Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 44
Á rangur Gunnars Nelson í íþrótt sinni er magnaður. Í sumar fór hann í efsta sæti íþróttavefjar-
ins MMA Spot yfir efnilegustu bardaga-
íþróttamenn heims í sínum þyngdarflokki.
Hann var einnig langyngstur þeirra sem
þar komust á blað. Gunnar hefur ekki tap-
að bardaga frá því hann steig fyrst inn í
keppnisbúrið í Kaupmannahöfn í maí árið
2007. Þeim bardaga lauk með því að hann
og andstæðingur hans, miklu reyndari
danskur kappi, skildu jafnir. Síðan þá hefur
Gunnar unnið átta keppnir og aldrei tapað.
„Mig langaði að prófa að keppa og fór
til Dublin þegar ég var 19 ára. Þar fékk ég
mjög góðan þjálfara, John Kavanagh, og
hann þjálfar mig enn þann dag í dag. Ég
æfði mig í mánuð fyrir bardagann og síðan
keppti ég. Það var fyrsti bardaginn minn
og hann endaði í jafntefli. Eftir það ákvað
ég að þetta væri það sem ég vildi gera. Ég
var auðvitað smá smeykur fyrir fyrsta bar-
dagann. Maður er náttúrlega kvíðinn til að
byrja með og þetta er alltaf smá stressandi
en síðan lærir maður að takast á við þessar
tilfinningar.“
Ekkert Mike Tyson-ævintýri
Þótt keppnisslagsmálin liggi svona vel
fyrir Gunnari segist hann ekki vera neinn
slagsmálahundur og saga hans sé langt í
frá að vera eitthvert Mike Tyson-ævintýri
þar sem götuslagsmálagutta var kippt inn
í hringinn svo að hann gæti farið að berja
menn fyrir peninga. „Ég hef alltaf haft
gaman af bardagaíþróttum og svoleiðis en
aldrei verið neinn hundur. Ég hef aldrei
verið með neitt ofbeldi og kæri mig ekkert
um slíkt.“
Snýst ekki um peninga
Gunnar gekk í Langholtsskóla og fór svo í
Menntaskólann við Sund að loknum grunn-
skóla. „Ég kláraði reyndar aldrei MS. Ég
hætti rétt fyrir próflok í þriðja bekk og fór
út að keppa og síðan tók sportið alveg yfir.“
Gunnar lifir á íþrótt sinni. Novator styrk-
ir hann með því að greiða ferðakostnað og
Peningar
virðast
alltaf hafa
dálítið nei-
kvæð áhrif
enda ekki
mjög eðli-
legur hlutur.
Gunnar Nelson er ósigraður í blönduðum bardagalistum (MMA) og talað er um hann sem hálfgert undrabarn í greininni. Kraftur hans þykir
með ólíkindum og ekkert truflar einbeitingu hans á meðan hann tekst á við andstæðinginn í bardagabúrinu. Þórarinn Þórarinsson fór í bíltúr
með þessum 23 ára, jarðbundna og hógværa bardagakappa og reyndi að komast að því hver galdurinn á bak við velgegni hans væri.
Leiðist ofbeLdi
annað þess háttar og svo hefur verð-
launaféð fyrir bardagana gert honum
mögulegt að einbeita sér að sportinu.
„Ég lifi ágætu lífi og kvarta ekki und-
an peningum. Verðlaunaféð er ekkert
brjálæðislegt en dugir vel. Það er mjög
mikið af peningum í þessu þegar mað-
ur er kominn í ákveðnar keppnir. Þá
er þetta komið í upphæðir sem maður
kemst aldrei yfir að eyða, þannig séð.
Fólk virðist samt alltaf vera að lenda á
rassinum þótt það hafi átt allt. Peningar
virðast alltaf hafa dálítið neikvæð áhrif
enda ekki mjög eðlilegur hlutur.“
Sigrar andstæðingana með
innri styrk
Gunnar segir að það sé enginn galdur
á bak við velgengni hans í bardaga-
búrinu og hann geri ekkert sérstakt
til að koma sér í rétt hugarástand fyrir
keppni heldur passi hann upp á jafn-
vægi hugans alla daga: „Ég reyni bara
að hugleiða með sjálfum mér og þarf
ekkert að fara í einhverja sérstaka jóga-
stellingu til þess. Ég læt bara sjálfum
mér líða vel, tæmi hugann og reyni að
hugsa mjög hreinskilnislega með sjálf-
um mér. Ég er í rauninni bara að ein-
beita mér að því að skilja sjálfan mig.
Þetta geri ég á hverjum degi og ekkert
eftir einhverri tímaáætlun. Ég er voða-
lega venjulegur einstaklingur og geri
ósköp venjulega hluti. Mér finnst það
alla vegana. Mér finnst allt þetta stress
vera stór hluti af geðveikinni hérna.
