Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Síða 18
ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 200718 Sport DV ÚRSLIT HELGARINNAR Ítalski boltinn Livorno - Atalanta 4-2 Lucarelli 1-0 (45.), Morrone 2-0 (47.), Zampagna 2-1 (51.), Lucarelli 3-1 (57.), Bombardini 3-2 (65.) Paulinho 4-2 (82.) Ascoli - Cagliari 2-1 Mancosu 0-1 (13.), Soncin 1-1 (17.), Paolucci 2-1 (78.), Catania - Chievo 2-0 Rossini 1-0 (66.), Minelli 2-0 (80.) Parma - Empoli 3-1 Muslimovic 1-0 (8.), Budan 2-0 (16.), Saudati 2-1 (28.), Gasbarroni 3-1 (88.). Siena - Lazio 2-1 Maccarone 1-0 (23.), T Rocchi (pen.), 1-1 (73.), Negro 2-1 (85.) Roma - Messina 4-3 Riganò 0-1 (10.) Totti 1-1 (11.), Mancini 2- 1 (19.), Riganò 2-2 (58.), Totti 3-2 (73.), Cordova 3-3 (75.) Rosi 4-3 (84.) Reggina - AC Milan 2-0 Amoruso 1-0 (8.), Amerini 2-0 (67.) Udinese - Palermo 1-2 Caracciolo 0-1 (14.) Sivok 1-1 (21.) Corini 1-2 (71.) Fiorentina - Sampdoria 5-1 Mutu 1-0 (5.) Montolivo 2-0 (36.) Quagliarella 2-1 (40.) Pazzini 3-1 (49.) Ferreira 4-1 (72.) Ferreira 5-1 (91) Internazionale - Torino 3-0 Materazzi 1-0 (13.) Maicon 2-0 (60.) Figo 3-0 (67.) Staðan 1. Inter 38 30 7 1 80:34 97 2. Roma 38 22 9 7 74:34 75 3. Lazio 38 18 11 9 59:33 62 4. Milan 38 19 12 7 57:36 61 5. Palermo 38 16 10 12 58:5158 6. Fiorentina 38 21 10 7 62:31 58 7. Empoli 38 14 12 12 42:43 54 8. atalanta 38 12 14 12 56:54 50 9. Sampdoria 38 13 10 15 44:48 49 10. udinese 38 12 10 16 49:55 46 11. Livorno 38 10 13 1541:54 43 12. Parma 38 10 12 16 41:56 42 13. Catania 38 10 11 17 46:68 41 14. Reggina 38 12 15 11 52:50 40 15. Siena 38 9 14 15 35:45 40 16. Torino 38 10 10 18 27:47 40 17. Cagliari 38 9 13 16 35:46 40 18. Chievo 38 9 12 17 38:48 39 19. ascoli 38 5 12 21 36:67 27 20. Messina 38 5 11 22 37:69 26 spænski boltinn Valencia -Villareal 2-3 1-0 Villa (21.) 1-1 Forlan (35.), 1-2 Tomasson (79.), 1-3 Forlan (87.), 2-3 Villa (90.) Real Sociedad - Osasuna 2-0 1-0 Lopez (25.), 2-0 Nekounam (33.) Celta Vigo - Betis 2-1 0-1 Robert (30), 1-1 Adrian Lopez (42) 2-1 Baiano (90) Athletic Bilbao - Mallorca 1-0 1-0 Urzaiz (64.) Racing Santander - Levante 2-3 0-1 Ettien (11.), 1-1 Zigic (31.), 1-2 Riga (38.),1-3 Riga (73.), 2-3 Melo (78) Recreativo Huelva - Espanyol 0-1 0-1 Tamudo (81.) Gimnastic - Atletico Madrid 0-2 0-1 Torres (11.), 0-2 Torres (55.) Sevilla -Zaragoza 3-1 1-0 Fabiano (20.),1-1 D´Alessandro (75.), 2-1 Kerzjakov (83.), 3-1 Kanoute (90.) Barcelona - Getafe 1-0 1-0 Ronaldinho (2.) Real Madrid - Deportivo 3-1 1-0 Ramos (29.),1-1 Capdevila (54.), 2-1 Raul (58.), 3-1 van Nistelrooy (75.) Staðan 1. Real Madrid 36 22 6 8 61:37 72 2. Barcelona 36 21 9 6 71:30 72 3. Sevilla 36 21 7 8 64:34 70 4. Valencia 36 20 5 11 52:35 65 5. R.Zaragoza 36 16 10 10 52:40 58 6. a.Madrid 36 16 9 11 42:35 57 7. Villarreal 36 16 8 12 44:43 56 8. getafe 36 14 10 12 38:30 52 9. Recreativo 36 14 8 14 48:49 50 10. Racing 