Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Síða 27
Kvikmyndahátíðinni í Cannes lauk um helgina og hreppti leikstjórinn Christian Mungiu hnossið. Gullpálminn fór til Rúmeníu Það var rúmenska kvikmynd- in 4 Months, 3 Weeks and 2 Days eftir Christian Mungiu sem fékk Gullpálmann, aðalverðlaun Cann- es-kvikmyndahátíðarinnar um helgina. Myndin hlaut afbragðs- dóma gagnrýnenda og þótti eiga góða möguleika í pálmann alveg frá því hún var sýnd á fyrstu dög- um hátíðarinnar. Myndin gerist í Rúmeníu þegar stjórn kommúnista er við það að líða undir lok. Aðal- söguhetjan er ung stúlka í háskóla sem neyðist til þess að fara í ólög- lega fóstureyðingu með dramat- ískum afleiðingum. Myndin vann þá einnig gagnrýnendaverðlaunin sem veitt eru af Fipresci, alþjóða- samtökum kvikmyndagagnrýn- enda. Í öðru sæti var kvikmyndin The Mourning Forest eftir japanska leikstjórann Naomi Kawase. Þá fékk bandaríski myndlistarmaðurinn Ju- lian Schnabel verðlaun fyrir bestu leikstjórn, en hann gerði mynd- in The Diving Bell and the Butter- fly. Verðlaun fyrir besta handritið féllu í skaut Fatih Akin fyrir kvik- myndina The Edge of Heaven. At- hygli vakti að allir þeir sem hlutu verðlaun á hátíðinni voru að keppa í fyrsta skipti. Leikstjórarnir Wong Kar Wai, Gus Van Sant, Cohen- bræðurnir og Quentin Tarantino tóku einnig þátt, en áður hafa þeir allir unnið Gullpálmann. Jóhanna Vala fegurðar- drottning Íslands Fegurðardrottning Íslands 2007 var krýnd við hátíðlega athöfn á Broadway á föstudagskvöldið. Það var Jóhanna Vala Jónsdóttir 20 ára Reykjavíkurmær sem var valin ungfrú Ísland þetta árið og mun keppa fyrir hönd þjóðarinnar í Ungfrú heimi sem fer fram seinna á árinu. Í öðru sæti var Katrin Dögg Sigurðardóttir, 21 árs frá Seltjarnar- nesi, og í því þriðja Fanney Lára Guðmundsdóttir, 20 ára úr Kópavogi. Hinn 12 ára gamli Árni Beinteinn Árnason vakti mikla athygli á Stuttmyndadögum og hlaut áhorfendaverðlaunin. ÞRIÐJudaguR 29. maí 2007DV Bíó 27 Verðlaunahafar hátíðarinnar Christian mungiu hlaut gullpálmann fyrir kvikmynd sína 4 months, 3 Weeks and 2 days. YNGSTI KVIKMYNDA- GERÐARMAÐUR ÍSLANDS „Þetta byrjaði allt fyrir rúmlega hálfu ári,“ segir kvikmyndagerðar- maðurinn Árni Beinteinn Árnason um kveikjuna að áhuga sínum fyr- ir kvikmyndagerð. „Þá hringdi vin- kona mín í mig og benti mér á stutt- myndakeppnina Taka 2006. Við gerðum myndina Vandamál og unn- um þá keppni,“ segir Árni sem er ekki nema 12 ára gamall. Hlaut áhorfendaverðlaunin Stuttmyndadögum lauk á fimmtu- daginn og voru um fimmtíu myndir sýndar á tveimur dögum. Árni sendi myndina Ekki er allt sem sýnist til keppni og uppskar fyrir vikið áhorf- endaverðlaunin. „Myndin fjallar um krakka sem eru að byrja aftur í gaggó eftir sum- arfrí,“ segir Árni um myndina. „Það eru tveir nýir krakkar byrjaðir í skól- anum, stelpa og strákur. Aðalsögu- hetjan verður skotin í stelpunni en nýi strákurinn nær í hana,“ segir Árni og lýsir nýja stráknum sem herra fullkomnum. „Söguhetjuna okk- ar grunar að nýi strákurinn sé með óhreint mjöl í pokahorninu og fer að grennslast fyrir um það. Svo verður fólk auðvitað bara að sjá myndina til að komast að því hvað gerist.“ Þótt ungur sé þá sér Árni nán- ast um alla vinnuna þegar kemur að gerð myndanna. „Ég sé um að klippa, taka upp og gera nánast allt sem þarf að gera,“ segir Árni sem skrifar líka handritin sjálfur. Á fjölum leikhúsanna Árni er ekki einungis í kvikmynda- gerð heldur er hann einnig á fullu í leiklistinni. „Ég er kominn í sumarfrí núna en í vetur hef ég verið að leika í tveimur leikritum. Ég var að klára sýn- ingar á Sitji Guðs englar í Þjóðleikhús- inu og eins sýningar á Ronju ræningja- dóttur í Borgarleikhúsinu,“ segir þessi ungi og upprennandi listamaður. Árni stefnir á að vinna frekar að kvikmyndagerðinni þegar tími gefst til í sumar. „Þegar skólinn er búinn fer ég að skipuleggja mig betur og skrifa niður hugmyndirnar sem ég er með,“ segir Árni að lokum og ítrekar að hugmyndirnar séu ekki af skorn- um skammti. asgeir@dv.is Úrslit Stutt- myndadaga 1. sæti In the woodfield/Kjartan Ingvarsson og Lars Skjelbrei 2. sæti Tími Hugans / dögg mósesdóttir 3. sæti a helping hand / Tómas Jóhannesson Áhorfendaverðlaun Ekki er allt sem sýnist / Árni Beinteinn Árnason LOPINN TEYGÐUR MEÐ TÆKNIBRELLUM n Listamennirnir Finnur Arnar, Jón Garðar Henrýsson og Þórarinn Blöndal sýna í aðalsal Skaftfells á Seyðisfirði. n Einar Hákonarson er með málverkasýningu í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5. n Sigurlín M. Grétarsdóttir sýn- ir olíumálverk af brasshljóð- færum í Dalí Gallery. n Sýningin Laddi 6-tugur í Borgarleikhúsinu. Hvað er að gerast? miðvikudagur 18. apríl Árni Beinteinn Árnason Hlaut áhorfendaverðlaun á Stuttmyndadögum. d V m ynd Á sgeir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.