Læknablaðið - 15.07.1996, Qupperneq 46
534
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Hollvinasamtök Háskóla íslands
Hollvinasamtök Háskóla ís-
lands voru stofnuð formlega 17.
júní síðastliðinn. Stofnfélagar
eru á sjötta hundrað talsins.
Markmið Hollvinasamtak-
anna er að auka tengsl Háskóla
íslands við fyrrverandi nemend-
ur sína og aðra sem bera hag
skólans fyrir brjósti.
A fundi í læknadeild 3. júní
síðastliðinn var eftirfarandi
ályktun frá Reyni Tómasi
Geirssyni samþykkt:
Deildarfundur læknadeildar
Háskóla Islands, haldinn í
Læknagarði 3. júní 1996, lýsir
stuðningi við stofnun Hollvina-
félags læknadeildar, sem verði
aðili að Hollvinasamtökum Há-
skóla íslands.
Stefnt verði að aðild allra
lækna sem útskrifast hafa úr
deildinni og aðild annarra vel-
unnara læknakennslu og lækna-
vísinda á Islandi.
Fundurinn felur núverandi
undirbúningsnefnd að vinna að
því að haldinn verði stofnfund-
ur í septembermánuði 1996, þar
sem félaginu verði sett stofn-
skrá í samræmi við markmið
Hollvinasamtaka Háskóla ís-
lands og stjórn kjörin.
í undirbúningsnefndinni sitja
eftirfarandi læknar: Árni
Björnsson, Gunnar H. Gunn-
laugsson, Reynir Tómas Geirs-
son, Tómas Árni Jónasson,
Víkingur H. Arnórsson og Þor-
steinn Njálsson. Ennfremur eru
í nefndinni læknanemarnir
Andri Már Þórarinsson, Eiríkur
Orri Guðmundsson og Þórdís
Guðmundsdóttir. Formlega
verður gengið frá stofnun
Hollvinafélags læknadeildar
með haustinu. Nú þegar er hins
vegar hægt að gerast stofnandi
að því. Skrifstofa Hollvinasam-
taka Háskólans skráir félags-
menn og veitir upplýsingar. f
nýkjörinni stjórn Hollvinasam-
taka Háskóla íslands eru: Pétur
Oskarsson heimspekinemi til-
nefndur af Stúdentaráði HÍ,
Sigmundur Guðbjarnarson pró-
fessor tilnefndur af Háskóla-
ráði, Anna Ólafsdóttir Björns-
son sagnfræðingur og myndlist-
armaður, Ragnhildur
Hjaltadóttir skrifstofustjóri í
Samgönguráðuneytinu og
Steingrímur Hermannsson
seðlabankastjóri. Skrifstofa
Hollvinasamtakanna er í Stúd-
entaheimilinu við Hringbraut.
Síma- og bréfasímanúmer er 551
4374. Netfang er sigstef@
rhi.hi.is. Framkvæmdastjóri er
Sigríður Stefánsdóttir réttarfé-
lagsfræðingur.