Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 24
„Ég vakna iðulega upp á næturnar og
sé fyrir mér andlit lögreglumannsins
sem lá þétt upp að mér og hélt hönd-
um mínum föstum. Ég sé fyrir mér
glottið og fullnægju þess valdasjúka
að ná fram vilja sínum með því að sví-
virða mig á eins hrottafenginn hátt og
hægt er að gera nokkurri manneskju.
Og það af valdhafanum í þessu landi;
sjálfri lögreglunni sem okkur er kennt
ungum að sé okkur til verndar og að
til lögreglumanna eigi maður að bera
traust,“ segir María Bergsdóttir sem
varð fyrir þeirri skelfilegu lífreynslu
í mars 2007 að vera tekin með valdi af
hópi einkennisklæddra karlmanna og
einni konu og þvinguð inn í fangaklefa.
Þar var með ofbeldi og pyntingum náð
frá henni þvagsýni og notaður til þess
þvagleggur.
„Ég gat ekki annað merkt af fram-
komu þess lögreglumanns sem stjórn-
aði aðgerðum og hélt efri hluta líkama
míns föstum, að honum þættu þessar
aðfarir ekki slæmar; þvert á móti get
ég ekki varist þeirri hugsun að hann
hafi notið þess að beygja mig í duftið,“
áréttar María og bætir við: „Mér fannst
hann gera þetta í skjóli stöðu sinnar,
upphafinn í einkennisfatnaði sem
sýndi, svo ekki leyndi sér, hver staða
hans væri,“ segir hún og það má heyra
að henni er ekki létt að rifja þetta upp.
Óhrein og svívirt
Eftir að þvagdropunum sem María
hafði ekki fundið þörf fyrir að koma
frá sér var náð, þusti allur hópurinn út
úr klefanum og skellti á eftir sér Eftir
sat hún, algjörlega stjörf, og velti fyrir
sér hvort hana hefði dreymt þetta. Það
gat ekki verið að lögreglan hegðaði sér
á þennan hátt á 21. öldinni.
„Ég var í taugasjokki, mér fannst ég
vera óhrein, svívirt, og upplifði að mér
hefði verið nauðgað af fjölda manns á
hrottalegan hátt. Þannig leið mér og
þannig líður mér enn,“ rifjar hún upp
og bætir við að hún muni fátt frá þess-
ari nótt; hvort hún vakti eða svaf, skalf
og nötraði af ekka og gráti.
„Nei, það þurrkaðist út úr heila mín-
um og ég man heldur ekki eftir að hafa
látið öllum illum látum eins og fram
kemur í dómnum eða hótað einum né
neinum, en ég veit að ég er reið, alveg
ofboðslega reið. Það háir mér því það
bitnar á þeim sem næst mér standa,“
segir hún og lítur á manninn sinn, Óla
Friðberg Kristjánsson, sem segir að
það sé í lagi ef það hjálpi henni.
„En mér finnst konan mín ekki sú
sama og hún var, þetta hefur haft gífur-
leg áhrif á hana og allt hennar líf. Hún
fer varla út úr húsi, á erfitt með að vera
innan um fólk, er með stöðugan kvíða-
hnút og ávallt vör um sig,“ segir hann
en neitar því samt ekki að þrátt fyrir að
þau hafi gengið í gegnum allan tilfinn-
ingaskalann í þessum þrengingum,
hafi þetta atvik þjappað þeim saman.
Leið eins og mér hefði verið
nauðgað
Þegar himnarnir hrundu yfir Maríu og
hennar nánustu þennan örlagaríka dag
í mars fyrir bráðum fjórum árum voru
þau Óli og María í heimsókn hjá bróð-
ur hans fyrir austan Hvolsvöll. María
fullyrðir að hún hafi aðeins drukkið
tvö til þrjú rauðvínsglös með matnum
fyrr um kvöldið. Hún hélt síðan heim á
leið upp úr miðnætti einsömul þar sem
bræðurnir voru komnir í stuð og vildu
skemmta sér áfram.
„Ég hélt því af stað heimleiðis um
miðnættið. Eftir að hafa ekið í nokkrar
mínútur áttaði ég mig á því að vegurinn
var eins og skautasvell og dansaði á
veginum. Áður en ég vissi af missti ég
stjórn á honum og fór út af veginum.
Líklega hef ég skollið með höfuðið í
rúðuna og vankast. Veit ekki hve lengi,
en það kom fólk að og spurði hvort allt
væri í lagi og ég svaraði því til að allt
væri í lagi með mig og sagði þeim sem
spurðu hvort hringja ætti á sjúkrabíl að
það væri óþarfi, ég myndi bjarga mér.
