Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 18
H ver er Rúna Magnúsdótt-ir? Hún er áhugaverð. Það segir viðskiptatímaritið For-
bes, sem setti hana á lista yfir tutt-
ugu konur í alþjóða viðskiptalífinu
sem vert sé að fylgjast með á Twit-
ter. Rúna hlær dillandi hlátri. „Já, ég
frétti þetta frá konu sem býr í San
Francisco í Bandaríkjunum. Hún er
uppalin á Seltjarnarnesi, eins og ég,
og fannst við því tengjast. Hugsaðu
þér; um helgina streyma hingað kon-
ur til að læra að markaðssetja sig.“
Það hefur tveggja barna móður-
inni Rúnu tekist svo vel að eftir er
tekið - erlendis. „Og nú vinn ég við að
laða fram hæfileika fólks, því það get
ég. Sem kona vissi ég af þeim grillum
sem við setjum í kollinn á okkur um
að við getum ekki og kunnum ekki.“
Sjálf hafi hún losað sig við slíkt fyrir
löngu. „Þegar þetta er í kollinum á
okkur. Hver annar stoppar okkur þá
af?“ Hún segir mikilvægt að hlusta
á fleiri raddir; beggja kynja á öllum
aldri. „Við þurfum að vinna í því að
horfa á glasið hálffullt, en ekki hálf-
tómt. Við það breytist fókusinn.“
Hvað gerir Rúna?
Rúna er eigandi Connected-Women.
com vefjarins, sem er samskiptanet
metnaðarfullra kvenna sem vilja
vera sýnilegar og skara fram úr.
Hún stofnaði einnig BRANDit með
Bjarneyju Lúðvíksdóttur og hinni
bandarísku Mary Schnack. Erlendu
konurnar, sem Rúna nefndi hér að
ofan, koma hingað til lands til að
sækja námskeið á vegum þess. Þar
er markið að endurstilla eldmóðinn
til vinnunnar, setja sér framtíðar-
áætlanir og móta ímynd sína svo
hægt sé að setja hana fram á hnit-
miðaðan máta. Þegar hafa þó nokkur
námskeið fyrir íslenskar konur farið
fram og stefnt á námskeið bæði í Hol-
landi og Bretlandi. Þá kynna þúsund-
ir kvenna frá yfir sjötíu löndum sig
á Connected-Women vefnum. „Mig
langaði að búa til vettvang þar sem
konur gætu sett inn upplýsingar
um hvað þær gerðu, hvaða þekk-
ingu þær hefðu en einnig þar sem
þær gætu skrifað greinar, birt af sér
myndir og sett fram skoðanir sínar.
Þar væri hægt að tengja konur um
allan heim.“ BRANDit sé hins vegar
afsprengi vefjarins en einnig fram-
taki sjálfstæðiskvenna frá því í vor
þar sem um eitt þúsund konur tóku
þátt í leiðtoganámskeiði.
„Þegar við höfðum hlustað á
hundruð kvenna segja frá sýnum
sínum stóðum við Bjarney Lúðvíks-
dóttir eftir gapandi: Vá, ef við gætum
bara séð þessar hugmyndir verða
að veruleika.“ Hún gleymi aldrei
orðum einnar sem sótti BRANDit
vinnustofuna og sagði: „Ég labbaði
inn með hnullung en fór út með slíp-
aðan demant. Við fengum sæluhroll
og stefnan var sett.“
Hvað finnst Rúnu um konur?
Rúna segir konur ekki alltaf hafa
leyft sér að setja metnaðinn í fyrsta
sæti. „Þar sem við höfum margar
einblínt á fjölskyldulíf okkar höfum
við ekki leyft okkur að hugsa stórt.
Þar af leiðandi erum við konur lítil-
látar, ljúfar og kátar og ánægðar með
það sem við höfum. Það er ekkert að
því. Það hefur hins vegar leitt af sér
að við höfum ekki byggt upp tengsla-
net okkar eða hugleitt að við þurfum
að hafa í kringum okkur fólk sem
hjálpar okkur upp metorðastigann,“
segir hún og nefnir að konur verði
einnig að vera óhræddar við að deila
sigrum sínum með öðrum.
„Það á að sjálfsögðu við um bæði
kynin. Um leið og við tökum þá
ákvörðun að draga úr því sem við
höfum og bíða eftir því að aðrir taki
eftir því sem við gerum, getur það
endað þannig að við séum komin á
grafarbakkann og enginn tók eftir
verkum okkar.“ Hún vitnar í sögur af
heilbrigðisstarfsfólki sem vinni með
dauðvona fólki. „Þeir sjúku tala síður
um að þeir sjái eftir að hafa gert eitt-
hvað heldur sjá þeir frekar eftir að
hafa ekki gert það sem þá langaði
alltaf til.“
Hún vitnar í Napoleon Hill sem
skrifaði um hugarfar sigurvegara í
Bandaríkjunum í heimskreppunni.
„Bakgrunnur fólks sem náði árangri
í kreppunni 1929 skipti ekki máli.