36 12 13 11 42:46 49 11. Espanyol 36 12 12 12 43:48 48 12. Mallorca 36 14 6 16 40:44 48 13. La Coruna 36 11 11 14 27:39 44 14. Osasuna 36 12 7 17 45:47 43 15. Levante 36 9 12 15 33:49 39 16. Betis 36 7 16 13 34:44 37 17. a.Bilbao 36 9 10 17 41:59 37 18. R.Sociedad 36 8 9 19 29:44 33 19. Celta 36 8 9 19 35:56 33 20. Tarragona 36 6 7 23 32:64 25 Nýr sjónvarpssamningur í ensku deildinni þýðir að Derby fær að minnsta kosti 60 milljónir punda í kassann, rúmlega sjö og hálfan milljarð króna. Steph- en Pearson skoraði sigurmarkið, sjö milljarða króna mark og tryggði Derby sæti á meðal þeirra bestu. Þetta er mikill sigur fyrir Billy Davies en hann komst aldrei upp með Preston þrátt fyrir miklar væntingar á þeim bænum. Ekki var búist við miklu af liði Derby County fyrir tímabilið en eftir langa og erfiða baráttu er það komið aftur meðal þeirra bestu eftir fimm ára fjarveru. Leikurinn var ekki nema 40 sekúndna gamall þegar WBA komst í gott færi en Stephen Bywater markvörður Derby varði vel. WBA var mikið sterk- ari aðilinn í fyrri hálfleik og naga leikmennirnir sig væntanlega í handarbökin fyrir að nýta ekki færin sín í hálfleiknum. Þeir vildu fá vítaspyrnu og virtust hafa eithvað til síns máls en Graham Poll sem var að dæma sinn síðasta leik í ensku deildinni lét leikinn halda áfram. Kevin Philips átti síðan gott skot sem hafnaði í tré- verki Derby County. 0-0 í hálfleik og lítið sem benti til að Derby ætti erindi í WBA í síðari hálfleik. Barnes breytir öllu Billy Davies stjóri Derby átti þó ás uppi í erminni og setti Giles Barnes inn á og hann átti eftir að gera gæfumuninn. Barnes átti frábæra sendingu inn á teig WBA þegar klukkutími var liðinn af leiknum, beint á Pearson sem skoraði örugglega framhjá Dean Kiely. Þetta var fyrsta mark Pearsons og það kom á góðum tíma svo ekki sé sterkara að orði kveðið. Það sást þeg- ar á leið leikinn að mikið var í húfi en Poll þurfti oft að stía mönnum í sundur þegar allt virtist vera á leið í bál og brand. Leikmenn WBA enduðu átta stigum fyrir ofan Derby í deildinni en að því var ekki spurt. Leikmenn Derby nýttu færin sem þeir fengu og eru komnir upp í úrvalsdeildina eftir fimm ára hlé. Skotinn Billy Davies var að vonum kátur eftir leik- inn en hann er á sínu fyrsta tímabili með Derby. „Þetta snýst ekkert um peningana heldur vel- gengni klúbbsins, við erum í skýjunum með þessi úrslit. Leikmenn mínir verðskulda þetta, þeir sýndu mikið hugrekki og nú getum við farið og notið sig- ursins. Leikmennirnir inni á vellinum voru frábærir og eiga ekkert nema hrós skilið. Fyrsta markið var mik- ilvægt og við vildum skora það. Við vorum þéttir og skipulagðir og búnir að undirbúa okkur alla vikuna.