Fréttatíminn - 15.10.2010, Síða 70
58 dægurmál Helgin 15.-17. október 2010
Í samstarf við Dahl-Sørensen & Partners A/S í Danmörku veitum við viðskiptavinum
okkar víðtæka þjónustu við öflun fjárfesta og aðra M&A þjónustu á norðurlöndunum.
Investis fyrirtækjaráögjöf • Lágmúla 7 • www.investis.is
FYRIRTÆKJAEIGENDUR
Erum með fjárfesta sem vilja taka þátt í yfirtökum,
endurfjármögnun og sameiningum fyrirtækja.
Frekari upplýsingar á skrifstofu okkar
N ei, nú er ég ekki að spá í að senda inn lag í Söngvakeppni Sjón-varpsins. Það er búið að vera svo
mikið að gera í öðrum verkefnum,“ segir
Örlygur Smári, höfundur íslenska fram-
lagsins í Eurovision í fyrra. „Hins vegar
hef ég hjálpað nokkrum með demó fyrir
keppnina í ár. Þetta eru flott lög.“
Nú fer hver að verða síðastur að senda
lag inn í forkeppnina hér heima. Frestur
til að senda inn lög rennur út 18. október,
á mánudaginn. Jónatan Garðarsso, fer
fyrir valnefnd Sjónvarpsins: „Nú hrúgast
lögin inn um helgina. Við vitum hvernig
þetta er, flestir senda lögin inn á síðustu
stundu,“ segir hann og býst við á bilinu
150 til 300 lögum í heildina, þótt fá hafi
borist hingað til.
Eurovision-keppnin verður haldin í
Düsseldorf í Þýskalandi í maí á næsta
ári. Jónatan segir keppnina milli Berlín-
ar, Hamborgar, Hannover og Düsseldorf
hafa verið gríðarlega harða. „En Düs-
seldorf marði þetta.“
Örlygur fer á flakk
Á meðan Jónatan grúskar í lagabunk-
anum verður Örlygur á Írlandi. „Mér
var boðið í gegnum Félag tónskálda og
textahöfunda að fara út í vinnubúðir
að semja tónlist með fólki víðsvegar úr
heiminum,“ segir hann. „Mér er sagt
að einhverjir þungavigtarmenn verði í
hópnum en ég hef ekki heyrt nein nöfn.
Þarna verður fólk parað saman og látið
semja lög. Vonandi verður eitthvað stór-
kostlegt til.“
Örlygur segir tækifærið frábært þar
sem hann nái enn að stækka tengslanet
sitt. Verði útkoman góð fari hjólin á fullt
við að koma lögunum á framfæri.
Hvetur fólk til að taka þátt
Örlygur segir undankeppni Sjónvarpsins
fyrir Eurovision síðustu tvö ár hafa ver-
ið hörkuspennandi. Þátttakan sé mjög
skemmtileg. „Ég hvet því alla til að taka
þátt,“ segir hann, og komist lagið alla
leið sé takmarkinu náð. „Maður fær al-
veg fullt af tölvupóstum frá fólki víðsveg-
ar úr heiminum og fréttir af laginu hér
og þar í veröldinni. Þessi sköpun manns
ferðast því víða.“
Spurður um lögin sem hann hefur
heyrt fyrir undankeppnina neitar hann
að gefa nokkuð upp. En eru þetta dans-
lög: „Það er ekki bara leitað til mín með
danslög. Ég geri svo miklu meira en
danslög!“ En eiga þau bestu upp á pall-
borðið: „Það aldrei hægt að spá fyrir um
þetta. Það er sjarminn við keppnina.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
SíðuStu forvöð að SeNda iNN lög í SöNgvakeppNi SjóNvarpSiNS
airwaveS: Ný tækNi auðveldar tóNleikageStum lífið
Örlygur Smári ekki
meðal keppenda í ár
Of mikið að gera, segir Örlygur Smári og stefnir því ekki á að keppa í Söngvakeppninni í ár.
Hann er á leið í vinnubúðir með lagahöfundum á Írlandi
Örlygur Smári hefur aðstoðað fimm aðra lagahöfunda við að koma lögum sínum í forkeppnina fyrir Eurovision. Sjálfur er
hann á leið til Írlands og stefnir ekki á þátttöku. Ljósmynd/Hari
Framboðið á tónleikum á Airwaves-hátíðinni er svo
magnað að þeir áköfustu mega hafa sig alla við, ætli
þeir sér að fleyta allan rjómann ofan af. Ring hefur
sett upp þrjár tækninýjungar í tilefni hátíðarinnar
með það fyrir augum að gera farsímann að öflugu
vopni í baráttunni við að þéttskipaða dagskrána.