Það sem skipti máli var að það hafði
markmið, það hafði sýn. Það vissi
hvað það var að gera, hafði eldmóð
og hafði fólk í kringum sig til að
komast leiðar sinnar,“ segir hún.
Hvað finnst Rúnu um ástandið?
Rúnu langar oft til að hrista upp í ís-
lensku samfélagi um þessar mundir.
„Við breytum ekki því sem búið er
að gera. Við getum lært af því og við
getum ákveðið hvernig við viljum sjá
hlutina gerða í framtíðinni. Ég held
að staðan væri talsvert önnur gætum
við horft fram á veginn á framtíð sem
við gætum tengt okkur við,“ segir
hún og hamrar á mikilvægi þess að
virkja leiðtogann í sjálfum sér og
samfélaginu.
„Í Kúbudeilunni sagði John F.
Kennedy Bandaríkjaforseti að lands-
menn ættu eftir að sjá mann stíga
fæti á tunglið. Hann fékk heila þjóð
til að trúa því að hún væri sérstök,
hæfileikarík, hefði tækifærin og
möguleika. Þarna fór leiðtogi,“ seg-
ir hún. „Þeir sem setja sér markmið
eru þeir sem koma til með að skara
fram úr. Það verða alltaf hindranir,
það er partur af lífinu. Ef við ætlum
að horfa á vegginn og vera pirruð
yfir því að vera komin upp að hon-
um, verðum við föst þar og komumst
ekki burt.“
Rúna segir einsleitnina hafa fellt
Ísland. „Við stóluðum aðeins á annað
kynið, ungan aldur og litla þekkingu
og reynslu,“ segir hún. „Sussað var á
eldra fólk. Ef við ætlum að byrja upp
á nýtt þurfum við að horfa á þessa
hluti. Sýn mín er að berjast fyrir því
að raddir kvenna fái að heyrast,“
segir Rúna. „Reynsla okkar var dýr-
keypt. Við eigum að nýta hana.“
Breytir Forbes stefnu Rúnu?
Rúna er stjórnendamarkþjálfi sem
hjálpar fólki að ná árangri. „Enginn
úti í hinum stóra heimi hefur náð
framúrskarandi árangri án mark-
þjálfa, því þeir virkja hæfileika fólks.“
En gerir Forbes-athyglin Rúnu ríka?
„Já, ég verð rík - rík af reynslu.
Draumur minn er þó fyrst og fremst
að konur nýti Connected-Women sér
til framdráttar.“En breytir athyglin
stefnu Rúnu? „Ég held mínu striki.
Ég er margsinnis búin að sjá það að
fólkið sem ég vinn með og fylgist
með er það sem skapar hlutina.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Íslenskar atHafnakonur rúna ÁHugaverðust um þessar mundir
Óþarfar grillur kvenna
Nýherji hf. Borgartún 37 / Kaupangur Mýrarvegi, Akureyri Sími 569 7700 www.netverslun.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
9
3
6
Hugbúnaður
Microsoft hefur uppfært verkfærakistuna fyrir Office 2010. Í henni eru fjölmargar nýjungar
sem hjálpa fyrirtækjum að koma hugmyndum sínum á framfæri á skýran og aðgengilegan
hátt. Það eru margar gildar ástæður fyrir því að fá sér Office 2010 skrifstofuhugbúnaðinn.
Fjarstýrðu kynningunni
Nýttu þér Broadcast Slideshow þegar þú vilt kynna vöru og þjónustu með PowerPoint í gegnum
vefinn. Þú stýrir kynningunni í gegnum þína tölvu og viðskipavinir fylgjast með á sínum skjá.
Komdu á skipulagi
Haltu utan um hugmyndir og glósur í OneNote og leyfðu öðrum að sjá eða breyta með
OneNote Shared Notebook á vefnum.
Aukin samvinna
Með Office 2010 geta fleiri en einn unnið í sama skjalinu hvort sem það er í gegnum netið,
tölvuna eða farsímann.
Myndrænni gögn
Öflugri myndbirting gagna í Excel töflureikni. Nú getur þú eytt meiri tíma í greiningu
gagna í stað útfærslu þeirra.
Kynntu þér fleiri frábærar nýjungar Office 2010 á www.nyherji.is
Betri VerKFÆri
Rúna Magnúsdóttir fann að hún hafði hæfileika og að hann væri að kalla fram það besta í fólki. Hún
setti sér markmið og ýtti vanmáttarkenndinni til hliðar því eins og hún segir þá stöðvar mann eng-
inn nema maður sjálfur. Viðskiptatímaritið Forbes hefur nú sett Rúnu á lista yfir áhugaverðar konur.
Bakgrunnur fólks sem náði árangri í krepp-
unni 1929 skipti ekki máli. Það sem skipti máli
var að það hafði markmið, það hafði sýn.
Rúna reikn-
ar með að
athyglin
sem Forbes
beindi
að henni
geri hana
ríka – ríka
af reynslu.
