Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 4
„Hún á að gerast að megninu til í Eyjum og í upphafi hennar finnast lík í kjallara eins húsanna sem ver- ið er að grafa upp,“ segir Yrsa Sig- urðardóttir rithöfundur en hennar næsta glæpasaga kemur út í haust. Yrsa segir hugmyndina hafa kvikn- að þegar hún heyrði viðtal við Krist- ínu Jóhannsdóttur verkefnisstjóra og er hún mest hissa á að fleiri hafi ekki stokkið á hugmyndina. Yrsa var í Vestmannaeyjum um síðustu helgi og var með henni í för tökulið frá Svíþjóð sem vinnur að heimildarmynd um norræna glæpa- sagnarithöfunda og velgengni þeirra í útlöndum. Myndin verður einn og hálfur tími að lengd fyrir Þýskalands- markað en eitthvað styttri fyrir mark- aðinn á Norðurlöndum. Yrsa er eini íslenski rithöfundurinn. „Ég býst við því að Arnaldur hafi sagt pass og þess vegna hafi þau talað við mig en ég er glöð og þetta hefur verið mjög gam- an. Þau voru líka með mér á Kára- hnjúkum,“ segir Yrsa. Yrsa segist hafa verið að hugsa út bókina í nokkurn tíma en nú sé komið að því að koma henni í tölvutækt form. Hún hafi fljótt orðið til í stórum dráttum en lengri tíma taki að útfæra smáatriðin. Bókin er þriðja glæpasaga Yrsu sem fjallar um lögfræðinginn Þóru en fyrst kom út bókin Þriðja táknið og svo um síðustu jól kom út bókin Sér grefur gröf. Yrsa segir bækurnar um Þóru geta orðið fleiri en hún ætlar að hafa þessa þá síðustu um þýska fylgi- sveininn Matthew. „Ég er búin að fá leið á honum. Það er erfitt að tvinna Þjóðverja inn í íslenska glæpasögu,“ segir Yrsa. Yrsa hefur skrifað bækurnar með- fram fullu starfi á Kárahnjúkum þar sem hún vinnur sem verkfræðingur. Hún valdi Kárahnjúka til þess að geta skrifað því þrátt fyrir mikla vinnu sleppur hún við eldamennsku og hefur kvöldin laus. Sonur Yrsu ætlar að vinna á Kárahnjúkum í sumar og tíu ára dóttir hennar og eiginmað- ur koma í heimsókn þegar því er við komið. „Ég hlakka til að koma aftur til byggða en verkefni mínu hér lýkur að mestu í haust og þá get ég hafið að- lögun að samfélaginu á nýjan leik.“ miðvikudagur 30. maí 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Bílvelta og útafakstur Fjórir sluppu án teljandi meiðsla úr tveimur bílferðum sem enduðu utan vegar í sitt- hvorum landshlutanum. Bíll valt á Bjarnafjarðarhálsi í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði. Þrír voru í bílnum og slösuðust þeir lítillega. Annar bíll lenti ut- anvegar í Vesturárdal á Aust- fjörðum. Maðurinn var einn í bílnum og slappa hann án telj- andi meiðsla. Keyrði á staur og réðst á löggu Ökumaður var handtekinn eftir að hann ók á ljósastaur og réðist á lögreglumann. Ökumaðurinn keyrði á ljósastaur í fyrrinótt, en talið er að hann hafi verið und- ir áhrifum eiturlyfja. Þeg- ar lögreglan hafði afskipti af manninum brást hann hinn versti við og réðist á lögregl- una. Ökumaðurinn var færður í fangaklefa lögreglunnar á Hverfisgötu í Reykjavík til að sofa úr sér og búist er við að hann verði yfirheyrður þegar hann hefur náð áttum. Margir teknir fyrir hraðakstur Lögreglumenn höfðu í nógu að snúast við hraðaeftirlit í lok hvítasunnuhelgarinnar. Lögreglan á Sauðárkróki tók sextán ökumenn við of hraðan akstur á þjóðvegi eitt, flesta við Varmahlíð og þar í kring. Lög- reglan á Hvolsvelli varð einn- ig vör við hraðakstur og náð tólf ökumönnum sem óku of hratt í Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu. Tveir öku- menn voru einnig kærðir fyrir hraðakstur á Reykjanesbrautinni um Strandarheiði en þar mældist annar ökumannanna á 134 kíló- metra hraða. Innbrot í bíla Brotist var inn í tvo bíla fyrir utan bif- vélaverkstæðið Bílvirkja, á Akur- eyri, í fyrrinótt. Hliðarrúðurnar í báðum bílun- um voru brotnar, en ekki er vitað hverju var stolið úr bílunum. Lögregl- an leitar innbrotsþjófanna en ekkert er enn vitað um þá. Forstöðumaður Fornleifanefndar ríkisins vill