Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Qupperneq 2
Tölvuóð þjóð Það verður víst seint hægt að segja að Íslendingar séu ekki tæknivæddir en á þessu ári eru tölvur á átta af hverjum níu heimilum og 84% heimila gátu tengst internetinu. Þetta kem- ur fram í úttekt Hagstofunnar á upplýsingatækni hér á landi. Nærri níu af hverjum tíu net- tengdum heimilum nota ADSL, SDSL eða annars konar xDSL nettengingu og einungis sjö prósent nettengdra heimila nota hefðbundna upphringitengingu eða ISDN. Einnig kemur fram að níu af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 16 til 74 ára nota tölvu og internet og flestir nota tölv- urnar til samskipta og upplýs- ingaleitar. ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Banki styrkir matjurtarækt Kaupþing tekur þátt í átaki til að auka áhuga leikskóla- barna á grænmeti og græn- metisneyslu. Öllum leikskól- um landsins bjóðast tæki og tól til að útbúa hjá sér mat- jurtagarð. Frá þessu er sagt á vef Víkurfrétta. Vonast er til þess að börnunum finnist spennandi að rækta græn- meti og fyrir vikið verði einnig spennandi fyrir þau að borða grænmeti sem þau hafa sjálf ræktað. Jón fær helmingi lægri biðlaun Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins, fær helmingi lægri biðlaun en aðrir ráðherrar Framsóknarflokksins sem létu af ráðherraembætti í gær. Hann fær greidd biðlaun í þrjá mánuði en Guðni Ágústsson, Jónína Bjartmarz, Magnús Stefáns- son, Siv Friðleifs- dóttir og Valgerð- ur Sverrisdóttir fá greidd biðlaun í hálft ár. Jón sat sem formaður flokksins og ráð- herra í 9 mánuði en hefði þurft að sitja samfellt í ár til að hljóta sama biðlaunarétt og hinir fyrr- verandi ráðherrarnir. Karlmaður hefur játað ítrekaða kynferðislega misnotkun á dreng á uppeldisheimilinu á Kumbaravogi á árunum 1969 til 1973. Brot mannsins eru fyrnd og því er ekki hægt að sakfella manninn fyrir glæpinn. Ólíklegt er að fórnarlömb kynferðisbrota á uppeldis- heimilum eigi rétt á miskabótum. JÁTAR EN SLEPPUR Karlmaður hefur játað ítrekaða kyn- ferðislega misnotkun á dreng sem vistaður var á uppeldisheimilinu á Kumbaravogi á árunum 1969 til 1973. DV sagði frá því að fórnarlambið hefði lagt fram kæru hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu þann 16. mars síð- astliðinn, þar sem krafist var ítarlegr- ar rannsóknar á framferði mannsins. Maðurinn, Karl Vignir Þorsteinsson, var í kjölfarið boðaður í skýrslutöku, þar sem hann játaði að hafa misnot- að drenginn margsinnis á tímabilinu. Þrátt fyrir að játning liggi fyrir, getur lögreglan ekki aðhafst frekar í málinu, þar sem sök mannsins er fyrnd. Í al- mennum hegningarlögum er kveðið á um að ef sök er fyrnd, sé ekki hægt refsa fyrir háttsemina. Réttargæslumaður kæranda, Ósk- ar Sigurðsson héraðsdómslögmaður, hefur staðfest þetta við DV. Lögregla verst fregna DV hefur sagt frá að Karl Vignir hafi verið starfsmaður á Sólheimum Í Grímsnesi, þaðan var honum vikið úr starfi. Þá hefur honum verið vik- ið úr Aðventistakirkjunni í Reykjavík og eftir að DV fjallaði um barnagirnd hans var honum vikið úr nefndar- störfum sem hann gegndi hjá líkn- arfélagi. Karl vandi komur sínar á Kumbaravog á fyrrgreindu tímabili þar sem hann bauð drengnum sæl- gæti áður en hann misnotaði hann fyrir luktum dyrum. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisafbrotadeildar lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu, varðist allra fregna af framvindu rannsóknar málsins og neitaði að tjá sig við DV að öðru leyti en að málið hafi komið inn á borð til lögreglunnar. Óskar Sigurðsson, réttargæslu- maður kæranda hefur óskað eft- ir lögregluskýrslu og öðrum gögn- um sem lögregla hefur aflað en ekki fengið þau í hendur ennþá. Því liggur ekki fyrir hvort Kristján Frið- bergsson, sem var forstöðumaður á Kumbaravogi á þeim tíma sem brot- in áttu sér stað, hafi verið boðaður til yfirheyrslu, eða aðrir sem tengdust uppeldisheimilinu. Ólíklegt að miskabætur verði greiddar Réttur til skaða- og miskabóta fyrnist tíu árum eftir að brot er fram- ið, hins vegar er ákvæði í fyrningar- lögum þar sem kveðið er á um að mögulegt sé að sækja bótamál þótt krafan sé fyrnd ef brotamaður er sakfelldur fyrir dómi. Nýleg lög um afnám fyrningarfrests á kynferðis- brotum þegar fórnarlambið er undir fjórtán ára aldri eru heldur ekki aft- urvirk. Óskar Sigurðsson telur því ólík- legt að kærandi eigi rétt á miskabót- um, þar sem ekki er hægt að sak- fella Karl Vigni vegna brotanna. Um ábyrgð Kristjáns Friðbergssonar í málinu segir hann: „Forstöðumaður heimilisins var ábyrgur fyrir öryggi barnanna, en það er ómögulegt að segja til um hvort hann vissi af brot- unum eða ekki og því er ábyrgð hans í þessu máli óljós.