Hún er
á topp
tuttugu
yfir konur
sem vert er
að fylgjast
með á
samskipta-
vefnum
Twitter.
Munið vinsælu gjafabréfin okkar
Sportúðin - Krókhálsi 5 - 517 8050 • Veiðihornið - Síðumúla 8 - 568 8410
veidihornid.is - sportbudin.is
Gott úrval – Gott verð
Góð greiðslukjör
Ódýrustu gæsaskotin á markaðnum?
Rio 42 gr. 2 ¾“ skot aðeins 1.895 og 50 gr. 3“ skot aðeins 2.395
Sellier & Bellot 42 gr. 2 ¾“ skot aðeins 2.195 og 53 gr. 3“ skot aðeins 2.595
Stoeger M2000 Standard
Bakslagsskift byssa með hnotuskeftum.
Snúningsboltinn frá Benelli.
Verð aðeins 92.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
15.948 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Stoeger M2000 Synthetic
Bakslagsskift byssa með plastskeftum.
Snúningsboltinn frá Benell.
Verð aðeins 89.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
15.433 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Stoeger M2000 MAX4
Bakslagsskift byssa í felulitum.
Snúningsboltinn frá Benelli.
Verð aðeins 99.900.
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
17.150 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Stoeger P350 Synthetic
Pumpa með svörtum skeftum. Tekur öll skot.
Snúningsboltinn frá Benelli.
Verð aðeins 61.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
10.626 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Stoeger P350 MAX4
Pumpa í felulitum. Tekur öll skot.
Snúningsboltinn frá Benelli.
Verð aðeins 65.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
11.313 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Escort Supreme
Hálfsjálfvirk, gasskift byssa
með hnotuskeftum.
Verð aðeins 94.900 5% staðgreiðsluafsláttur
eða aðeins 16.291 á mánuði
í 6 mánuði vaxtalaust
Escort Xtreme
Hálfsjálfvirk, gasskift byssa með plastskeftum.
Verð aðeins 84.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða
aðeins 14.575 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Escort PS
Hálfsjálfvirk, gasskift byssa
með plastskeftum.
Verð aðeins 74.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða
aðeins 12.858 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Escort Combo
Hálfsjálfvirk, gasskift byssa í felulitum.
2 hlaup og hörð taska.
Verð aðeins 125.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða
aðeins 21.612 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Beretta ES Synthetic
Bakslagsskift byssa með plastskeftum.
Svart láshús.
Verð aðeins 159.900
5% staðgreiðsluafsláttur
eða aðeins 27.450 á mánuði
í 6 mánuði vaxtalaust
Beretta ES Synthetic
Bakslagsskift byssa með plastskeftum.
Hvítt láshús.
Verð aðeins 165.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
28.480 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Beretta ES Standard
Bakslagsskift byssa með hnotuskeftum.
Svart láshús.
Verð aðeins 169.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða
aðeins 29.166 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Beretta ES Standard
Bakslagsskift byssa með hnotuskeftum.
Hvítt láshús.
Verð aðeins 175.900
5% staðgreiðsluafsláttur
eða aðeins 30.196 á mánuði
í 6 mánuði vaxtalaust
Escort Fieldhunter
Pumpa með svörtum skeftum.
Líklega sú ódýrasta á markaðnum.
Verð aðeins 55.900. 5% staðgreiðsluafsláttur
eða 9.596 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Escort Marinehunter
Pumpa með svörtum skeftum.
Vinsæl í sjófuglinn og slarkið.
Verð aðeins 68.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
11.828 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Escort Marineguard
Pumpa með svörtum skeftum.
Vinsæl í sjófuglinn og slarkið.
Verð aðeins 59.900 5% staðgreiðsluafsláttur
eða aðeins 10.283 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust.
Optima B12
Yfir / undir tvíhleypa.
Verð aðeins 109.900 5% staðgreiðsluafsláttur
eða aðeins 18.866 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Optima S12
Yfir / undir tvíhleypa.
Verð aðeins 109.900 5% staðgreiðsluafsláttur
eða aðeins 18.866 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Optima Silver Select
Yfir / undir tvíhleypa. Verð aðeins 129,900.
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
22,300 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Boito Miura Competition
Yfir / undir tvíhleypa. Verð aðeins 159,900.
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
27,450 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Boito Miura Combo
Yfir / undir tvíhleypa. 2 hlaup (12 gauge og 20 gauge).
Verð aðeins 169.900 5% staðgreiðsluafsláttur eða
aðeins 29.166 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Boito Miura 1
Yfir / undir tvíhleypa. Verð aðeins 99.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
17.150 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust
Boito A680
Hlið við hlið tvíhleypa. Verð aðeins 89.900
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
15.433 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust.
Boito Silverado
Hlið við hlið tvíhleypa. Verð aðeins 99.900.
5% staðgreiðsluafsláttur eða aðeins
17.150 á mánuði í 6 mánuði vaxtalaust.
18 viðtal Helgin 15.-17. október 2010