Þrátt fyrir það hringdi einhver á lög-
reglu og sjúkrabíl og ég var strax flutt
inn í hann. Lögreglan kom og spurði
hvort ég vildi blása og ég sagði það
sjálfsagt og blés. Það mældist eitthvert
áfengismagn og þá spurðu þeir hve
mikið ég hefði drukkið og hve langt
væri síðan. Ég sagði eins og var, en illu
heilli bætti ég við að ég hefði fengið
eitthvað að drekka hjá vegfarendum
sem komu á slysstað. Áður höfðu þeir
spurt hvort ekki væri í lagi að taka blóð-
sýni og ég rétti fram handlegginn og
þeir fengu sitt sýni. En þegar lögreglu-
mennirnir heyrðu að ég hefði drukkið
eitthvað á síðustu klukkustund, vildu
þeir fá þvagsýni. Mér skilst að það sé
hægt að mæla nákvæmar með bæði
blóð- og þvagsýnum,” rifjar María upp.
Eftir að lögreglan varð þess áskynja
að áfengi mældist í henni segist hún
hafa orðið vör við gjörbreytt viðhorf
hjá þeim. Þeir hafi breyst í viðmóti
við hana, einkum sá sem stjórnaði, og
töluðu til hennar bæði með hroka og
dónaskap.
„Þegar ég sagðist því miður ekki
geta gefið þeim þvagsýni vegna þess
að mér væri ekki mál, ég gæti hrein-
lega ekki kreist úr mér dropa, skipti
það engum togum að þeir rifu mig út
úr sjúkrabílnum, köstuðu mér inn í
lögreglubílinn og óku með mig beint
í fangageymsluna. Á leiðinni fullviss-
uðu þeir mig um að þeir myndu ná úr
mér þvagsýni með góðu eða illu. Ég
hefði ekkert um það að segja. Það væru
verklagsreglur hjá þeim að ef þeir teldu
nauðsynlegt að fá þvagsýni þá tækju
þeir það,“ segir María.
Hún segir upplifun sína í fanga-
klefanum óhugnanlega. „Ég trúði
varla mínum eigin eyrum en þegar í
fangaklefann var komið fylltist hann
af mönnum. Auk lögreglumannanna
mætti ungur læknir og hjúkrunar-
fræðingur. Ég gat enga björg mér veitt,
heldur lögðust á mig fimm karlmenn
og með aðstoð læknis og hjúkrunar-
fræðings var eins og mér væri nauðg-
að á hörðum steinbekknum. Ég er ör-
yrki eftir vinnuslys og slæm í öxlum og
þegar hendur mínar voru teknar upp
yfir höfuð með valdi og fruntaskap,
fannst mér eins og verið væri að rífa
mig í sundur. Ég er ekki viss um að ég
hafi verið með meðvitund eða hvort
sjokkið var svo mikið að ég man óljóst
eftir þessari skelfilegu valdbeitingu, en
svo mikið er víst að þegar þeir höfðu
fengið sitt, þá stukku allir út og skelltu
á eftir sér klefahurðinni en eftir lá ég í
sjokki, ber að neðan. Þá fann ég fyrst
fyrir hve svívirt ég hafði verið; já, ekki
bara svívirt, heldur leið mér eins og
mér hefði verið nauðgað hryllilega í
margra manna ásýnd. Enginn hirti um
að hjálpa mér í fötin eða hlúa að mér á
nokkurn hátt. En slíka mannvonsku og
mannfyrirlitningu sem mér var sýnd
þarna taldi ég fyrir þennan atburð að
ég ætti ekki eftir að upplifa. Og það af
hendi löggjafans sem á að vera okkur
borgurunum til verndar,“ segir María
og rifjar upp að þegar hún var barn og
unglingur á ráfi um miðbæinn innan
um allrahanda lið, róna og og glæpa-
menn, hafi aldrei verið skert hár á höfði
hennar.
„Ég man ekki hvort ég svaf, vakti eða
grét þessa nótt en þegar mér var sleppt
var ég dofin, andlega og líkamlega. Ég
hafði ekki einu sinni rænu á að hringja
í manninn minn, ég stóð bara og starði
út í loftið og vissi ekki hvert ég átti að
fara. Til allra heilla hringdi maðurinn
minn í mig þar sem ég stóð fyrir utan
lögreglustöðina og heyrði að eitthvað
mikið var að og sagði mér að bíða, hann
kæmi strax.“
Óli grípur inn í og segist varla hafa
þekkt konuna sína þegar hann hitti
hana. „Hún var í sjokki og var lengi að
reyna að segja mér hvað hafði gerst.
