Fréttatíminn - 15.10.2010, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 15.10.2010, Blaðsíða 4
 eftir metsöluhöfundinn Önnu B. Ragde „… mikil fjölskyldusaga … afskaplega fallegur stíll og hún er vel skrifuð. Bók sem höfðar til margra …“ ÞES / Kiljan Heildarlisti 06.-12.10.10 www.forlagid.is — alvöru bókabúð á netinu Baldur ákærður fyrir innherjasvik Búið er að ákæra Baldur Guðlaugs- son, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá þessu í kvöldfréttum í gær. Baldur er grunaður um innherjasvik þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir rúmar 190 milljónir rétt fyrir hrun bankanna. Hann er og talinn hafa haft vitneskju um stöðu Landsbankans sem markaðurinn hafði ekki en Baldur sat fund ásamt Björgvini G. Sigurðssyni og Alistair Darling þar sem vandamál vegna Icesave-reikninga Landsbankans voru rædd. -jh Saga Capital á uppleið Fjárfestingarbankinn Saga Capital hyggur á flutninga í næstu viku. Bankinn hefur haft aðsetur á Þóroddsstöðum í Skógarhlíð undanfarin ár en mun flytja á fjórtándu hæð í Höfðatorgi. Brynhildur Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi bankans, segir í samtali við Fréttatímann að hagkvæmniástæður liggi að baki. Bankanum hafi einfaldlega boðist betri leigusamningur á Höfðatorgi heldur en á gamla staðnum. -óhþ Steini í Kók sex milljarða í mínus Athafnamaðurinn Þorsteinn M. Jónsson, einatt kenndur við Kók, rær nú lífróður til að halda Vífilfelli. Sólstafir, félag í hans eigu sem heldur utan um hlut hans í Vífil- felli, er með neikvætt eigið fé upp á rétt tæpa sex milljarða samkvæmt ársreikningi félagsins árið 2009 og rétt um tveir milljarðar eru gjaldfallnir. Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst standa yfir samningaviðræður á milli Þorsteins og Arion banka, helsta lánardrottins hans, um lausn á skuldum Sól- stafa og annarra félaga í eigu Þorsteins. -óhþ Á milli 150 og 250 af þrettán þúsund greið- endum meðlaga með börnum sækja í hverj- um mánuði um greiðslufrest eða að fá að lækka greiðslurnar til Innheimtustofnunar sveitarfélaga. „Það geta aldrei allir orðið ánægðir með afgreiðslu stofnunarinnar en ég held að ég geti fullyrt að langflestir séu sæmilega sáttir við afgreiðslu mála,“ segir Jón Ing- var Pálsson, forstjóri Innheimtustofnun- arinnar, spurður hvort margir fái neitun. Aðstæður séu mjög misjafnar en reynt sé að meta þær á jafnræðisgrundvelli. Jón Ingvar segir æ fleiri sækja um breyt- ingu greiðslnanna. „Við hrunið breyttist þetta allt til hins verra,“ segir hann. Fólk hafi misst vinnuna, þurft að lækka starfs- hlutfall eða lent í öðrum hremmingum. -gag 21.657 Er LágmarkSmEðLag á mánuðI. Hundruð vilja greiða minna í meðlög veður Föstudagur laugardagur sunnudagur HitASkil Með úrkoMu nálGASt lAnDið oG riGninG SunnAnlAnDS oG veStAn ÞeGAr líður á DAGinn. HöfuðBorGArSvæðið: rIgnIng Frá HádEgI. Milt í veðri, StrekkinGSvinDur Af Sv oG úrkoMulítið á lAnDinu. HöfuðBorGArSvæðið: ÞungBúIð og SúLd annað SLagIð. riGninG eðA Skúrir frAMAn Af DeGi, en SnýSt í n-átt oG SnJÓr til fJAllA norðAntil uM kvölDið. HöfuðBorGArSvæðið: dáLítIL rIgnIng, En roFar tIL undIr kVöLd. umskipti á sunnudag Eftir einmunatíð síðustu vikna er að sjá að veðrabrigði séu í nánd. Seint á sunnudag snýst til n-áttar. kulda og norðantrekki er síðan spáð fram í næstu viku. En fram að því verður bærilegsta veður, hitaskil frá lægð fara yfir landið með rigningu seint á föstudag og aðfararnótt laugardags. úrkomu- lítið með mildu veðri á laugardag. Síðasti dagurinn af þeirri sortinni a.m.k. í bili. 8 7 6 6 8 9 8 11 12 9 8 5 5 6 8 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is  SkulDAvAnDi HeiMilAnnA HuGMynDir SeM fenGu ekki HlJÓMGrunn Vildu fella niður skuldir án kostnaðar fyrir ríkið Lækka hefði mátt íbúðalán landsmanna um 200 til 250 milljarða króna án kostnaðar, samkvæmt tveimur sérfræðingum sem báru hugmyndirnar til fyrrum félagsmálaráðherra í fyrrahaust. K oma hefði mátt í veg fyrir kostnað við leiðréttingu íbúðalána, að mati þeirra Jóhanns G. Jóhannssonar, fyrrum starfsmanns