Fréttatíminn - 15.10.2010, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 15.10.2010, Blaðsíða 54
 MatartíMinn andstaða gegn iðnvæðingu fæðunnar ÍS LE N SK A S IA .I S S FG 4 20 40 0 4. 20 08 Y oko Ono afhenti fjórum einstaklingum verðlaun í Reykjavík um síðustu helgi sem hún kallar Lennon Ono friðarverðlaunin. Tveir verðlauna- hafanna tengjast andstöðu gegn iðnvæðingu matarins, Barbara Kowalcyk og Michael Pollan. Þegar viðskiptatískuritið Forbes tilnefndi á sama tíma valdamestu konur heims setti blaðið Michelle Obama forsetafrú á toppinn fyrir baráttu hennar gegn offitu og iðn- væðingu matarins. Hvort tveggja er merki um ákveðið straumrof. Upp úr tvístraðri og mótsagna- kenndri veröld náttúrulækninga og heilsufæðis er að mótast hug- myndastefna sem telja má líklegri til að breyta neysluvenjum okkar en þeir lífselixírs- og megrunar- kúrar sem hafa verið mest áber- andi síðustu áratugina. Matnum sleppt en farið beint í Hreystina Rætur þessara hugmynda eru f jölmargar. Náttúrutilbeiðsla hippanna í Kaliforníu gat af sér spennandi eldhús. Endurvakn- ing makróbíótískra hugmynda á Vesturlöndum hafði áhrif. Skað- semi DDT-skordýraeitursins gat af sér hreyfingu bænda sem sneri baki við tæknilandbúnaði og leit- aði lausna í reynslu eldri kynslóða. Japanska eldhúsið og eldhús Mið- jarðarhafsins komu og fóru úr tísku og riðluðu hugmyndum um hvað væri gott og hvað best. Franska eldhúsið var ekki lengur óvefengj- anlegur toppur tilverunnar heldur aðeins ein leið af mörgum. En þótt finna megi svona ræt- ur hér og þar þá var það fyrst og fremst fáranlega hröð og öfga- kennd þróun í matvælaiðnaði sem gat af sér andstöðuna. Á tiltölulega skömmum tíma hefur venjulegum mat verið skipt út fyrir þaulunnar markaðsvörur. Venjulegur matur er orðin hornreka í stórmörkuðun- um. Meira að segja þeir sem telja sig vera að gæta að heilsu sinni borða duft frekar en mat. Þeir sem vilja byggja upp vöðva éta duft upp úr 25 kílóa tunnum. Venjulegur matur er í hugum margra orðinn að einhverju varasömu. Og niðurstað- an er að sleppa matnum og borða Hreystina beint. Eða Orkuna. Og fá sér Heilsubita. Jákvæð mótmæli Slow Food-hreyfingin varð til í and- stöðu við skyndibitastaði. Menn- ingarelíta Rómaborgar gat ekki hugsað sér að fá McDonald's-stað við Spænsku tröppurnar og mót- mælti með því að elda spagetti og bjóða gestum og gangandi. Þessi mótmæli hefðu gleymst ef blaða- maðurinn Carlo Petrini hefði ekki bitið í sig að það gagnaðist ekki að mótmæla á neikvæðan hátt. Í stað þess að þylja upp hvað væri að McDonald's vildi Petrini skil- greina matarhefðina sem hann vildi vernda. Niðurstaðan var að hún væri svæðisbundin, árstíða- bundin og sanngjörn gagnvart neytendum, framleiðendum og um- hverfi. Skyndibitastaðir, stórmark- aðir og matariðnaðarfyrirtækin ráða illa við að uppfylla þessi skil- yrði. Þetta er maskína sem hefur það eitt að markmiði að framleiða og selja sem ódýrastan mat. Það segir sig sjálft að þegar sá einn er mælikvarðinn þá tapast gæðin fyrr en síðar. Michael Pollan dró síðan fram í bók sinni um