Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 62
Ég er með mjög fjölbreyttan og breiðan tónlistar-smekk og hlusta eiginlega á allt. Það fer yfirleitt bara eftir skapi og aðstæðum,“ segir Áskell.
Hann spáir mikið í tísku og fær mikinn innblástur
frá götutískunni. „Maður tekur allt inn sem maður
sér í kringum sig. Svo er það líka hönnuðurinn Umit
Benan sem ég lít mikið upp til. Hann er sjúklega svalur
með mikið skegg og mikið hár. Hann hannar ekki
karlaföt og ekki strákaföt. Eitthvað þarna á milli. Flott-
ur gaur,“ segir Áskell. -kp
Mánudagur: Úlpa: Spútnik Cheap Monday-buxur: Keyptar í
New Work Nike Skór: Kron Kron Bolur: Tónlistarsíðu-Bleeb
Áskell Harðarson er tvítugur áhugamaður um
tónlist, ljósmyndun og tísku. Hann útskrifaðist úr
Menntaskólanum í Hamrahlíð síðastliðið vor og
starfar nú sem verslunarstjóri í Spútnik á Lauga-
vegi, samhliða því að vera plötusnúður um helgar.
Verslunarstjóri
á daginn, plötu-
snúður á kvöldin
Lj
ó
Sm
yN
d
ir
/
H
a
r
i
Kröfur
samtímans
Snyrtivörur eru eitthvað sem mun lík-lega alltaf fylgja okkur kvenmönnum. Við notum þetta í miklum mæli og úr-
valið er orðið svo mikið að við förum að þjást
af valkvíða. Merkjavörur og óþekktari vörur –
kannski sama gæðavaran en sjaldan sama verð.
Svo um leið og þær verða eftirsóttar eða verða að
einhverju tísku-trendi, rjúka þær upp í verði. En
málið er samt að við kvenmenn kaupum yfirleitt
alltaf sömu snyrtivörumerkin aftur og aftur. Það
er í eðli okkar að vilja vera öruggar og þess vegna
kaupum við sömu vöruna og tökum enga áhættu.
Því keppast snyrtivörufyrirtækin við að ná okkur
og koma okkur í fastan kúnnahóp.
Við kvenmenn keppumst við að líta alltaf sem
best út. Þannig er samtíminn. Við kaupum flottustu
fötin, sléttum og litum á okkur hárið, setjum á okk-
ur farða og lengjum neglurnar. Allt eru þetta kröfur
samtímans sem byggir upp þessa útlitsdýrkun sem
við eyðum tíma og peningum í.
Það reynir mikið á að fylgja öllu sem er í gangi.
Við heyrum af nýjustu andlitskremunum sem eiga
að gera kraftaverk. Við lesum um nýjustu megr-
unarkúrana sem eiga að svínvirka. Við sjáum nýj-
ustu haustlínu Topshop sem allir verða að eignast!
Heilaþvottur. Hann hefur aldrei verið meiri og út-
litsdýrkunin er í hámarki. Stóra auglýsingaskiltið
sem þú keyrir fram hjá daglega, tímarit og sjón-
varpsstöðvarnar eru stútfull af mjóum konum með
langa leggi og fullkomna húð. Photoshopið er ekki
sparlega notað. Þetta eru skilaboðin sem við fáum
daglega og við keppumst við að ná því takmarki
okkar að líta sem best út. Kröfurnar eru ekki litlar.
50 tíska Helgin 15.-17. október 2010
Föstudagur: Skór: B store Jakkaföt: anderson & Lauth
Skyrta: Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar
Þriðjudagur: Cheap Monday-buxur: Kron Kron Converse-
skór: New york Skyrta: Urban Outfitters Peysa: Götumark-
aðurinn á menningarnótt. Bindi: Spútnik
Miðvikudagur: Jakki: Spútnik Skór: B store Cheap
Monday-buxur: Kron Kron Skyrta: Spútnik
Fimmtudagur: Vintage-skór: keyptir í New york Cheap
Monday Buxur: Kron kron Skyrta: Spútnik Jakki: Kolaportið
October 13 -17
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Naglalakk
ársins valið
Það verður seint sagt að naglalakk
detti úr tísku. Það þykir alltaf flott
að vera með vel snyrtar
neglur. Það er hins vegar
misjafnt hvaða litir eru
málið hverju sinni. Nú í ár
hefur naglalakk ársins 2010
verið valið og er það lakkið
Chanel Particulier sem er
grátt með brúnum keim.
Turkis-blár er einnig mjög
sterkur litur í ár, ásamt
öðrum skærum litum, svo
sem gulum og bleikum.
Svo eru í boði aðrir litir, til
dæmis sá sígildi rauði sem
aldrei dettur úr tísku.
Í bikiní í fyrsta skipti
Kelly Osbourne varð fræg fyrst
og fremst fyrir að vera dóttir for-
eldra sinna, þeirra Ozzy og Sharon
Osbourne. Undanfarna mánuði hefur
hún hins vegar verið í
sviðsljósinu vegna þess
hve hún hefur grennst
mikið. Hún segist sjálf
vera alveg dolfallin yfir
því hversu mikið hún
hefur lést, segir sjálfs-
traustið aldrei hafa
verið meira og treystir
sér nú í fyrsta skipti í
bikiní. Að auki flæða til
hennar föt frá helstu
hönnuðum heims í þeirri von að hún
láti sjá sig í þeim á almannafæri.
kim kardashian: Fer aFtur úr öllu
Hylur brjóstin
með fyrirsögn
Eitt þekktasta tískutímarit Bandaríkjanna, W, skart-
ar Kim Kardashian kviknakinni á nýjustu forsíðu
sinni. Forsíðan hefur að vonum vakið heimsathygli og
ætla má að mjúkar línur Kim muni gleðja ófá augu á
næstunni. Á forsíðunni hefur hún farið úr
hverri spjör en fyrirsagnir hylja þrýstinn
barm hennar og það allra heilagasta.
Árið 2007 striplaðist Kim í Playboy en sá
síðar eftir því. Hún er þó enn ófeimin og
endurtekur nú leikinn enda studd af móður sinni sem
sagði henni að „kýla á þetta“.
Á myndunum inni í
blaðinu hylur ekk-
ert nekt Kim nema
silfurmálning.