Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Blaðsíða 23
Menning Ljósmynda- sýning Nýverið var ljósmyndagall- eríið Fótógrafí opnað en það er staðsett á Skólavörðustíg 4. Í tilefni opnunarinnar stendur nú yfir sýning á ljósmyndum Ragnars Axelssonar. Sýning- in ber nafnið Kuldi og stendur hún yfir til loka júní. Í galleríinu verða til sölu myndir í takmörk- uðu upplagi eftir marga af fær- ustu ljósmyndurum landsins. Einnig verða til sölu nýjar og gamlar íslenskar ljósmynda- bækur sem og ýmisleg hönnun- arvara sem byggir á ljósmynd- inni. Heimur ljósálfanna Út er komin hjá Eddu bókin Heimur ljósálfanna. Í henni er að finna margvís- legan fróðleik og sögur um ljósálfana og leyniheim þeirra en bækurnar hafa farið sigurför um heiminn undanfarna mánuði. Ljósálfarnir eiga heima í Ljósálfabóli í Hvergilandi og frægasti ljósálfurinn meðal mannfólksins er án efa Skellibjalla, sem er góð vinkona Péturs Pan. ljósmyndun kirkjulist DV Menning ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 2007 23 Unnar Örn Jónasson greip tækifærið fegins hendi þegar honum bauðst að sýna hverja einustu mynd á tölvunni sinni: „Lélegar“ myndir á Ljósmyndasafni Reykjavíkur Stafræna ljósmyndavæðingin hefur komið af stað umbyltingu hjá almenningi sem nú geymir mynda- albúm sín rafrænt á heimilistölvunni. Nú stendur yfir sýning í anddyri Ljós- myndasafns Reykjavíkur á tæplega 4.800 myndum sem Unnar Örn Jón- asson ljós- mynd- ari hefur tekið á síðastliðnum fjórum árum. „Þetta eru myndir í líkingu við þær sem flestir held ég eiga inni á tölvunum hjá sér, myndir sem mað- ur veit ekki alveg hvað maður á að gera við,“ segir Unnar. Hann kveðst því hafa gripið tækifærið þegar Ljós- myndasafnið bauð honum að sýna myndirnar í húsakynnum safnsins í Grófarhúsi. „Sýningin fær fólk kannski til að hugsa svolítið um það hvað sé góð mynd og hvað slæm,“ segir Unnar. „Þegar maður tekur stafrænar mynd- ir er nefnilega mikið um að mað- ur taki nokkrar myndir, haldi einni eftir en hendi hinum og því flokk- un í gangi. Það geri ég ekki á sýn- ingunni heldur eru þarna hreinlega allar myndirnar á tölvunni minni. Meirihlutinn er því í þeim flokki sem myndi kallast „lélegar“ myndir.“ Á sýningunni, sem ber yfirskrift- ina Viðspyrnusafnið, er ekki farin hin hefðbundna leið að setja myndir í ramma og hengja þær upp á vegg heldur er þeim varpað upp með myndvarpa. Spurður hvaða við- spyrnu sé verið að vísa til segir Unn- ar þetta vera vísun í tónlistina sem sé spiluð undir myndasýningunni. „Í titlum laganna kemur fram ákveð- in viðspyrna. En maður getur nátt- úrlega verið að spyrna við mörgu öðru.“ Öllum áhugaljósmyndurun- um? „Nei, alls ekki,“ segir Unnar. „Það er aldrei of mikið af ljósmynd- urum í heiminum.“ kristjanh@dv.is Kirkjulistahátíð í Reykjavík verður haldin í ellefta sinn í ágúst. Í kynningu á dagskrá hátíðarinn- ar fyrir helgi kom fram að hátíð- in í ár verður römmuð inn, ef svo má segja, af Bach og Händel. Verk eftir þessa tvo meistara tónlistar- sögunnar verða nefnilega flutt í upphafi og við lok hátíðarinnar. Af öðrum gestum má nefna heiðurs- gestinn, kontratenórsöngvarann heimsþekkta Robin Blaze, einn fremsta bassasöngvara í veröldinni í dag, Peter Kooij frá Hollandi og Al- þjóðlegu barokksveitina í Haag sem mun leika undir stjórn Harðar Ás- kelssonar. Frumflutningur á óratoríu eftir Händel Kirkjulistahátíð var fyrst hald- in árið 1987 og fagnar því tuttugu ára afmæli í ár. Að þessu