þversögn alætunn- ar að matvælaiðnaðurinn gerði matinn líka fábreytilegri. Niður- greiðslur hafa ýtt matvælaiðnaðin- um út í að brjóta maís og sojabaun- ir niður í frumeindir sínar og nota síðan í alskyns matarlíki. Maís má nú finna í yfir tveimur þriðju hlut- um af öllum vörum í bandarískum stórmörkuðum og soja í yfir helm- ingi. Þrátt fyrir að gólfflöturinn stækki og vörutegundum fjölgi þá borðum við einhæfari mat en áður; mest kornsíróp og kornsterkju í einhverju formi. Heimaræktað í Hvíta húsinu Þegar Obama-hjónin f luttu inn í Hvíta húsið létu þau garðyrkju- mennina sá í matjurtagarð. Í dag er lítið keypt af grænmeti til Hvíta hússins. Ef Obama-hjónin hefðu boðið Jóhönnu Sigurðardóttur for- sætisráðherra í mat hefði hún feng- ið heimaræktað. Nýlega var sett upp býflugnabú við Hvíta húsið og þar er nú allt hunang heimagert. Þessar aðgerðir Michelle Obama virðast lítilvægar og varla tilefni til að kalla hana valdmestu konu ver- aldar. En aðgerðirnar eru einmitt mikilvægar af því þær eru smáar. Leiðin út úr tröllahrammi iðnaðar- matarins er vörðuð mörgum smá- um og persónulegum aðgerðum. Í raun getur þú ein(n) bjargað þér. Borðum eins og amma Það er að byggjast upp almenn viðurkenning víða um heim á að tæknin muni ekki finna upp nýjar aðferðir til að gera matinn hollari eða betri. Fólk leitar nú frekar í söguna og hallar sér að því sem hefur reynst vel um langan aldur. Íslensk hátíska Uppskriftir KræKiber og grænKál Íslensk matarhefð Matur kemur og fer úr tísku eins og gallabuxur, frjálshyggja og Bubbi Morthens. Tvennt af því sem ber einna hæst núna eru villt ber og grænkál. Hinar undarlegu kenningar um súperfood eiga þarna nokkra sök. En við látum það ekki hafa áhrif á okkur. Krækiber og græn- kál eru frá- bær matur án tillits til allra tísku- sveiflna. Íslensk matarhefð er sveita- og sjálfsþurft- areldhús. Hér voru engar borgir til að ýta undir fjölbreytileika og gæði framleiðsl- unnar eins og til dæmis á Ítalíu. Hér var ekki stór konungs- hirð um margar aldir til að lyfta matreiðsl- unni á æðra plan eins og til dæmis í Frakklandi, Taílandi, Japan og Kína. Nú er Ísland borgríki og íbúarnir með kaupmátt á við háttsettan aðalsmann á átjándu öld. Við þurfum því ekki að verja hefðirnar eins og Ítalir heldur endurskapa þær og búa til svo að þær nýtist einhverjum en verði ekki brandari til að ota framan í túrista. Íslendingar hafa gengið lengra í iðnvæðingu matarins en Evrópubúar. Öll matvælavinnsla var flutt í verksmiðjur um miðja síðustu öld: osturinn og skyrið, rúllupylsan og hangikjötið, reykta ýsan og fiskibollurnar. Iðnvæðingin myndaði algjört rof í hefðirnar. Eins og Bandaríkjamenn þurfum við vakningu til að endurheimta matinn úr verksmiðjunum. Vegna skorts á markaði þróaðist íslenskur landbún- aður til sjálfsþurftar annars vegar og hrávöruframleiðslu hins vegar (sauðakjöt og vaðmál). Landbúnaðurinn býr því ekki yfir góðum hefðum þegar kemur að þjónustu við neytendur. Kostir matar- framleiðslunnar liggja í legu landsins. Þannig vill til að það sem vex við lök skilyrði er oftast