“ Viðsnúningur Derby vekur athygli Stjóri WBA Tony Mowbray var svekktur og niður- lútur eftir leikinn og lái honum hver sem vill. „Þetta getur verið svo grimmur leikur fótboltinn á tímum. Mér fannst við vera þokkalegir og sýndum góða frammistöðu en stundum fær maður ekki það sem maður á skilið. Þetta var leikur sem var í járnum, mér fannst við vera betri heilt yfir en það voru þeir sem skoruðu mark en ekki við. Derby tók allt úr þessum leik og ég óska þeim bara góðs gengis næsta tímabil. Tækifærin koma og fara en það skiptir bara engu, við töpuðum 1-0 og það skiptir máli. Það hafa ekki ver- ið margir leikir sem við höfum ekki skorað í og mér fannst við gera margt rétt en bara komum ekki bolt- anum yfir línuna. Sigur hefði komið okkur úr þessari deild og að þessu sinni tókst það ekki en við verðum að leggja ýmislegt á okkur í sumar til að reyna aftur að ári.“ Að- spurður hvort hann byggist við miklum breytingum á leikmannahóp sínum sagði hann að tveir til þrír leikmenn muni væntanlega hverfa á brott. „Tveir til þrír fara og væntanlega koma einhverjir inn í staðinn, þannig er fótboltinn. Það eru nokkrir leikmenn í þessu liði sem eiga að spila í úrvalsdeild- inni en við sjáum til þegar tímabilið hefst hvað hafi þá gerst.“ Derby lenti í 20. sæti í deildinni í fyrra, aðeins átta stigum frá falli og var til að byrja með með miðlungslið. „Þetta hefur verið frábær viðsnúning- ur hjá okkur,“ sagði hetjan og markaskorarinn Pear- son. „Þetta var mikilvægt mark og mun lifa lengi í minningunni og ég er bara ánægður fyrir hönd allra sem tengjast Derby County. WBA reyndi hvað það gat til að jafna leikinn en sem betur fer þá héldum við þetta út.“ Framherjinn Steve Howard átti erfitt með mál eft- ir leikinn, slíkar voru tilfinningarnar hjá honum. „Ég er gjörsamlega í skýjunum, eiginlega fyrir ofan þau. Þvílíkur dagur! Þetta var erfitt og WBA er með gott lið en sem betur fer erum það við sem fögnum. Við áttum það skilið og stjórinn, hann á þetta svo sann- arlega skilið.“ Stjórnarformaður Hrútanna, eins og Derby er oftast kallað hér á Íslandi, sagði að árangurinn hefði komið honum á óvart. „Fyrir ári síðan vorum við eiginlega dauðir og grafnir og héldum að tækifærið væri gengið okkur úr greipum en svo var nú ekki. Við vorum með þriggja ára plan í gangi en því hefur nú verið flýtt þökk sé Billy og hans mönnum. Hrós til hans og leikmanna Derby. Þetta hefur gríðarlega þýðingu fyrir okkur og einnig fyrir austurhluta landsins.“ benni@dv.is Derby County komst í gær upp í ensku úrvalsdeildina í knattspyrnu eftir fimm ára dvöl í Coca Cola-deildinni. Liðið lagði WBA á Wembley 1-0 í leik sem var metinn á 60 milljónir punda HRÚTARNIR AFTUR Á MEÐAL ÞEIRRA BESTU Sjö milljarða króna mark Stephen Pearson skoraði sigurmark derby og tryggði liðinu sæti í úrvalsdeild. Síðasti leikurinn graham Poll dæmdi sinn síðasta leik á ferlinum. Erfitt Kevin Philips átti erfitt með að sætta sig við orðinn hlut. Kraftaverkamaðurinn Billy davies stjóri derby hefur breytt liðinu úr fallliði í úrvalsdeildarlið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.