áhættustýringar Íbú- ðalánasjóðs, og Sigurjóns Arnar Þórssonar, fyrrum aðstoðarmanns framsóknarmannsins Árna Magn- ússonar sem félagsmálaráðherra. Talsmaður neytenda lagði útreikn- inga þeirra fyrir samráðsfund rík- isstjórnarinnar um skuldir heimil- anna á miðvikudag. Í útreikningum fjármálaráð- herra frá því á miðvikudag er það mat hans að verði farið í 18% al- menna skuldaniðurfellingu kosti hún Íbúðalánasjóð og lífeyris- sjóðina 227 milljarða króna. Rík- isstjórnin skoðar nú í fyrsta sinn hvort þetta er gerlegt. Jóhann og Sigurjón hittu fyrr- um félagsmálaráðherra, Árna Pál Árnason, síðla hausts í fyrra og kynntu honum hugmyndirnar. Þar má sjá að hefði ríkið keypt íbúðal- án bankanna með 50-70% afföllum og bókfært þau yfir í Íbúðalánasjóð á hærra verði, hefði myndast hagn- aður hjá sjóðnum og þá svigrúm til að leiðrétta allt lánasafnið um 200 til 250 milljarða króna, samkvæmt útreikningunum. „Þetta var hugmynd sem var gerleg á þessum tíma,“ segir Sig- urjón Örn Þórsson. „En hún er miklu erfiðari í dag. Nú er ár liðið, eignarhald bankanna er annað og ríkisstjórnin getur ekki sett sama skilyrði og á sínum tíma,“ segir hann. „Auðvitað voru það mikil vonbrigði að hugmyndin skyldi ekki hafa verið skoðuð betur,“ segir hann, enda hafi ráðherrann tekið henni afar vel, en hugmyndin hafi ekki fengið brautargengi og bankarnir slaufað henni sem öðr- um sem fela í sér almenna skulda- niðurfellingu. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir að hann hafi far- ið með útreikningana inn á fund- inn til upplýsingar. Þar komi fram ákveðin aðferðafræði sem hugsan- lega megi byggja á. Gísli áréttaði einnig á fundinum á miðvikudag hugmynd sína um að skipaður verði gerðardómur sem fari yfir forsendubrest húsnæðislána og kveði upp úr um hvernig megi leið- rétta þau. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is gylfi arn- björnsson og Hannes g. Sigurðsson gagnrýna hugmyndir um að lífeyris- sjóðirnir komi að almennri niðurstöðu. Lífeyrissjóð- irnir megi ekki ráðstafa fé sjóðanna með þeim hætti. Ljósmynd/Hari Fundaraðir um skuldavandann Aldurshópurinn 25 til 40 ára er langskuldsettasti hópur- inn á Íslandi í dag. Það kom fram í máli fjármálaráðherra á samráðsfundi ríkisstjórn- arinnar með lífeyrissjóðum, fjármálastofnunum, umboðs- manni skuldara, talsmanni neytenda og fulltrúa Hags- munasamtaka heimilanna á miðvikudagskvöld. Sa mráðsnef nd r ík is - stjórnarinnar fundaði aftur síðdegis í gær með aðilum vinnumarkaðarins og hefur alla vikuna fundað með hag- munaaðilum og stjórnarand- stöðunni þar á undan. gylfi arnbjörnsson, aSí „Lífeyrissjóðirnir geta ekki komið að almennri skuldaniðurfellingu húsnæðis- lána heimilanna,“ segir gylfi arnbjörnsson, forseti aSí, eftir samráðsfundinn með ríkis- stjórninni í gærkvöld. Þeim sé ekki leyfilegt að ráðstafa fjármunum lífeyrissjóðanna og skerða þannig greiðslur úr sjóðum sínum til lífeyrisþega til þess að greiða niður skuldir húsnæðislánþega. gylfi bendir á að verði ráðist í almenna niðurfellingu verði ekkert eftir til þess að mæta vanda þeirra sem þurfi hvað mest á slíku að halda. „Því má svo ekki gleyma að lágtekjufólk, sem aldrei gat keypt sér íbúð, á ekki að þurfa að þola lækkun lífeyrisrétt- inda til þess að greiða þessar skuldir.“ Hannes g. Sigurðsson, Sa Hannes g. Sigurðsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, segir að á samráðsfundinum hafi komið fram að ríkisstjórnin vilji ganga hratt í það verk og fjarlægja þær hindranir sem þar séu í vegi þess að fyrirtæki geti starfað með eðlilegum hætti. „Við brýndum fyrir ríkisstjórninni að fyrirtækin yrðu að hafa rekstrargrundvöll. En á meðan þessi óvissa er um mál fyrir- tækja geta þau ekki gert framtíðaráætlanir eða ráðið til sín fólk.“ um skuldavanda heimilanna segir Hannes að lífeyrissjóðirnir geti ekki greitt húsnæðis- lánin niður. Stjórnir þeirra hafi ekkert umboð til þess. „Við leggjum áherslu á að aðgerðum verði beint til þeirra sem mest þurfa.“ 4 fréttir Helgin 15.-17. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.