Mér finnst það hluti af því óeðlilega.
Fólk segir að ég og það sem ég geri sé
svo óeðlilegt en mér finnst það miklu
heilbrigðara og náttúrulegra en margt
af því sem fólk gerir. Við höfum verið
að berjast frá því við urðum til.“
Gunnar segir að andlegt jafnvægi og
sjálfsþekking sé lykillinn að árangr-
inum. Þegar á hólminn sé komið skipti
líkamsstyrkurinn ekki öllu máli og
hann snýr andstæðinga sína ekki síð-
ur niður með sínum innri styrk. „Ég
held ég þekki sjálfan mig bara betur
en margur. Ég held að ég búi yfir mjög
rólegu sjálfstrausti. Mér líður mjög vel
með sjálfan mig og á mjög auðvelt með
að slaka mig niður og anda rólega. Ég
hef mjög mikla trú á sjálfum mér, eða
ég treysti í raun sjálfum mér fullkom-
lega, þannig að ég þarf ekkert að vera
að stressa mig yfir hlutunum. Ég set
heldur ekki þessa pressu á mig sem
svo margt fólk gerir. Ég er náttúrlega
búinn að ganga í gegnum ýmislegt en
finnst ég ekki lengur þurfa að ná nein-
um árangri. Ég er ekki hræddur við
að tapa.“
Styrkur ástarinnar
Gunnar hefur eytt mestum tíma sínum
í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Írlandi
eftir að keppnisferillinn hófst en nú er
hann kominn heim og ætlar að vera á
Íslandi í einhvern tíma og er ekki far-
inn að huga að næsta bardaga.
„Ég hef verið hérna miklu meira und-
anfarið, sérstaklega eftir að ég byrj-
aði með kærustunni minni. Við erum
búin að vera saman í ár og ég læt til-
finninguna svolítið ráða því hvenær ég
fer út og reyni að vera í takt við kær-
ustuna. Við erum miklir vinir en það er
tími fyrir allt og stundum finnst okkur
betra að sinna einhverju öðru en bara
okkur og þá er kannski tímabært að
ég fari út í smá tíma. Þá myndast líka
bara meiri spenningur og söknuður
sem viðheldur neistanum á milli okkar.
Hún fylgist mjög vel með því sem ég er
að gera og hefur mjög jákvæð áhrif á
mig. Ég er betur settur með henni en
án hennar.“
Gunnar fékk eftirnafnið í arf frá
bandarískum afa sínum, Kenneth Dean
Nelson. „Pabbi er hálfur Kani og heitir
Haraldur Dean Nelson þannig að Nel-
son-nafnið er ættarnafn.
Haraldur Dean Nelson, faðir Gunn-
ars, er umboðsmaður hans og sér um
öll hans mál er varða atvinnumennsk-
una í MMA. „Pabbi sér um þau mál
sem ég þarf ekki endilega að koma
beint að sjálfur. Við ræðum samt auð-
vitað um þetta allt og það er mjög gott
að við séum saman í þessu feðgarnir.
Samstarfið er nánara heldur en ef þetta
væri einhver ótengdur manni og traust-
ið er auðvitað mikið. Líf mitt snýst um
þetta og ég vil vinna með fólki sem mér
finnst gaman að vinna með og svo er
enn betra að fá að vinna með fólki sem
manni þykir vænt um.“
Finnst
bern aise-
sósa æðisleg
Gunnar hugsar
að sjálfsögðu um
mataræðið og leggur
mesta áherslu á
kjöt og grænmeti.
„Ég reyni eins mikið
og ég get að borða
nálægt náttúrunni.
Ég vil helst fersk
matvæli og reyni
að sjálfsögðu að fá
mikið af próteinum
og fitu og vítamínum.
Ég forðast kolvetni,
sykur og sterkju
ekkert sérstaklega en
reyni að borða minna
af því. Þetta eru
samt hlutir sem fólk
borðar alltof mikið af.
Ég er mikið fyrir
nautasteik og villi-
bráð. Ég vil hafa
nautakjötið vel
blóðugt og ef þetta
er nautalund þá vil ég
bara hafa hana alveg
löðrandi í blóði.
Ef þetta er feit steik
þá frekar „medium
rare“. Mér finnst ber-
naise-sósa rosalega
góð en annars er ég
enginn svakalegur
sósumaður. Góð
bernaise-sósa er
líka bara smjör og
eggjarauður og ég
hef ekkert út á það
að setja.
„Mér finnst allt þetta stress vera stór hluti af
geðveikinni hérna.“
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Gunnar hefur eytt
mestum tíma sínum
í Bretlandi, Banda-
ríkjunum og á Írlandi
eftir að keppnis-
ferillinn hófst en nú
er hann kominn heim
og ætlar að vera á Ís-
landi í einhvern tíma
Ljósmyndir/Hari
32 viðtal Helgin 15.-17. október 2010