Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Page 19
Það verður erfitt að afmá brosin af andlitum stuðningsmanna Nürn- berg. Eftir langa bið tókst félaginu loks að vinna titil um helgina þegar það lagði Stuttgart 3-2 í frábærum bikarúrslitaleik í Þýskalandi. Á sín- um tíma var Nürnberg eitt stærsta lið landsins og er með níu Þýskalands- meistaratitla á bakinu. Liðið vann 104 leiki í röð á árunum 1918-1922 og var óstöðvandi. En síðustu tvær kyn- slóðir hafa ekki upplifað neinn titil hjá Nürnberg. „Þetta er ótrúleg stund fyrir stuðningsmennina sem hafa staðið við bakið á liðinu í gegnum öll þessi vandamál sem hafa herjað á það,“ sagði Hans Meyer, þjálfari Nürnberg. Félagið féll í þriðju deildina 1996 eftir að sex stig voru tekin af því vegna fjár- hagsörðugleika. Nürnberg náði að klifra upp í efstu deild á ný en féll aft- ur 1999 og 2003. Það komst beint aft- ur upp 2004 en falldraugurinn var þó yfir félaginu þar til Meyer kom 2005. „Þetta er frábær tilfinning og stór- kostlegur áfangi fyrir okkur,“ sagði forsetinn Michael Roth. „Þeir sem muna eftir gullöld félagsins eru komnir til ára sinna. Ég vona að þetta sé upphafið á bjartari tímum. Vænt- ingarnar mega þó ekki vera of miklar of fljótt,“ sagði Roth. Stuðningsmönn- um Nürnberg leiðist það ekki að fé- lagið varð bikarmeistari, sérstaklega í ljósi þess að erkifjendurnir í Bay- ern München fóru titlalausir í gegn- um tímabilið. Nürnberg tekur þátt í UEFA-bikarnum á næsta tímabili eft- ir að hafa endað í sjötta sæti þýsku deildarinnar. Háspenna Stuttgart varð Þýskalandsmeist- ari fyrir rúmri viku en liðið varð fyrir áfalli á 31. mínútu í bikarúrslitaleikn- um á laugardag. Cacau, sem hafði skorað fyrsta mark leiksins, fékk rautt spjald fyrir að kýla mótherja. Danski miðjumaðurinn Jan Kristiansen skoraði sigurmarkið í leiknum á 109. mínútu en staðan að loknum venju- legum leiktíma var 2-2. Stuttgart komst yfir eftir tuttugu mínútna leik gegn gangi leiksins en Nürnberg náði að jafna sjö mínútum síðar þegar Marek Mintal skoraði. Stuttu síðar þurfti Mintal að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Marco Eng- elhardt kom Nürnberg yfir snemma í seinni hálfleik þegar hann skallaði boltann inn eftir hornspyrnu frá Ja- vier Pinola. Stuttgart jafnaði tíu mín- útum fyrir leikslok þegar Pavel Pardo skoraði úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að brotið var á Mario Gomez. elvargeir@dv.is DV Sport ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 2007 19 Monaco - Nancy 2-0 Troyes - Lens 3-0 Lorient - Paris Saint-Germain 0-1 Sochaux - Saint-Etienne 1-0 Lille - Rennes 1-1 Nice - Le Mans 3-3 Lyon - Nantes 3-1 Marseille - Sedan 1-0 Toulouse - Bordeaux 3-1 Valenciennes - Auxerre 1-3 