best. Te sem vex efst í fjallshlíðum, á mörkum þess að það dafni, er best og verðmætast. Ólívur sem vaxa upp úr hrjóstrugum og þurum jarðvegi eru best metnar. Og svo framvegis. Lykillinn að gæðunum er hægur vaxtar- hraði. Ef Íslendingum auðnast að rækta upp grænmetis- tegundir sem hafa náð að aðlaga sig stuttu og svölu sumri geta þeir búið til frábæra gæðavöru. Ef þeir reyna að elta hraðan vöxt byggðan á áburði munu þeir búa til lélegar eftirlíkingar af iðnvæddum mat. Afurðir gróðurhúsabænda eru ekki góðar í sjálfu sér. Þær eru góðar fyrir okkur vegna ná- lægðar þeirra við markaðinn. Tómatarnir fá að þroskast á plöntunum og koma því fullir af næringarefnum á markað á meðan útlendir tómatar eru tíndir vanþroskaðir og grænir og roðna á leiðinni. Náttúruval aldanna hefur stillt svo saman mann og ávöxt að það er manninum fyrir bestu að borða ávöxtinn þegar hann hefur fullþrosk- ast á trénu eða plöntunni. matUr Þórir Bergsson og Gunnar Smári Egilsson matur@frettatiminn.is 42 matur Helgin 15.-17. október 2010 Núðlur með kjúk- lingi og grænkáli 1. Kaupið heilan kjúkling og hlutið hann sundur. Hafið væninga og leggina á beinum en úrbeinið lærin og brytjið ásamt bring- unum. Notið afganginn í kjúklingasoð. 2. Hitið olíu á pönnu. Setjið góðan slatta af hvítlauk, engiferi og chillipipar út í og hitið vel áður en þið setjið kjúklinginn á pönnuna og steikið á öllum hliðum. Stráið 3 tsk. af sykri yfir og leyfið öllu að karamellíserast smávegis. Hellið þá ½ til 1 dl af sojasósu yfir og setjið pönnuna inn í 180°C heitan ofn í korter. 3. Hitið núðlur sam- kvæmt fyrirmælum á umbúðum. 4. Fjarlægið neðsta hluta stilkanna úr einu búnti af grænkáli (um 10 blöð) og skerið kálið smátt ásamt stórum lauk. Rífið einn hvít- lauksgeira. Hitið olíu á pönnu, hendið kálinu og lauknum út á og leyfið þessu að garga í nokkrar mínútur. 5. Bætið núðlunum út á pönnuna með kálinu og leyfið að steikjast eilítið. Blandið þessu síðan saman við kjúklinginn úr ofninum. Verði ykkur að góðu Krækiberjaís Til að búa til kræki- berjaís er best að fara bilið á milli venjulegs íss og krapa eða sorbet. Þetta bil kallast sherbet og er ensk/ amerískt fyrirbrigði sem er í raun sorbet en með eilitlum rjóma saman við. Takið 800 ml af hrásaft og smakkið. Ef hún er eins sæt og þið viljið þá er það gott. Ef þið viljið meiri sykur bætið þið honum saman við. Hellið síðan 200 ml af rjóma út í og hellið í ísvélina. Ef þið eigið ekki ísvél getið þið sett blönduna í box inn í frysti og tekið út eftir einn og hálfan tíma og djöflast á ísnum með gaffli þar til hann skiptir litum og súrefni nær að blandast saman við ísinn. Krækiberja-sherbet er góður einn og sér eða sem meðlæti með súkkulaðitertu eða eplaköku. Á tiltölulega skömmum tíma hefur venjulegum mat verið skipt út fyrir þaulunnar markaðsvörur. Ljósmynd/Hari Hvað er gott við íslenskan mat? Ef kenningin er sú að við eigum að borða það sem hefur sprottið úr hefðum okkar og næsta umhverfi, eru það þá góð tíðindi eða slæm fyrir okkur Ís- lendinga?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.