Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 8

Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 8
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is Slakaðu á heima • Sjálfvirkt og stillanlegt nudd • Djúpslökun með infrarauðum hita • Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd Úrval nuddsæta - verð frá 23.750 kr. Verið velkomin í verslun okkar prófið og sannfærist! 65% aukning á þinglýstum kaupsamn- ingum frá fyrri mánuði september 2010 Árvekni gegn streitu og verkjum Björgvin Ingimarsson sálfræðingur Sími: 571 2681 Árangursrík aðferð gegn síþreytu, krónískum verkjum og vefjagigt. Námskeið hefst 12. október Nánari upplýsingar: www.salfraedingur.is Fjárhagur Borgarahreyfingarinnar er betri en gerist og gengur með stjórnmálasamtök. Fjórir fulltrúar hennar voru kosnir til þingsetu í alþingiskosning- unum í fyrra en hafa allir sagt skilið við hana. Engu að síður fær Borgarahreyfingin lögboðnar árlegar þingmannagreiðslur, eins og ekkert hafi ískorist. Þrír þingmenn Borgarahreyfingarinnar, Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir og Margrét Tryggvadóttir gengu til liðs við Hreyfinguna og síðastur hvarf Þráinn Bertelsson úr hinum upphaflega þingmannahópi Borgarahreyfingarinnar og gekk til liðs við Vinstri græn. „Jú, það er rétt, Borgarahreyfingin fær peninga fyrir þingmenn Hreyfingarinnar,“ segir Valgeir Skagfjörð, sem áður gegndi starfi formanns Borg- arahreyfingarinnar en er nú genginn til liðs við Hreyfinguna. „Borgarahreyfingin var það afl sem þeir voru kosnir fyrir og það er sá flokkur sem fær framlagið, þannig eru lögin,“ segir hann. Hann seg- ir að hið opinbera framlag vegna þessara „horfnu“ þingmanna Borgarahreyfingarinnar nemi 16-20 milljónum króna á ári. Valgeir segir að allt sé þetta uppi á borðum í reikningum Borgarahreyfingarinn- ar, þar sé allt gagnsætt og hægt að skoða. Borgarahreyfingin rekur Húsið svokallaða, við Höfðatún 12, en aðalfundur hennar samþykkti að halda því opnu fyrir breiðan hóp grasrótarhreyfinga og styrkja verkefni hópa sem falla vel að stefnu og markmiðum hennar. Valgeir segir að þar sé unnið frábært starf. Þótt rekstur hússins kosti sitt standa engu að síður fjármunir eftir vegna þingmannaframlags- ins. „Það var tekin sú meðvitaða ákvörðun á meðan ég var formaður að skila þessu fé aftur út í samfé- lagið, að það yrði gefið til góðra verka,“ segir Val- geir. Hann segir Hreyfinguna, sem ekki nýtur þessa framlags, ekki fjármagna sig að öðru leyti en því að þingflokkurinn fái 2-4 milljónir króna á ári, með sambærilegum hætti og aðrir þingflokkar, auk þess sem þingmennirnir séu á launum. Hann segir Hreyf- inguna ekki hafa gert tilkall til þeirra peninga sem Borgarahreyfingin fær. Upphafleg stefna Borgara- hreyfingarinnar hafi verið að þiggja ekki opinbert fé og að allir stjórnmálaflokkar sætu við sama borð. Hreyfingin sé sama sinnis. „Þetta er bjarnargreiði,“ segir Valgeir, „æ sér gjöf til gjalda.“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Framlag vegna „horfnu“ þingmannanna nemur 16-20 milljónum á ári  Stjórnmál lögin Standa þótt þingmennirnir leiti á önnur mið Peningarnir aftur út í sam- félagið til góðra verka Þingmannalaus Borgarahreyfingin fær þingmannaframlagið Minna reykt og drukkið en meira tekið í nefið Íslendingar reykja og drekka minna en taka meira í nefið en áður. Sala á sígarettum dróst saman um tæp 13% á tímabilinu frá janúar til september í sam- banburði við árið áður. Sala áfengis dróst saman um 5,6% á sama tíma. Mestur var samdráttur í sterkum og blönd- uðum drykkjum en minnstur í sölu hvít- víns. Bjórdrykkja dróst saman um 5,6%, að því er ÁTVR greinir frá. Á sama tíma jókst sala á nef- tóbaki um 9,2% en í lok september höfðu Ís- lendingar sett tæplega 18,8 tonn af neftóbaki í vit sér. Líf kviknar á ný á íbúðamarkaði Óvenjumikið var um að vera á íbúðamarkaði í september miðað við það sem verið hefur síðustu misseri. Samtals var 347 kaupsamningum þinglýst í mánuðinum sem er aukning um 65% frá fyrri mánuði þegar 211 samningum var þinglýst. Þetta eru 50% fleiri samningar en í sama mánuði fyrir ári. Þá voru kaupsamningar 228. Heildarvelta nam 9,8 milljörðum króna. Meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,3 milljónir króna. Leita þarf allt aftur til mars 2008 til að finna mánuð þar sem fleiri samningar voru gerðir, en að meðaltali hafa verið gerðir 180 kaupsamningar mánaðarlega síðan hrunið skall á. Einnig var mikil velta á íbúðamarkaði fyrstu vikuna í október. Þá voru