Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 32

Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 32
2 heimilistíminn Helgin 15.-17. október 2010 TVÆR KONUR 2 30 Days (120 töflur)ásamt OxyTarm (60 eða 150)töflur gegn kviðfitu gefur 35% meiri virkni. JÁKVÆÐAR NÝJUNGAR 30 Days 120 töflur ásamt samnefndu kremi vinnur á appelsínuhúð STÖÐVIÐ SYKUR OG KOLVETNI NÝJUNG! BRENNIÐ FITU Valin heils uvar a árs ins 2008 B e t r i a p ó t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s & R á ð la g t a f m e ltin g a rlæ k n u m o g h e ils u s é rfræ ð in g u m Sykurveiðarinn Suco Bloc. 180 töflur. Hentar öllum, stöðvar sykurinn áður en hann verður að fitu. F Á K A F E N I 9 - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0 O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6 www.gabor.is Sérverslun með HEILSUSKÓR St. 35-44 Verð 7.495.- Fyrsta flokks innlegg Bleikur Macadam- fellistóll frá Habitat. 3.900 kr. V ík Prjónsdóttir er ekki ein manneskja heldur margar. Í fyrirtækinu, sem var stofnað árið 2005 af fimm hönnuðum, eru þrír þeirra starfandi fyrir Vík Prjónsdótt- ur; Brynhildur Pálsdóttir, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Þuríður Rós Sigurþórsdóttir. „Við notum sögur til að sameinast í hönnunarferlinu. Við hönnun á okkar fyrstu vörulínu sóttum við í gamlar ís- lenskar þjóðsögur sem eiga rætur að rekja til Víkur eins og sagan Selsham- urinn. Vík Prjónsdóttir hefur hins vegar tekið út ákveðinn þroska síðan þá og hefur ferðast um allan heim. Því eru sögurnar sem við unnum með í þessari nýju vörulínu mun alþjóðlegri en eiga það þó sameiginlegt að þær tengjast íslenskri tilveru á einn eða annan hátt. Þar má nefna teppið Dul- arhjúpinn sem vísar til hulduheima,“ segir Brynhildur Pálsdóttir. Hugmyndavinnan að þessari nýju vörulínu fór fram að hluta til á Vest- fjörðum þar sem sterk nærvera hafarnarins varð kveikjan að tepp- inu Verndarvængurinn. „Haförninn er konungur fuglanna, þokkafullur og tignarlegur með vænghaf allt að tveimur og hálfum metra. Sá sem sveipar sig teppinu er með vænghaf arnarins.“ En af hverju valdi Vík Prjónsdóttir að hanna teppi? „Markmiðið var að búa til vörur sem væru bæði skemmtilegar og áhugaverðar og sem fólk vildi eignast. Það eru allir með teppi í sófanum sínum og það á sér langan líftíma og er á mörkum þess að vera hlutur eða flík. Fólk á teppin í mörg ár og þau erfast jafnvel kynslóða á milli. Gott teppi stuðlar að samskiptum og nánd því maður býður ekki hverjum sem er undir teppi með sér.“ Hvatinn var ekki bara sá að búa til skemmtilegar vörur heldur einnig sorgleg staða ullariðnaðarins eins og hann var árið 2005 þegar Vík Prjóns- dóttir varð til. „Það ár var krónan sterk og allir vildu flís. Við teljum mikilvægt að vinna með það hráefni sem er næst okkur, og á Íslandi er ekki um auðug- an garð að gresja, en ullin er það sem við eigum nóg af. Eitt af markmiðum okkar var að glæða íslenska ullariðn- aðinn lífi“ segir Brynhildur fyrir hönd Víkur Prjónsdóttur sem hefur ferðast um allan heim og vakið athygli hvar sem hún fer. Í rauðu sæti Rauður er sterkur og ögrandi litur sem nær alltaf athygli. Augað leitar hann uppi hvar sem hann er að finna; hann táknar kraft, er litur ástar- innar og gerir laufunum kleift að roðna á haustin. En hann er líka ósköp venjulegur litur sem frískar upp á umhverfi sitt hvar sem hann ber fyrir sjónir, sérstaklega ef honum er beitt þar sem umhverfið er annars litlaust eða í svart- hvítu. Hér eru nokkrir stólar í rauðum litum. Skærrauð Sjöa eftir Arne Jacobsen. Epal 52.800 kr. Eldrauður PS SÅGA-stóll. IKEA 9.950 kr. Basel-stóll í appelsínugulu eftir enska hönnuðinn Jasper Morrison fyrir Vitra. Viðarstóll með plastbaki og setu. Saltfélagið 66.511 kr. Y-stóllinn eftir danska hönnuðinn Hans J. Wegner er oftast í ljósum viðarlit en hér er hann unglegur og frískur í appelsínurauðu.  Hönnun – Vík Prjónsdóttir Brynhildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir með ullarteppið Dularhjúpinn. Ljósmynd/Hari Veröld undir teppi Um þessar mundir stendur yfir sýning á nýjustu ullarteppum Víkur Prjónsdóttur í Spark design space við Klapparstíg 33. Teppin eru öll unnin í samstarfi við Víkurprjón, elstu prjónastofu landsins, sem nýverið fagnaði þrjátíu ára starfsafmæli. Þau eru fjarri því að vera hefðbundin og bera nöfn eins og Verndarvængurinn og Snjóbreiðan. Haförninn er konungur fuglanna, þokkafullur og tignar- legur með vænghaf allt að tveimur og hálfum metra. Sá sem sveipar sig teppinu er með væng- haf arnarins.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.