%) dróst greiningin í
eitt ár eða lengur.
Sjúkrahúsvist og fjölskyldusaga: Um 97%
sjúklinganna hafði þegar vistast á sjúkrahúsi
lncidence/100,000
4 1--------------
1950-59 1960-69 1970-79 1980-89
Years
vegna sjúkdómsins, ýmist við greiningu eða
síðar í tengslum við fylgikvilla eða aðgerðir.
Hjá sex sjúklingum (8%) fengust upplýsingar
um einn eða fleiri ættingja með staðfestan
þarmabólgusjúkdóm. Hjá ættingjum fjögurra
(5,3%) var um svæðisgarnabólgu að ræða og
hjá ættingjum tveggja (2,7%) sáraristilbólgu.
Umræða
Þær niðurstöður rannsóknar á faraldsfræði
svæðisgarnabólgu á íslandi árin 1980-1989,
sem hér er skýrt frá, leiða í ljós marktæka
hækkun á nýgengi miðað við fyrri könnun
(3,4). Ef miðað er við nýgengið á árunum
1950-1969 er aukningin nær áttföld, en rúm-
lega þreföld ef miðað er við áratuginn 1970-
1979 (mynd 2). Þrátt fyrir þessa miklu aukn-
ingu er árlegt meðalnýgengi sjúkdómsins, 3,1
tilfelli á 100.000 íbúa, með því lægsta sem
greint er frá á svipuðu tímabili í nálægum lönd-
um (6-19) (tafla III). Við teljum að greina megi
vísbendingar í niðurstöðum okkar um stöðupa
aukningu á nýgengi svæðisgarnabólgu á Is-
landi. Rannsókn okkar nær til heillar þjóðar en
allar hinar að einni undanskilinni (6), eru
svæðisbundnar, ýmist afturskyggnar (8,10-
12,14,15,17) eða framskyggnar (6,9,13,18,19).
Fyrri könnun á nýgengi svæðisgarnabólgu á
Islandi (3) sýndi mjög lágt nýgengi árin 1950-
1979. Rannsóknirnar eru þó unnar á sambæri-
legan hátt. Við leit að nýjum tilfellum af svæð-
isgarnabólgu var fyrst og fremst byggt á vefja-
greiningu á sýnum sem komu til rannsóknar á
Rannsóknastofu Háskóla Islands í meinafræði
í Reykjavík og meinafræðideild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri. í báðum rannsókn-
unum voru einnig fengnar upplýsingar frá sér-
fræðingum í meltingarsjúkdómum og leitað var
í sjúkdómaskrám geislagreiningardeilda. í
fyrri könnuninni voru að auki send bréf til allra
heilsugæslu- og heimilislækna á íslandi og sjúk-
dómaskrár á stærstu sjúkrahúsum landsins