Læknablaðið - 15.07.1996, Síða 49
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
537
íðorðasafn lækna 79
Leiðrétting
Þorgeir Þorgeirsson, yfir-
læknir á meinafræðideild FSA,
hringdi og benti á að ekki hefði
verið farið rétt með tvö latnesk
heiti í 77. pistli. Fjallað var þar
um fæðingarbletti og nefnd
voru latnesku heitin nevus
nevocellulare og nevus melano-
cyticum (sjá Lbl 1996;82:406).
Naevus er karlkyns nafnorð og
því skulu heitin vera þannig:
naevus nevocellularis og naevus
mclanocyticus. Beðist er vel-
virðingar á því að aðgæsla var
ekki næg þegar pistillinn var
skrifaður. Þessi mistök gefa til-
efni til þess að spyrja hvort lat-
ínukunnátta íslenskra lækna sé
ekki á svo miklu undanhaldi að
kominn sé tími til að hætta notk-
un hreinnar latínu í læknamáli.
Claudicatio
Nýlega barst beiðni um
endurskoðun á þýðingu Iðorða-
safns lækna á enska heitinu
claudication, en það fær þar
þýðingarnar: 1. helti, 2. helti-
köst. Erlendar orðabækur eru
sammála um það að heitið sé
dregið af latnesku sögninni
claudico, haltra, og því er þýð-
ing íðorðasafnsins laukrétt.
Hins vegar er það oftast notað
um tiltekið sjúklegt ástand,
interniittent claudication, sem
stafar af blóðþurrð í vöðvum
fóta, einkum kálfavöðvum.
Intermittent á við um það sem
er slitrótt eða kemur öðru hvoru
og heltiköst er því rétt orðaþýð-
ing. Intermittent claudication
gefur sig hins vegar ekki aðeins
til kynna með helti, heldur einn-
ig með verkjum í fótum, og
stundum er heitið notað þó
ástandið einkennist eingöngu af
verkjum. Heltiköst er ekki sér-
tækt heiti og getur átt við um
annars konar helti en þá sem
stafar af blóðþurrð. Því virðist
heppilegt að íslenska heitinu á
intermittent claudication sé
breytt. Ekki bætir úr skák að í
gömlum læknisfræðiorðabók-
um má finna heitið cerebral
claudication. Bein þýðing á því
væri þá heilahelti, sem er vissu-
lega lipurt heiti en varla nothæft
nema í spaugi. íðorðasafnið til-
greinir heitið angina cruris sem
samheiti við intermittent clau-
dication. Þar er lausnin senni-
lega fengin. Angina er latneskt
nafnorð, komið af sögninni
ango: kæfa, kyrkja, kreista eða
þrýsta saman. Það var áður not-
að um aðþrengjandi verkja-
ástand, einkum við hálsbólgu,
en er nú mest notað um þann
brjóstverk sem fram kemur við
blóðþurrð í hjartavöðva, angina
pectoris eða angina cordis, en
slíkt nefnir íðorðasafnið hjarta-
öng. Crus er leggur eða fótlegg-
ur, svæðið milli hnés og ökkla.
Því er nú lagt til að angina cruris
fái heitið leggjaröng. Til vara
má tilnefna heitin leggjaöng,
fótaöng, fótaröng eða jafnvel
kálfaöng.
Tourette heilkenni
Um miðjan maí barst beiðni
frá formanni Tourette samtak-
anna, Elísabetu Magnúsdóttur,
þess efnis að tekin yrðu til um-
ræðu nokkur heiti sem tengjast
svonefndu Tourette heilkenni.
Hin alþjóðlega læknis- og líf-
fræðiorðabók Wileys greinir frá
því að Tourette hafi verið
taugasjúkdómalæknir í Frakk-
landi og uppi á árunum 1857-
1904. Fullt eftirnafn mannsins
var Gilles de la Tourette, en
fornöfnin ekki færri en fjögur:
Georges Edouard Albert Brut-
us. Kvillinn, sem við hann er
kenndur, er nú oftast nefndur
Tourette, de la Tourette eða
Gilles de la Tourette sjúkdómur
eða heilkenni. Kvillinn hefur
einnig verið kenndur við annan
franskan lækni, Georges Guin-
on, sem uppi var á svipuðum
tíma og þá nefndur á frönsku tic
de Guinon. Að auki má finna að
minnsta kosti tíu önnur heiti á
frönsku og ensku. Sjúkdóma-
flokkun Heilbrigðisstofnunar
þjóðanna (sjá Fréttabréf lækna
1993:7:6) setur fyrirbærið í
flokk sem nefnist Tic disorders,
en sá hefur fengið heitið kippa-
raskanir í nýrri íslenskri þýð-
ingu. De la Tourette heilkenni
kemur fyrir í undirflokki sem
nefnist samsett radd- og fjöl-
kipparöskun (combined vocal
and multiple motor tic disor-
der). Honum er meðal annars
þannig lýst að um sé að ræða
kipparöskun með mörgum
hreyfikippum og einum eða
fleiri raddkippum, þó ekki þurfi
þeir að hafa komið samtímis (sjá
ICD-10, bls. 384). í nýlegri
Greiningar- og tölfræðihand-
bók Ameríska geðlæknafélags-
ins (DSM-III-R) er Tourette
heilkenni fellt inn í flokk sem
fengið hefur heitið fjölkippa-
röskun í íslensku þýðingunni.
Orðanefndin hefur á sínum
tíma valið heitið svipvöðvakipp-
ir til að tákna Gilles de la Tour-
ettes heilkenni, en ef til vill lýsir
það heiti ástandinu þó ekki
nógu vel. (Framhald í næsta
blaði.)
Jóhann Heiðar Jóhannsson