Fréttatíminn - 15.10.2010, Page 14

Fréttatíminn - 15.10.2010, Page 14
Agil eru nett og nýtískuleg í hendi en nánast ósýnileg á bak við eyra © 20 10 O tic on In c. A ll Ri gh ts R es er ve d. Pantaðu tíma í heyrnarmælingu í síma 568 6880 og prófaðu Agil ...og njóttu þess að heyra með Agil heyrnartækjum Komdu út úr skelinni... Áttu í erfiðleikum með að heyra í fjölmenni eða klið? Finnst þér aðrir tala lágt eða óskýrt? Tekur þú sjaldnar þátt í hópumræðum en áður? Allt þetta getur verið merki þess að heyrn þín sé farin að versna. Agil eru byltingarkennd ný heyrnartæki sem hjálpa þér að heyra betur með minni áreynslu. Tölvuörflagan í Agil er helmingi öflugri en áður hefur þekkst en tækin eru samt um helmingi minni en hefðbundin heyrnartæki og búa þar að auki yfir þráðlausri tækni. Ekki draga þig í hlé vegna heyrnarskerðingar. Komdu út úr skelinni og njóttu þess að heyra eins vel og mögulegt er með Agil heyrnartækjum. G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 Re y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s Allar upplýsingar á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda. Net fang: baekur@simnet . is Til bókaútgefenda: Bókatíðindi 2010 Skilafrestur vegna kynninga og auglýsinga í Bókatíðindin 2010 er til 20. október nk. Bókatíðindum verður sem fyrr dreift á öll heimili á Íslandi. Frestur til að leggja fram bækur vegna Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2010 er til 20. október nk. www.bokautgafa. is Íslensku bókmenntaverðlaunin Þ að hefur varla farið fram hjá nokkr-um íþróttaáhugamanni að Guðjón Þórðarson er tekinn við knattspyrnu- liði BÍ/Bolungarvíkur. Eins og margoft hefur komið fram er þetta ein óvæntasta, ef ekki allra óvæntasta, knattspyrnustjórar- áðning síðustu ára í íslenskri knattspyrnu. Það sem menn velta eflaust helst fyrir sér er hvernig fótboltalið vestur á fjörðum, sem ekki alls fyrir löngu spilaði í 3. deildinni, hafi fjármagn og aðdráttarafl til að ráða til sín einn reyndasta og farsælasta þjálfara Ís- lands síðustu árin. Sparisjóður Keflavíkur hefur verið einn helsti styrktaraðili liðsins undanfarin ár. Samkvæmt heimildum er lík- legt að hann verði það áfram en samningar eru lausir. Einnig eru fjársterkir einstaklingar á Ísafirði, í Bolungarvík og víðar duglegir að styðja við bakið á liðinu. Vel þekkt er að margir þokkalega vel stæðir útgerðarmenn á Vestfjörðum eru ýmist fyrrum fótbolta- menn, núverandi fótboltamenn eða eiga einfaldlega vini og vandamenn í liðinu og vilja því vel. Það er því hægt að velta fyrir sér hvort útgerðarmenn séu að blása til sóknar. Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst er útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason, sem þekktastur er fyrir tengsl sín við Stím, stór styrktaraðili og situr bróðir hans Guðbjartur í stjórninni. Auk þessara styrkja er hafin leit að fleiri styrktaraðilum og segir Samúel Samúelsson, formaður knattspyrnudeildar félagsins, liðið vera með allar klær úti. Spurður hvort ráðning Guðjóns hafi ekki aukið áhuga einstaklinga og fyrir- tækja á liðinu svarar Samúel: „Athygli fylgir velgengni.“ Síðast en ekki síst hafa leikmennirnir sjálfir verið iðnir við að afla liðinu fjár. Auk þess að vera dug-  Fótbolti útgerðarmenn blása til sóknar Stjórnarformaður Stím styrkir BÍ Guðjóns Jakob Valgeir Flosason, einn af eigendum hins fræga félags Stím, og útgerðarfélagar hans leggja mikla peninga í lið BÍ/Bolungarvíkur. Guðjón Þórðarson gerir miklar kröfur til sjálfs sín og þeirra sem standa í kringum þau félög sem hann starfar í. Ljósmynd/Hari Fólkið jákvætt og metnaðarfullt Mikil eftirvænting er meðal leikmanna og bæjarbúa á Ísafirði og í Bolungar- vík yfir komu Guðjóns Þórðarsonar. Sjálfur er hann afar ánægður með komuna vestur og segir verkefnið mikla áskorun. „Það kom mér líka á óvart hvað fólkið í stjórninni er jákvætt og metnaðarfullt. Það er mikill hugur í þessu fólki,“ segir hann. Guðjón heldur sína fyrstu æfingu um helgina og fær þá nasasjón af því hvernig leikmönnum hann hefur úr að moða. Sjálfur segist hann reikna með að styrkja hópinn. Ekkert er þó farið að gerast í þeim málum. „Ég ætla að skoða hópinn fyrst en er með ákveðna menn í huga sem ég vil fá til liðsins,“ segir Guðjón. legir við að landa fiski fyrir sjómenn, vakti það mikla athygli á síðasta ári þegar BÍ/ Bolungarvík gaf út nektardagatal þar sem fáklæddir leikmenn liðsins sýndu stæltan kroppinn. Dagatalið sló í gegn og seldist eins og heitar lummur, bæði hérlendis og erlendis. Vestfirsku strákarnir hanga því víða hálf- naktir uppi á vegg á Ítalíu, Spáni og í Banda- ríkjunum. Þetta framtak skilaði vel af sér í kassann. Ekki veitir af þar sem Guðjón sættir sig eflaust ekki við einhverja tíkalla í mánaðar- laun. Spurður hvort BÍ/Bolungarvík sé komið með launahæsta þjálfara Íslands í sínar raðir segist Samúel ekki þora að full- yrða það, en hann sé þó á sanngjörnum launum. Sjálfur segist Guðjón sáttur við sitt og ekki vita hvað aðrir hafa í laun. -þev Vestfirsku strákarnir hanga því víða hálf- naktir uppi á vegg á Ítalíu, Spáni og í Bandaríkj- unum. „Ég fer vart út úr húsi og allir hlut- ir sem ég þarf að gera reynast mér erfiðir ...“ „Lögreglan svívirti mig á hrottaleg- an hátt.“ Viðtal við Maríu Bergsdóttur Síða 24  14 fréttir Helgin 15.-17. október 2010

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.