að hús sem grófust undir vikri í Vest- mannaeyjagosinu séu grafin upp eins og fornleifar en ekki eins og rannsóknarverkefni á átjándu öld. Verkefnisstjórinn segir verkið unnið í sátt við alla og segir Fornleifa- nefndina velkomna hvenær sem er. „Það er okkar skoðun að allar minj- ar sem grafnar eru upp eigi að heyra undir Fornleifavernd ríkisins en þetta hefur einhvern veginn farið í gegnum Húsafriðunarnefndina,“ segir Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Fornleifanefndar ríkisins, um Pomp- ei-verkefnið í Vestmannaeyjum sem hófst árið 2005. Á fjórða hundrað húsa og bygg- inga grófust undir hraun og ösku í Vestmannaeyjagosinu sem hófst í janúar árið 1973. Pompeiverkefninu er ætlað að hlúa að gosminjunum og gera þær sýnilegri og segir á heima- síðu verkefnisins að þarna sé um að ræða einstakt tækifæri í nútímaforn- leifauppgreftri sem jafnvel eigi sér ekki hliðstæðu í heiminum. Fyrirhug- að er að grafa upp sjö til tíu hús sem fóru undir vikur. „Í grófum dráttum sjáum við fyrir okkur að byggt verði yfir svæðið. Þar verði safn þar sem hægt verður að hverfa aftur til ársins 1973 í Vestmannaeyjum,“ segir Kristín Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri Pompei norðursins. Of ungar fyrir fornleifanefnd Uppgröftur og minjar sem eru yngri en hundrað ára heyra ekki sjálf- krafa undir Fornleifavernd ríkisins. Ákvæði í lögunum kveður þó á um að hægt sé að friða minjar sem eru yngri en eitt hundrað ára og eru til dæmi um slíkt. Kristín Huld hjá Fornleifa- vernd segir að beiðni hafi borist fyrir um tveimur árum þess efnis að starfs- fólk stofnunarinnar myndi líta á gos- leifarnar og að hluti þeirra yrði frið- lýstur. Sá sem þá stjórnaði verkefninu hvarf aftur á móti til annarra verka og því hefur farist fyrir að loka því máli að sögn Kristínar Huldar. „Við teljum ekki gott að haldið verði áfram með verkefnið eins og staðið hefur verið að því. Það ætti að fara fram eins og hver annar fornleifauppgröftur en ekki með sama móti og rannsóknir tíðkuðust á átjándu öld,“ segir Kristín Huld, sem telur að aðkoma fornleifa- fræðinga að verkefninu gæfi því meira gildi. Hún segir verkefnið ekki hafa farið í réttan farveg og það þurfi að skoða betur. „Verkefnið hófst án þess að við vissum af því, þannig að eng- inn sóttist eftir leyfi frá okkur,“ segir Kristín Huld. Þúsund tonn af vikri Kristín Jóhannsdóttir verkefnis- stjóri segir enn verið að grafa frá hús- unum og að rannsóknir inni í þeim séu ekki hafnar, hún vonar að það geti orðið seinnipart sumars. „Það hefur þurft að grafa frá þeim þúsund- ir tonna af vikri og við erum í góðri samvinnu við alla í kringum okkur. Þau hjá Fornleifavernd ríkisins eru velkomin til okkar hvenær sem er, við viljum endilega vinna með sem flest- um sérfræðingum,“ segir Kristín. Nú segir hún helst ríða á hönnun heild- armyndarinnar því þá verði varan fyrst söluvænleg, það sé nauðsynlegt til að afla fjár til verkefnisins sem kost- ar sitt. Kristín segir gott samband vera við flesta sem bjuggu í húsunum þótt þau séu eign Vestmannaeyjabæjar sem greiddi fyrir tjónið á sínum tíma. Ósátt við uppgröft í vestMannaeyjuM Hjördís rut sigurjónsdóttir blaðamaður skrifar: hrs@dv.is „Það ætti að fara fram eins og hver annar fornleifauppgröftur en ekki með sama móti og rannsóknir tíðkuð- ust á átjándu öld.“ gosminjar grafnar upp úr vikrinum Á fjórða hundrað húsa og bygginga grófust undir í gosinu árið 1973. Kristín jóhannsdóttir Segir samband haft við flesta sem í húsunum bjuggu en þau eru í eigu vestmannaeyjabæjar. Uppgröfturinn varð spennusagnahöfundi innblástur: Líkfundur í gosminjum Kristín jóhannsdóttir og Yrsa sigurðardóttir ásamt myndatökufólki frá svíþjóð Yrsu datt líkfundur í gosminjunum í hug eftir viðtal við kristínu og er hún hissa á að fleiri hafi ekki stokkið á hugmyndina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.