Á meðan hátíðin stendur yfir getur fólk fylgst með
lengd biðraða fyrir utan tónleikastaði með því að
sækja myndir úr vefmyndavélum í símann. „Airwa-
ves er svo stór og flottur viðburður að við fórum að
velta fyrir okkur hvernig hægt væri að nota símtækið
til þess að gera upplifun fólks af viðburði sem þess-
um sem ánægjulegasta,“ segir Einar Sigurðsson hjá
Ring. „Biðraðir gera fólki oft lífið leitt og fólk lendir
stundum í því að fara af einum góðum viðburði til
þess að ná öðrum en endar svo í langri röð. Með síma
í vasanum getur fólk nú kannað ástandið á öðrum
stöðum og athugað hvort það borgi sig að stökkva út
án þess að fara fýluferð.“
Þá eru strikamerki á öllum tónlistarstöðum og
þeir símar sem lesa slík merki geta sótt tónleika-
dagskrána á viðkomandi stað. Síðast en ekki síst er
búið að merkja alla tónleikastaði með hnitum með
forritinu Layer en þegar hugbúnaðurinn er virkjaður
má segja að síminn breytist í nokkurs konar áttavita.
Hann birtir dagskrá þess staðar sem honum er beint
að og leiðir fólk upp að dyrum, vilji það taka stefnuna
þangað.
Biðraðir
gera fólki
oft lífið
leitt.
Syngjandi fjölmiðlakempur
Karlakórinn Fóstbræður verður á hvínandi siglingu um helgina en fjörið hefst á
föstudagskvöld þegar kórinn syngur með finnska karlakórnum Manifestum í Lang-
holtskirkju. Samanlagðir telja kórarnir rúmlega eitt hundrað söngmenn. Ætla má að
tengsl Fóstbræðra við almenning eflist nokkuð í náinni framtíð þar sem tveir reyndir
fjölmiðlakappar, þeir (heitur) Teitur Þorkelsson og Hafliði Helgason, fyrrverandi
ritstjóri Markaðarins, eru gengnir til liðs við kórinn en auk þess að syngja senda þeir út
fréttatilkynningar um viðburði sem kórinn kemur að.
Síminn orðinn áttaviti í tónleikafrumskóginum
Hægt er að fá við-
burðadagatal Airwaves í
farsímann og skipuleggja
sig. Hjálmar spila á Nasa í
kvöld, föstudag.
Lífsmark með
Mannlífi
Hið fornfræga tímarit Mannlíf
hefur verið í öndunarvél hjá
útgáfufélaginu Birtíngi og útgáfa
þess hefur verið vægast sagt
óregluleg undanfarin tvö ár eða
svo. Brynjólfur Þór Guðmunds-
son, fyrrverandi fréttastjóri á DV,
var síðasti ritstjóri Mannlífs en
hann hætti eftir að hann skilaði
Tekjublaði tímaritsins af sér í
byrjun ágúst. Síðan hefur ekkert
til blaðsins spurst og var það
almennt talið af. Karl Steinar
Óskarsson, dreifingarstjóri Birt-
íngs, hefur nú fengið það verkefni
að blása lífi í líkið. Hann virðist
ætla blaðinu að höfða sterkt til
karlmanna og biður nú valda
álitsgjafa að tilnefna heitustu
konu Íslands árið 2010 sem síðan
verður kynnt í Mannlífi.
Naglbítur í stað
Gnarrs
Efnahagshrunið, og sú lömun
atvinnulífsins sem fylgdi í kjölfar
þess, kom illa við auglýsinga-
stofur sem
þurftu flestar
að draga
saman seglin.
Skömmu eftir
hrun var til
dæmis sjálfum
Jóni Gnarr
sagt upp sem
hugmynda-
smiði hjá
EnnEmm.
Eitthvað virðist
landið nú vera að rísa þar sem
Vilhelm Anton Jónsson, lang-
best þekktur sem Villi Naglbítur,
hefur verið ráðinn til EnnEmm og
mun að einhverju leyti fást við
sömu störf og Jón Gnarr gerði og
fer væntanlega létt með það enda
með eindæmum fjölhæfur og
hugmyndaríkur maður þar á ferð.
Horn í síðu borgar-
stjóra
Og enn af Jóni Gnarr. Ákvörðun borgar-
meirihlutans um að tefla fram sérstökum
staðgengli borgarstjóra til þess að minnka
álagið á Jóni Gnarr mælist misvel fyrir.
Fulltrúum minnihlutans er ekki skemmt og
eitthvert nöldur heyrist úr ýmsum blogg-
hornum. Hins vegar má ætla að embættis-
mannakerfið og hinir ýmsu deildar-og milli-
stjórnendur í borgarapparatinu fagni þar
sem hin óhefðbundni borgarstjóri virðist
fara eitthvað í fínustu taugar margra
rótgróinna blýantanagara hjá borginni.
Almennu starfsfólki og verkamönnum hjá
borginni blöskrar víst stundum hvernig
yfirmenn þeirra tala um borgarstjórann á
fundum en meðal þess sem fundið er að í
fari Jóns er menntunarskortur og of frjáls-
legur klæðaburður.
Yoko í KronKron
Eins og víða hefur komið fram notaði Yoko
Ono, ekka Johns Lennon, Íslandsferð sína
meðal annars til innkaupa og kom hún við í
ýmsum búðum í Reykjavík. Hún leit meðal
annars inn í hátískuskóbúðina KronKron
þar sem uppnumið og andaktugt starfs-
fólkið sinnti henni með stjörnur í augunum.
Ekki fylgir sögunni hvort Yoko yfirgaf
verslunina með mörg skópör.
„Þarna verður
fólk parað
saman og
látið semja
lög. Vonandi
verður eitt-
hvað stórkost-
legt til.“