Hún skalf og nötraði og grét viðstöðu-
laust,“ segir hann og bætir við að hon-
um hafi verið mjög brugðið. Í raun hafi
hann ekki enn fengið aftur konuna sem
hann kynntist. Þó kæmu dagar þegar
brúnin á honum lyftist og vonin um að
hún væri að ná sér hefði yfirhöndina.
„Síðan þarf ósköp lítið að gerst til að
hún falli aftur inn í sjálfa sig og brosið
hennar, sem er svo fallegt, fæ ég alltof
sjaldan að sjá,“ svarar hann þegar hann
er spurður hvaða áhrif þessi valdníðsla
hafi haft á samband þeirra. Bætir síðan
við, eftir dálitla umhugsun, að reiðin
sem búi innra með henni og hún geti
ekki losað sig við, sé þeim báðum erfið.
Gef manninum mínum kjaftshögg
María bætir því við að því miður missi
hún stundum stjórn á skapi sínu og þá
sé maðurinn hennar blóraböggullinn.
„Stundum hef ég gefið honum kjafts-
högg fyrirvaralaust, já, án þess að átta
mig á því. Mér svíður það því allra síst
langar mig að beita manninn minn of-
beldi eða vera honum reið. En innra
með mér bullar reiðin og ég hef gert
ýmislegt til að vinna úr henni og losa
mig við hana. Ég hef leitað mér hjálpar
hjá Stígamótum og er í mánaðarlegum
viðtölum hjá geðlækni en ég held að ég
muni aldrei ná mér ef ég get ekki farið
í einkamál við lögreglumennina sem
fóru svona með mig. Það var algjörlega
óþarfi að taka þetta þvagsýni þar sem
það sýndi ekkert sem blóðprufurnar
sýndu ekki. Auk þess var ég öll mar-
in og blá eftir átökin við að ná úr mér
þessum fáu dropum, og önnur höndin
á mér er hálflömuð eftir meðferðina,“
segir hún og sýnir að hún getur ekki
lyft upp hægri hönd nema til hálfs.
Óli, maðurinn hennar, grípur inn í
og segir að það sé til boxpúði sem hún
geti lamið, en María segist því miður
ekki geta lamið af neinum krafti. „Það
væri gott ef ég gæti ímyndað mér að ég
væri að lúskra á þeim sem verst fóru
með mig. Ég er bara ekki orðin nógu
góð enn og veit ekki hvort ég verð það
nokkurn tímann. Ég trúi því þó að tím-
inn hjálpi mér. Þótt ég viti að ég eigi
eftir að lifa með þessar minningar alla
ævi, þá stefni ég að því að læra að lifa
með þeim og geta lifað eðlilegu lífi. Það
er svo fjarri lagi að ég geti það núna. Ég
er ekki einu sinni fær um að hafa börn-
in mín hjá mér, en þau eru hjá föður sín-
um. Þau vilja auðvitað vera hjá mömmu
sinni en ég ræð ekki við að vera með
þau. Ég fæ þau til mín og það er yndis-
legt, með þeim næ ég að gleyma van-
líðan minni og kvíðahnúturinn í mag-
anum er ekki eins sár,“ segir hún og í
myrkum augum Maríu glittir í glampa
þegar hún talar um börnin sín sem eru
ellefu og fimmtán ára auk elsta sonar-
ins sem kominn er yfir tvítugt.
Þá fann ég fyrst fyrir því hve svívirt ég hafði verið, já,
ekki bara svívirt, heldur leið mér eins og mér hefði
verið nauðgað hryllilega í margra manna ásýnd.
María Bergsdóttir vakti athygli þegar hún lenti í hat-
römmum átökum við lögregluna í mars 2007. Líf hennar
breyttist á svipstundu þegar lögreglumenn þröngvuðu
þvaglegg upp í líkama hennar þegar hún, grunuð um
ölvunarakstur, neitaði að gefa þvagsýni. Hún upplifði
framferði lögreglunnar sem nauðgun, fannst hún óhrein
og svívirt. Hún er með brotna sjálfsmynd í dag og fer
vart út úr húsi. Bergljót Davíðsdóttir ræddi við Maríu.
Lögreglan svívirti
mig á hrottalegan hátt
Dómurinn
María var
dæmd í 30
daga skilorðs-
bundið fangelsi
og svipt
ökuleyfi í eitt
ár í dómsmáli
sem höfðað
var gegn henni
eftir atburðina
í mars 2007.
Hún var dæmd
fyrir brot gegn
valdstjórninni
með því að
hóta lögreglu-
fólki lífláti.
24 viðtal Helgin 15.-17. október 2010