Fréttatíminn - 15.10.2010, Page 52

Fréttatíminn - 15.10.2010, Page 52
Í gær kom út fyrsta skáldsagan, Doris deyr, eftir ljóðskáldið og myndlistarkonuna Kristínu Eiriksdóttur, eitt athyglisverðasta ljóðskáld yngstu kynslóðarinnar. Hún hefur sent frá sér ljóðahefti sem ramba á mörkum myndlýstra texta, ljóða og prósa og eru ákaflega frumleg, unnin af miklum næmleik, sumir myndu segja ofnæmi, og eru samsett með afar persónu- legum hætti. Bókin sem er stutt miðað við algenga lengd íslenskra skáldsagna, er 167 síður, en forleggjarinn heitir lesendum spenn- andi lesningu: „kveður Kristín sér hljóðs á eftirminnilegan hátt og smeygir sér af lipurð milli heims og orða.“ -pbb Fréttir frá Bandaríkjunum herma að bókaútgefendur þar í landi óttist nú um framtíð barnabóka með ríkulegum myndskreytingum fyrir unga lesendur, Í nýlegri frétt í New York Times var ítarleg umfjöllun um minnkandi áhuga þeirra foreldra, sem á annað borð kaupa bækur fyrirr börn, á myndabókum. Nú fari vaxandi áhugi að börn kynnist bókum með texta sem fyrst til að læsi verði þeim tamt fyrr. Ræðir blaðamaður við for- kólfa í útgáfu og dreifingu bóka sem lýsa vaxandi áhyggjum vegna þróunar sem ekki verði staðið gegn. Íslenskir bókaút- gefendur hafa lengi þrifist vel á samprenti og ekki alltaf verið vandlátir á útgáfuefni fyrir yngstu börnin. Gegn þessu hafa innlendir höfundar spornað með mörgum fínum verkum – oft er texti þar víkjandi. Enda fátt sem ýtir á foreldra að hrinda ungum börnum inn í heim bókstafanna . pbb Ný skáldsaga eftir KristínuEr myndabókin feig? Vel heppnuð afþreying og voveifleg lýsing á nútímasamfélagi Íslands. Kristín Eiríksdóttir Ljósmynd/Jóhann Páll Valdimarsson Árni Þórarinsson Morgunengill er glæsilega unnin, með sterkri samfélagslegri sýn og ríkri siðferðilegri boðun.  Bókadómur morgunengill eftir Árna Þórarinsson B aldur og Konni? Eða öllu heldur Konni, brúðan sem búktalarinn Baldur notaði hér á kaldastríðs­ tímanum; er þetta hún á kápunni á nýrri sögu eftir Árna Þórarinsson sem kom út í gær, Morgunengli. Og kominn með kven­ mannshár og fléttu? Þegar inn í söguna er komið reynist Árni nota búktalaraminn­ ið með snjöllum hætti, en það eru fleiri búktalarar á ferðinni á kápunni: Í kaup­ mennsku sinni hefur útgefandinn, JPV, brugðið á það ráð að fá þekkta einstak­ linga til að lesa söguna í handriti og hrósa henni fyrir fram: Meistarakrimmi, segir Árni Matt á Mogganum, og afgreiðslu­ kona í bókabúðakeðju segir þetta bestu bók hans til þessa; jafnvel menntamála­ ráðherrann gefur kjarnyrta lýsingu á kostum hennar. Lesandinn spyr sjálfan sig hvers vegna hann sé ofurliði borinn strax á forsíðu; má hafa skoðun eftir þessa vitnisburði? Kvótakæti útgefenda er raunar með endemum orðin og tengist stærra vandamáli í atvinnurekstri: Það verður að skipa kúnnanum skoðun fyrir vörukaupin: heitasta leikrit í heiminum í dag (sem er bull), vinsælasti söngleikur allra tíma (sem er líka bull) en bæði slag­ orðin eru brot á samkeppnisreglum. Þarf Árni á svona forkynningu að halda? Hann á að baki átta sögur, sumar í samstarfi við Pál Pálsson. Hann hefur skorðuð og skýr tök á þeim stíl sem hann vill nota til að keyra söguna áfram. Ég hef ekki til þessa verið yfir mig hrifinn af blaðamanninum sem rekur söguna – leiðist hann frekar – en Erlendur er nú heldur ekki par skemmtilegur fýr. Ein­ ar blaðamaður er á síðdegisblaði, starf­ andi fyrir norðan en með íbúð í Reykja­ vík. Hann er kominn í fínt samband við dóttur sína, er á skjön við ritstjórnina, þvælist um á druslunni sinni og sinnir því sem fyrir hann er lagt af ritstjóranum. Nyrðra lendir hann í að koma að konu sem hefur orðið fyrir líkamsárás, heyrir hennar síðustu orð; syðra er hann settur í að taka viðtal við fjármálamann í þrotum og úr þessu tvennu spennist fléttan upp. Hún er glæsilega unnin, með sterkri sam­ félagslegri sýn, ríkri siðferðilegri boðun og sannfærandi að öllu leyti í byggingu. Það getur lesandi ráðið af lestrinum og þarf hvorki Árna Matt né Katrínu Jakobs til að segja sér það. Árna hefur í þessari sögu tekist