1. Lyon 38 24 9 5 64:27 81 2. Marseille 38 19 7 12 53:38 64 3. Rennes 38 14 15 9 38:30 57 4. Lens 38 15 12 11 47:41 57 5. Bordeaux 38 16 9 13 39:35 57 6. Sochaux 38 15 12 11 46:48 57 7. Toulouse 38 16 8 14 44:43 56 8. auxerre 38 13 15 10 41:41 54 9. Monaco 38 13 12 13 45:38 51 10. Lille 38 13 11 14 45:43 50 11. St.Etienne 38 14 7 17 52:50 49 12. Le Mans 38 11 16 11 45:46 49 13. Nancy 38 13 10 15 37:44 49 14. Lorient 38 12 13 13 33:40 49 15. París Sg 38 12 12 14 42:42 48 16. Nice 38 9 16 13 34:40 43 17. Valenciennes38 11 10 17 36:48 43 18. Troyes 38 9 12 17 39:54 39 19. Sedan 38 7 14 17 46:58 35 20. Nantes 38 7 14 17 29:49 35 Umspil um Meistaradeildarsæti Ajax - AZ 3-0 Heitinga 1-0 (55.), Donk 2-0 (58.), Gabri 3-0 (90.). * Grétar Steinsson lék allan leikinn fyrir AZ Alkmaar. * Ajax fór í Meistaradeildina. Bikarúrslitaleikur Celtic - Dunfermline 1-0 1-0 Jean-Joel Perrier Doumbe (84.). * Theódór Elmar Bjarnason sat á varamannabekk Celtic allan tímann. IFK Göteborg - GAIS 1-0 Halmstads - Brommapojkarna 1-0 Helsingborgs - Örebro 4-1 Djurgarden - AIK 3-1 Malmö - Gefle 1-1 Kalmar - Trelleborg 0-1 1. Elfsborg 9 4 4 1 13:9 16 2. gautaborg 8 4 2 2 13:8 14 3. Halmstad 8 4 2 2 9:8 14 4. djurgarden 8 4 1 3 13:7 13 5. Malmö FF 8 3 4 1 11:6 13 6. Kalmar FF 8 4 1 3 11:8 13 7. gefle 8 3 3 2 7:8 12 8. Hammarby 8 3 2 3 10:5 11 9. Helsingborg 8 3 1 4 11:10 10 10. aIK 8 3 1 4 7:11 10 11. gaIS 8 2 2 4 5:9 8 12. Trelleborg 9 2 2 5 8:16 8 13. Örebro 8 1 4 3 6:12 7 14. Brommapoj. 8 1 3 4 8:15 Sandefjord - Rosenborg BK 1-2 Lyn - Tromsø 4-3 Aalesunds FK - Viking FK 0-2 Odd Grenland - SK Brann 0-2 Lillestrøm SK - Stabæk Fotball 1-1 1. Lilleström 8 5 2 1 17:7 17 2. Brann 8 5 2 1 17:11 17 3. Rosenborg 8 4 1 3 17:12 13 4. Tromsö 8 4 1 3 16:13 13 5. Stabæk 8 3 4 1 9:7 13 6. Viking 8 3 3 2 11:11 12 7. Strömsgodset 8 3 3 2 10:13 12 8. Lyn 8 3 2 3 15:15 11 9. Fredrikstad 8 3 2 3 13:15 11 10. Start 8 2 4 2 13:14 10 11. Sandefjord 8 2 2 4 9:12 8 12. Valerenga 8 2 2 4 6:9 8 13. Álasund 8 1 2 5 10:18 5 14. Odd grenland 8 1 0 7 6:12 3 ÚRSLIT HELGARINNAR Franski boltinn Hollenski boltinn skoski bikarinn sænski boltinn norski boltinn LANGþRáðuR TITILL NüRNbERG Nürnberg varð um helgina bikarmeistari í Þýskalandi þegar liðið lagði sjálfa Þýska- landsmeistarana í Stuttgart í framlengdum úrslitaleik. Forsetinn Michael a. Roth, forseti Nürnberg, var að vonum ánægður með bikarinn. Bikarmeistari Nürnberg kom í veg fyrir að Stuttgart næði tvöföldum sigri í Þýskalandi. Vonbrigði Matthieu delpierre leikmaður Stuttgart var sár og svekktur í leikslok. Sigurkossinn Markvörðurinn Raphael Schäfer kyssir hér unnustu sína. HRÚTARNIR AFTuR á MEðAL þEIRRA bESTu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.