Fréttatíminn - 15.10.2010, Blaðsíða 29

Fréttatíminn - 15.10.2010, Blaðsíða 29
en nú eru þeir langtum færri – það munar þúsundum.“ Það þýði þó ekki að iðnaðarmennirnir standi uppi at- vinnulausir, flestir þeirra séu flutt- ir úr landi eða horfnir til annarra starfa. Bölvaður barningur Sigurður Óskarsson, fram- kvæmdastjóri KNH, segir stöðu verktakafyrirtækjanna svarta. KNH hafi til að mynda ekki átt neinn séns í útboði um Suðurstrandarveg þótt það hafi staðið vel að vígi; þegar með vinnubúðir á staðnum að vinna við annan áfanga vegarins. „Ástandið er óvenju slæmt,“ seg- ir hann og nefnir að tilboð Háfells sé ekki það eina þar sem fyrir- tæki bjóði langt undir áætluðum kostnaði. „Allt er reynt til að halda í menn og tapa ekki undirstöðum fyrirtækjanna,“ segir hann. „Menn vita ekkert í sinn haus. Það veit eng- inn neitt. Inni á samgönguáætlun eru 4,6 milljarðar en það er ekkert í hendi að þeir verði notaðir. En við höfum alltaf búið við óöryggi. Það er gegnum gangandi í þessu starfi. Þetta er bölvaður barningur og óvissan mikil.“ En hvað með að herja út? „Jú, það er hægt að bjóða í verk en það er mjög erfitt.“ segir Hilmar hjá Verktökum Magna. „ Við höfum verið að bjóða í verk í Noregi. Þar áttum við lægsta boð og vorum á leið út með tæki þegar hringt var í okkur og sagt að brotið hefði verið á okkur í útboðsferlinu og því þyrfti að endurtaka leikinn. Það var gert þrátt fyrir að við hefðum ekkert út á brotið að klaga. En mér fannst þetta lykta af pólitík. Mikil pressa var á svæðinu að semja við heima- menn,“ segir hann en bendir jafn- framt á að þannig sé það einnig hér á landi. Skriffinnskan sé einnig mikil og sækja þurfi um mörg leyfi; allt á norsku. „Við erum búnir að fara í gegnum þetta allt. En við stefnum ekki til Noregs um hávetur án þess að þekkja aðstæður betur.“ Hilmar bendir á að íslenskum verktökum hafi verið hampað fyrir að fara út nú þegar kreppi að hér heima. „En menn verða að hafa í huga að Ístak býður ekki í verk sem íslenskt fyrirtæki heldur undir merkjum Phil & son, sem er danskt fyrirtæki, og ÍAV í 100% eigu Sviss- lendinga,“ fullyrðir hann. Stefna á að selja vélarnar Allir segja þeir Jóhann Gunnar, Sigurður og Hilmar fyrirtækin sín stefna á sölu vinnuvéla. Sigurður segir þær aðeins seljast úr landi á lágu verði. Jóhann Gunnar heldur enn í sínar en hefur haft samband við söluaðila. „Við höfum þó ekki tekið drastískar ákvarðanir og erum ekki að fara á límingunum. Við eig- um eftir að dunda í verkefnum fram undir jól.“ Allir hafa þeir haft tugi ef ekki hundruð starfsmanna en hafa nú aðeins lágmarksmannafla á sínum snærum. „Ég var með sjötíu manns í vinnu. Nú erum við sjö,“ segir Hilm- ar, sem rekur minnsta fyrirtækið af þessum þremur. Veturinn er ekki bjartur, þótt þeir beri sig vel. „Nú bindum við vonir við að samningaviðræður ríkisins við lífeyrissjóðina um fjármögnun viðamikilla vegaframkvæmda gangi eftir, því þá verður hægt að ráðast í verk eins og Vaðlaheiðargöng sem annars biðu í nokkur ár í viðbót,“ segir Jóhann Gunnar. Hilmar segir þó skelfilegt að sí og æ sé fyrirtækjunum gefin von um verkefni fram undan. „Það væri hreinskiptnara að gefa upp stöðuna eins og hún er í stað þess að veita von. Við bíðum og bíðum í stað þess að geta stoppað og lágmarkað tapið.“ Við ætlum að gera betur Hefur þú kynnt þér sértæka skuldaaðlögun? Komdu í næsta útibú og talaðu við okkur. Sértæk skuldaaðlögun hentar þeim sem skulda umfram greiðslugetu en geta þó greitt af láni sem nemur að lágmarki 80% af markaðsvirði fasteignar. • Þú greiðir af skuldum eins og greiðslugeta leyfir • Arion banki getur fallist á eftirgjöf krafna á móti • Þú fyrirgerir ekki rétti þínum samkvæmt dómi, lögum eða ákvörðun stjórnvalda • Einstaklingur í sértækri skuldaaðlögun fer ekki á opinbera vanskilaskrá Við hjá Arion banka höfum lagt mikla vinnu og metnað í að koma til móts við þarfir viðskiptavina okkar með íbúðalán. Um þrjú þúsund viðskiptavinir hafa þegar nýtt sér lausnir bankans til höfuðstólslækkunar. Þar af er ungt fjölskyldufólk með sína fyrstu íbúð í miklum meirihluta. Ekki bíða. Kynntu þér lausnir okkar í lánamálum á arionbanki.is eða komdu og hittu okkur í næsta útibúi. Menn vita ekkert í sinn haus. Það veit enginn neitt. Inni á samgönguáætlun eru 4,6 milljarðar en það er ekkert í hendi að þeir verði notaðir. En við höfum alltaf búið við óöryggi. Það er gegnum gangandi í þessu starfi. Þetta er bölvaður barningur og óvissan mikil. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is fréttaskýring 29 Helgin 15.-17. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.