Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Page 11
DV Sport ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 2007 11 Sport Þriðjudagur 29. maí 2007 sport@dv.is KR eR neðst í landsbanKadeild KaRla eftiR tap gegn víKingum á heimavelli í gæR 2-1 umfjallaniR um alla leiKi gæRKvöldsins á blaðsíðum 12-15 Derby County er komið aftur í deild þeirra bestu Fjölnir er við það að fá góðan liðsstyrk: Þrír FH-ingar í Fjölni Fjölni var spáð góðu gengi í fyrstu deildinni í sumar en lítið hefur geng- ið hjá liðinu og er það nú neðst með aðeins eitt stig eftir þrjá leiki. Ás- mundur Arnarsson þjálfari Fjöln- is hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök. Atli Viðar Björnsson og Heim- ir Snær Guðmundsson úr FH eru gengnir til liðs við félagið að láni og þá mun Ólafur Páll Snorrason lík- lega fara til Fjölnis, einnig að láni, en hann er uppalinn hjá félaginu. „Það er ekki alveg búið að ganga frá því að ég fari aftur til Fjölnis,“ sagði Ólafur í samtali við DV. „Ég er í hóp á móti Fram þar sem smá meiðsli eru á FH-liðinu. Það gerist ekkert fyrr en eftir leikinn.“ Ólafur hefur verið mikið meidd- ur að undanförnu en er nú loks að ná fyrri styrk og vonast til að fá að spila leiki í Fjölni. „Ég fer í mánaðarlán til að byrja með og ætla að reyna að ná einhverj- um leikjum og koma mér í leikform. Þegar það er komið þá geri ég ráð fyrir því að fara aftur til FH og berjast fyrir sætinu þar. Ég lít þannig á að ég eigi litla möguleika núna á að kom- ast í liðið á meðan framherjarnir eru allir markahæstir í deildinni. Og þeg- ar þeir eru að spila svona vel þá verð ég að vera í leikformi til að eiga ein- hvern séns.“ Fjölnir hefur verið dug- legur að sækja mannskap í FH-liðið og voru Magnús Ingi Einarsson, Sig- mundur Pétur Ástþórsson og Tóm- as Leifsson allir í byrjunarliðinu hjá Fjölni í síðasta leik en allir hafa þeir spilað með FH. „Auðvitað líst mér hörkuvel á að fara aftur í Fjölni. Ég fór að fyrra bragði og talaði við Óla þjálfara og fékk þetta í gegn til að fá að spila og Fjölnir var besti kostur- inn, held ég.“ Of sterkt Byrjunarlið FH er gríðarlega sterkt og ekki hlaupið að því að komast í það. (KR)ÍSA Í VESTURBÆ David Beckham var að nýju valinn í Enska landsliðsið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.