sinni er fjörutíu erlendum listamönn- um boðin þátttaka en alls munu á fjórða hundrað flytjenda koma fram. Inga Rós Ingólfsdóttir, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar, segir að undirbúningurinn hafi í raun hafist þegar síðustu hátíð lauk fyr- ir tæpum tveimur árum. Og hún segir barokktónlist verða í önd- vegi í ár. „Við þurfum einhvern veginn á henni að halda á Íslandi. Við stöndum vel að vígi á flest- um sviðum tónlistarflutnings en erum svolítið langt á eftir í barokk- tónlistinni og því finnst okkur há- tíð sem þessi rétti vettvangurinn til að hlúa að henni,“ segir Inga Rós. Hún mælir sérstaklega með H-moll messu Bachs, en þetta er fyrsti flutningur á henni á Íslandi með barokkhljómsveit, og „algjör- um“ frumflutningi á óratoríunni Ísrael í Egyptalandi eftir Händ- el. Robin Blaze syngur í báðum þessum verkum og leiðbeinir auk þess íslenskum einsöngvurum fyr- ir flutning óratoríu Händels. Bæði verkin verða flutt í Skálholtsdóm- kirkju en að öðru leyti fara allir viðburðir fram í Hallgrímskirkju, þar á meðal tvö fyrstu skiptin sem messa Bach verður flutt. Kvikmyndasýning í Hallgrímskirkju Hátíðin spannar margar grein- ar trúarlegra lista en auk barokk- tónlistarinnar verður meðal annars boðið upp á myndlist, kvikmynda- list, unglist, spuna, helgihald og sálmakveðskap. Rétt er að vekja athygli á að hin þögla kvikmynd Dreyers um Jóhönnu af Örk verður sýnd á tjaldi í kirkjuskipi Hallgríms- kirkju á meðan þýska tónskáldið og orgelleikarinn Wilfried Keats fer höndum um orgelið. Ekki er vitað til þess að kvikmynd hafi áður ver- ið sýnd í kirkjunni. Af íslenskum þátttakendum í hátíðinni má nefna fjölda ungra listamanna sem flytja tónlist, gjörninga, spuna og dans í dagskrárliðnum Listavaka unga fólksins, Svava Björnsdóttir verður með myndlistarsýningu og Mót- ettukór Hallgrímskirkju kemur að sjálfsögðu við sögu. Miðasala á viðburði hátíðarinn- ar er þegar hafin á miði.is. Nánari upplýsingar er svo að finna á kirkju- listahatid.is. kristjanh@dv.is Kirkjulistahátíð í Reykjavík verður haldin 11. til 19. ágúst í sumar. Hátíðin var fyrst haldin árið 1987 en hún fer fram annað hvert ár. Barokktónlist verður í önd- vegi að þessu sinni. Tónleikar í Notre Dame Kvennakór Reykjavíkur hefur hlotnast sá heiður að fá að halda tónleika í hinni sögufrægu Notre Dame-kirkju í París, en tónleikarnir verða á morgun. Ekki er gefið að kórar fái að halda tónleika í Notre Dame og þurfti að senda hljómdiska með upptökum kórsins, þegar meta átti um- sóknina. Kórinn hlaut náð hjá ráðamönnum kirkjunnar, eftir áheyrn, og var boðið að halda hálfrar klukkustundar tónleika inni í kirkjunni. Stjórnandi kórsins er Sigrún Þorgeirsdótt- ir og píanó- og orgelleikari er Vignir Stefánsson. Ógnun við velferð barna Á morgun klukkan 12 mun David L. Burton fjalla um rannsóknir sínar á klámi og gerendum kynferðislegs of- beldis og tengja það við rann- sóknartengdar starfsaðferðir í félagsráðgjöf. Burton hefur mikla reynslu af rannsóknum, kennslu og meðferðarþjálfun í Bandaríkjunum og víðar. Hann kemur hingað til lands í tengsl- um við ráðstefnuna Forvarnir eru besta leiðin, í boði Háskól- ans í Reykavík og Blátt áfram hópsins. Fyrirlesturinn verður í Odda, stofu 101. ÞURFUM Á barokktónlist að halda Inga Rós Ingólfsdóttir, fram- kvæmdastjóri Kirkjulistahátíðar „Hátíðir sem þessar gefa nýja orku sem sprengja einhvern ramma.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.