Læknablaðið - 15.12.1998, Síða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
931
Tafla I. Svörun gegn mismunandi ofnœmisvökum.
Ofnæmisvakar Alls Jákvætt próf Fjöldi (%)
Birki 569 55 (9,6)
Gras 573 169 (29,5)
Túnfífill 572 13 (2,3)
Hestur 571 35 (6,1)
Köttur 573 125 (21,8)
Hundur Dermatophagoides 571 49 (8,6)
petronyssinus Dermatophangoides 568 27 (4,8)
farinae 568 27 (4,8)
Alternaria altemarius 545 4 (0,7)
Cladosporium herbarum 554 8 (1,4)
Mucor spinosus 243* 3 (1,2)
Aspergillus fumigatus 180* 1 (0,6)
Lepidoglyphus destructor 55** 17 (30,9)
* Mucor spinosus hætt 1994 en Aspergillus fumigalus notuð eftir það.
** Einungis prófað hjá þeim sem notuðu hey.
tveimur til að finna út stærð í mm (4). Fram
kemur í töflu I hvaða ofnæmisvakar eru notaðir
í rannsókninni. Eina undantekningin frá því að
húðpróf var notað, var við greiningu ofnæmis
fyrir heymaurnum Lepidoglyphus destructor.
Þar var stuðst við mótefnamælingar og mæld
sértæk IgE mótefni, með RAST aðferð (5). Já-
kvæð niðurstaða í RAST-flokkum var skil-
greind 2 eða stærri.
A fyrrnefndu rannsóknartímabili voru notuð
stöðluð efni með styrkleika 10 H.E.R (6).
Breytingar urðu á ofnæmisvökum fyrir myglu-
sveppum á tímabilinu. Arið 1994 var hætt að
nota Mucor spinosus en í stað hans sett inn
Aspergillus fumigatus. Þá var frá sama tíma
notuð ofnæmislausn til að greina ofnæmi fyrir
heymaur, Lepidoglyphus destructor, en einung-
is var prófað fyrir þessum ofnæmisvaldi hjá
þeim sem notuðu hey.
Upplýsingum var safnað í tölvutækt form í
File Maker Pro fyrir Macintosh og síðan fært
yfir í Stat View SE + Graphic program. Hóp-
arnir voru bornir saman með einföldu t-prófi eða
ópöruðu t-prófi. Samanburður milli hópa, sem
höfðu grasofnæmi og annars vegar ættarfylgju
fyrir ofnæmi og hins vegar ekki, var gert með
kí-kvaðratsprófi, p<0,05 var talið marktækt.
Niðurstöður
Alls reyndust 283 hafa jákvæð húðpróf eða
47%. Meðalaldur þeirra sem höfðu jákvæð
húðpróf var 23±13 ár en meðalaldur þeirra sem
höfðu neikvæð húðpróf var 34±17 ár (p<0,001).
Yngsti einstaklingurinn var tveggja ára og elsti
77 ára en flestir rannsakaðra einstaklinga voru
Tafla II. Fjöldi sjúkdómsgreininga ogfjöldi þeirra sem höfðu já-
kvœð ofnœmispróf
Greining N Jákvætt próf (%)
Síkvef 288 118 (42)
Sumarkvef 155 122 (79)
Astmi 96 32 (33)
Önnureinkenni 61 11 (18)
Tafla III. Meðalaldur eftir sjúkdómsgreiningu hjá þeim sem höfðu jákvœtt ofnœmispróf borið saman við þau sem höfðu nei- kvœtt próf
Meðalaldur
Greining Jákvætt próf Neikvætt próf
Síkvef 28±I3 37±16 **
Sumarkvef 17±10 32±14 **
Astmi 26±14 34±19 *
*p< 0,05, **p< 0,001
börn og ungt fólk. Tafla I sýnir niðurstöður úr
húðprófunum. Heymaurinn Lepidoglyplius de-
structor sýndi oftast jákvæða svörun eða í 31 %
tilvika en einungis var prófað fyrir honum hjá
þeim sem unnu með hey. Hér var einungis
stuðst við RAST próf. Að öðru leyti var jákvæð
svörun gegn grösum langalgengust eða í tæp-
lega þriðjungi tilvika og svörun gegn kattarhár-
um hjá liðlega fimmta hluta hópsins. í þriðja
sæti kom birkifrjó með svörun í tæplega tíunda
hverju tilviki. Svörun gegn rykmaurum var
mun sjaldgæfari og í langflestum tilvikum var
rannsókn fyrir myglusveppum neikvæð.
I töflu II koma fram helstu tilefni ofnæmis-
rannsókna. Einungis ein sjúkdómsgreining var
notuð fyrir hvern einstakling og var þar valin
sú sjúkdómsgreining sem var þýðingarmest og
aðaltilefni rannsóknar. Á þann hátt er heildar-
fjöldi einstaklinga með mismunandi sjúkdóma
í þessari töflu sá sami og fjöldi rannsakaðra
einstaklinga. Algengast var síkvef. Þar var
hlutfall jákvæðra húðprófa 42%. Þar næst kom
slímhúðarbólga í augum og nefi á sumrin, en
jákvæð húðpróf reyndust 79%. Þriðja algeng-
asta tilefnið var astmi og í þeim hópi greindist
ofnæmi í 33% tilvika. Sjaldgæfust voru ein-
kenni frá augum og nefi eða öndunarfærum án
þess að tekist hafi að flokka þau undir eina
ákveðna sjúkdómsgreiningu. Þar var hlutfall
ofnæmis 18%.
Tafla III sýnir meðalaldur eftir sjúkdóms-
greiningum og að þeir sem höfðu jákvætt of-
næmispróf voru í öllum tilvikum með mark-
tækt lægri meðalaldur en hinir. Meðalaldur
karla sem höfðu ofnæmi var 21 ±13 ár og
kvenna 25± 13 ár. Meðalaldur karla sem ekki
höfðu ofnæmi var 32±17 ár og meðalaldur
kvenna var 35±17 ár.