“ Munum ná réttlætinu fram Páll Rúnar Elísson, formaður Breiðavíkursamtakanna segir sam- tökin ekki una því ef miskabætur verða ekki greiddar. „Við mótmælum því harðlega og við erum alls ekki sáttir við þá stöðu. Samtökin eru rétt að byrja að láta að sér kveða og við munum reyna að ná réttlætinu fram á næstunni.“ Hann tekur ekki undir álit Óskars og telur að málið þurfi að vera kruf- ið betur. Páll Rúnar segist hins vegar ekki vilja tjá sig meira um málið að svo komnu. VaLgeir Örn ragnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Kumbaravogur Maðurinn vandi komur sínar á Kumbaravog og misnotaði drenginn kynferðislega á árunum 1969 til 1973. Karl Vignir Þorsteinsson Krotað hefur verið yfir andlit hans. Bæjarstjórn vill olíuhreinsun Vilji er fyrir því að skoða frek- ar möguleika á uppbyggingu olíuhreinsistöðvar innan marka Ísafjarðarbæjar. Birna Lárusdóttir, formaður bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, segir að ályktun þess efnis hafi verið samþykkt einróma á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku. „Þetta er fyrst og fremst viljayfir- lýsing. Við erum að lýsa yfir vilja okkar til að skoða möguleikana.“ Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur sent frá sér sams konar viljayfir- lýsingu. „Næsta skref er að meta að- stæður á þessum stöðum með tilliti til náttúruverndar og sam- félagsmála,“ segir Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirð- inga. „Þegar við vorum nánast komin upp þá kom bara svona smellur eða hvinur og flekinn byrjaði að síga nið- ur,“ segir Halldór Halldórsson, úr- smiður á Akureyri. Hann var einn þeirra sex sem flutu niður með snjó- flóði sem féll í Hlíðarfjalli á Akureyri á sunnudag. Hann kveðst hafa verið fljótur að jafna sig en honum hafi þó brugðið talsvert. „Við vorum alls sjö sem vorum að ganga þarna upp, sum með brettin með okkur. Tveir strákar voru á und- an okkur og annar þeirra var kominn alveg upp á brún þegar flóðið féll. Hin sex fóru niður með spýjunni,“ segir Halldór. Flóðið stöðvaðist fljót- lega. „Ég rétt náði að átta mig á því hvað var að gerast og þá var þetta búið.“ Flekinn sem fór af stað er talinn hafa verið eins metra þykkur og allt að því áttatíu metra breiður. Flóð- ið féll í hvilft sem er í fjallinu, ofan og sunnan við brekku sem nefnd er Strýta. Halldór segir veður hafa ver- ið þokkalegt, hiti um frostmark og snjórinn nýr. Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíð- arfjalli, segir nokkuð algengt að flóð falli á þessum slóðum. „Það hafa oft komið spýjur þarna niður en sjald- an svona stórar,“ segir Guðmundur. Hann segir brekkuna vera ansi bratta þarna og snjórinn eigi auðvelt með að skríða af stað. „Sjálft flóðið náði aldrei inn á sjálft skíðasvæðið og hafði þannig engin áhrif á starfsemina í fjall- inu,“ segir Guðmundur. Hann slær á að um fjögur hundruð manns hafi verið á skíðum á laugardag og sunnudag. Færið hafi verið óvenju- lega gott fyrir árstímann. Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um snjó- flóðið og mætti á staðinn. Varðstjóri segir að þar sem ekki hafi verið um slys á fólki eða eignatjón að ræða heyri þó málið ekki undir lögregl- una. sigtryggur@dv.is Sex lentu í snjóflóði í Hlíðarfjalli á Akureyri á sunnudag: Heyrðu skyndilega mikinn hvin snjóflóð í Hlíðarfjalli Snjólaust er í akureyrarbæ en fyrr í vikunni snjóaði nokkuð í fjöll í Eyjafirði og skapaðist því tækifæri til að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli um hvítasunnuhelgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.