gerðir 84 kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu en í sömu viku í fyrra voru gerðir 54 samningar. Óhætt er því að segja að um mikinn viðsnúning sé að ræða frá því sem áður var og haldi þessi þróun áfram næstu mánuði, segir Greining Íslandsbanka, er ljóst að lífsmark virðist vera að kvikna á íbúðamarkaði á nýjan leik. Bandaríkjadollar veikist enn gagn- vart evru og hið sama gildir gagn- vart íslensku krónunni. Verð á dollar var 110 krónur í gær og hefur hann ekki verið jafn ódýr síðan rétt eftir hrun, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. Staða dollars gagn- vart evru var 1,407 í gær en dollarinn hefur veikst um 10% gagnvart evru frá því í september. Tölur sýna að vöxtur bandaríska hag- kerfisins er hægari en reiknað hafði verið með. Gengi krónunnar gagnvart dollar hefur styrkst um 8% frá því í september og um 15% frá júníbyrjun. Hæst fór dollar í 147 krónur í árslok 2008 en fyrir hrun kostaði hann 82 krónur. -jh $ Dollarinn í 110 kr. u mboðsmaður skuldara stoppaði upp-boðið á húsinu og nú veit ég ekki hvað tekur við. Hins vegar rignir yfir mig tilkynningum um fleiri sem reyna að taka hjá okkur fjárnám,“ segir Eyþór Reynis- son, 28 ára tveggja barna faðir í Grindavík. Hús hans og Bjarneyjar Högnadóttur var auglýst á uppboði 4. október. Eyþór lýsir því hvernig hann hafi barist við að standa í skil- um en lánin sem hann hafi tekið, þau stærstu fyrir húsi sem þau byggðu fyrir fjórum árum og bíl, sem Avant hafi tekið til sín, hafi vaxið úr 28 milljónum króna í 44 milljónir. Nú er fjárhagsvandi þeirra kominn í ferli hjá umboðsmanni skuldara. Fréttatíminn ætlar að fylgjast með Eyþóri og fjölskyldu og hvernig tekið verður á vanda hans næstu misseri. „Við bíðum nú eftir einhverri lausn hjá umboðsmanni skuldara. Frændi minn, sem er viðskiptafræðingur, hefur hjálpað mér og sett upp plan um hvernig við gætum staðið í skilum. Hefði hann ekki hringt beint í um- boðsmanninn hefði uppboðið farið fram,“ fullyrðir Eyþór. Verst sé að hugsa til þess að fari hann í þrot dragi hann föður sinn með sér í fallinu. „Bæði mamma og pabbi eru hvort í sínu lagi í ábyrgðum fyrir lánunum. Við fengum veð í húsinu hans pabba, sem bankinn benti mér á að fá þegar ég hóf að byggja. Svo þegar kom af því að flytja veðið neitaði bankinn að færa það yfir á mína eign. Nú vilja þeir að- eins skuldbreyta láninu verði það flutt yfir á nafnið hans pabba,“ segir hann. Nærri hundrað eignir voru auglýstar á lokauppboði á Suðurnesjum fyrstu vikuna í október. Alls lentu 49 undir hamrinum, staðfestir Þórólfur Halldórsson, sýslumaður í Keflavík. Hann segir fáum uppboðum af- stýrt á vegum umboðsmanns skuldara, en embættið sé í góðu samstarfi við hann. „Allt er gert til að túlka lögin með ítrasta hætti fyrir skuldara.“ Eyþór segir að fjárhagurinn hafi þrengst þegar gengi krónunnar féll fyrir banka- hrunið. „Þá stökkbreyttist bílalánið, vinnan minnkaði og við hættum að standa í skilum. Þegar verst var kom mamma með matarpoka í mánaðarlok,“ segir hann. „Ég viðurkenni að maður hefur stundum verið þungur í skapi. Ef ég ætti ekki tvö ung börn stæði ég örugglega ekki hér. Ég er 28 ára og skulda 44 milljónir. Ef pabbi væri ekki undir hamrinum líka út af skuldum mínum væri ég flúinn úr landi. Þetta er ömurleg staða.“ Eyþór og fjölskylda eru hætt að borga af skuldum. „Við getum það ekki. Ég vil eyða þessum örfáu aurum sem ég fæ útborgað til að brauðfæða fjölskylduna. Við erum ung en höfum ekki einu sinni leyft okkur að fara í bíó í tvö ár. Konan mín er í fæðingarorlofi núna og við vitum ekki hvort hún getur snúið aftur til vinnu sinnar í Víðihlíð í Grindavík – öldrunarheimilinu – út af niðurskurði.“ Hann segir óvissuna nú skelfilega. „Þetta er Klepp- ur. Maður veit ekkert hvort maður hefur efni á að kaupa í matinn þegar líður á mánuðinn.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  Bjargað undan hamrinum af umBoðSmanni Skuldara Óttast að draga föður sinn í þrot Fjölskyldufaðir á þrítugsaldri segir að löngunin til að afstýra því að faðir hans fari í þrot vegna skulda hans sé það sem haldi honum hér á landi. Börnin hans tvö komi í veg fyrir að lífsviljinn slokkni. Fjölskyldan sé nú í óvissu um framhaldið. Eyþór Reynisson náði að bjarga heimili sínu undan hamrinum á síðustu stundu með aðstoð umboðsmanns skuldara. Ljósmynd/Hari 49 eignir voru slegnar á uppboði hjá sýslu- manninum í Keflavík í síðustu viku. 8 fréttir Helgin 15.-17. október 2010

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.