að spengja saman tvö söguefni, tvo þræði í sögu sem hefur sterk áhrif, einkum í ská­ letursköflum sem lýsa aðstæðum fórnar­ lambs í sögunni sem ekki má lýsa frekar hér. Sagan er eftirhrunssaga en um leið lýsing á þroti í fleiri en einum skilningi; kjarninn liggur í langvarandi vanrækslu gagnvart þeim sem verða út undan í kappi hinni fullorðnu eftir efnisgæðum, þeim sem hrekjast undan auglýsingasamfélag­ inu og lífslygi þess: fötluðum, börnum og gamalmennum. Sagan dregur upp dökka mynd af stöðu þeirra sem hrekjast um í falskri ímynd, stöðu þjónandi útlendinga og eins hinna sem vildu komast sem best af með klækjum. Frásagnarstíll Árna er léttur talmáls­ stíll; hann rekur mikið með samtölum, ytri lýsingar eru gróflega skissaðar, hann sækist ekki eftir útmálun tilfinninga og aðstæðna í hugsun og talsniði Einars sem er raunar óttalegt hró, sprek sem hrekst til og frá í sérkennilegu andvaraleysi, kæruleysi um allt, má segja. Bókin er því þægileg afþreying um leið og hún færir okkur voveiflega lýsingu á því samfélagi sem við höfum búið okkur. Að tala með eigin rödd  morgunengill Árni Þórarinsson JPV 2010 Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is 40 bækur Helgin 15.-17. október 2010 Fyrir margt löngu sat ég sem oftar og hlustaði á sigldan vin minn fara hamförum í lýsingum sín­ um á sögubálki Sandemo, Ísfólksskáldkonunnar vinsælu, sem væri að flestu sóttur í íslensk sögu­ efni. Ég hef beðið þess að þessi bálkur tæki að koma út hér og nú er biðin brátt á enda: fyrsta heftið í fimmtán sagna röð um Galdrameistarann er væntanlegt á markað í byrjun nóvember og út­ gáfudagar fyrstu fimm bókanna ráðnir; vefsíðan til www.galdrameistarinn.is. Fyrsta bókin hefst á lýsingu á Jóni þumlungi, og í aðfararorðum er gerð grein fyrir galdrabælinu á Hólum og Gottskálki grimma. Er nema von að maður bíði spenntur eftir tökum norsk­sænsku þulunnar á íslensku sögu­ efni. Hér fara sögupersónur um Kjöl og Sprengisand, droppa inn í Skál­ holti á leið á Þingvelli. Er nema von að menn taki kipp: falla nú hin helgu vé þegar rómanalitteratúr frá Noregi rænir íslenskum sögupersónum? En svo má líka spyrja hvort rómanar af þessu tagi séu á nokkurn hátt verri en samsuða margra íslenskra rithöfunda um svipuð efni, fyrr og síðar. Við bíðum spennt eftir fyrsta heftinu í þessum bálki. -pbb New York Times Sandemo og fylgjendur hennar Óskar Magnússon segir fleiri smásögur Óskar Magnússon, útgefandi Morgunblaðsins, sýndi það og sann- aði með smásagnasafni sínu „Borð- aði ég kvöldmat í gær?“ að í honum býr liðtækur rithöfundur. Bókin fékk ágætis viðtökur þegar hún kom út árið 2006 og Óskar fylgir henni eftir í ár með öðru smásagnasafni, „Ég sé ekkert svona gleraugnalaus“. Þetta knappa form skáldskapar virðist vera mönum hugleikið í Hádegismóum þar sem Davíð Oddsson, sem Óskar réð sem ritstjóra Morgunblaðsins, hefur einnig látið til sín taka á þessu sviði með bókunum „Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar“ og „Stolið frá höfundi stafrófsins“. -ÞÞ Majónesdrottning með nýja skáldsögu Kleópatra Kristbjörg, forstjóri Gunnars Majóness, geysist fram á ritvöllinn á ný í lok október þegar hún gefur út skáldsöguna „Biðukollur út um allt“. Kleópatra vakti mikla athygli og umtal þegar hún gaf út bókina „Hermikráku- heimur“ þar sem hún tuskaði ís- lenskar smásálir sundur og saman. Hún er hins vegar á sjálfsævisögu- legum nótum að þessu sinni og færir atburði úr daglegu lífi sínu í búning skáldskapar. Hér segir hún frá Evu Mjöll sem er fráskilin og hefur gengið í gegnum nokkur misheppnuð ástar- sambönd. Í byrjun bókar er hún að hefja samband sem lofar góðu en þá dynur ógæfan yfir. Kleópatra segir að þeim sem hafi lesið bókina finnist hún spennandi enda sé í henni nóg af ást, rómantík, vandræðum og veseni. -ÞÞ  Bókamolar time og Yoko Í Mataræði – handbók um hollustu setur Michael Pollan fram 64 stuttar reglur um hollt mataræði. Pollan hefur verið verðlaunaður af Yoko Ono og er á lista Time yfir áhrifa- mesta fólk heims.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.