Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 6
Ökumenn hópbifreiða og vöruflutn- ingabifreiða þurfa að endurnýja ökuréttindi sín á fimm ára fresti og fá ekki réttindin endurnýjuð fyrr en þeir hafa sótt endurmenntunarnám- skeið. Þetta kemur til með breyttri reglugerð um ökuskírteini sem er til- komin vegna tilskipana Evrópusam- bandsins. Áður áttu þeir að sækja um endurnýjun ökuréttinda á tíu ára fresti og þurftu ekki að sækja nám- skeið áður. Breytingar eiga sér einnig stað á endurnýjun ökuréttinda almennra ökumanna sem nú þurfa að endur- nýja ökuréttindi sín á tíu ára fresti, í stað þess að áður hlutu þeir rétt- indi til sjötugs eftir tveggja ára byrj- endaskírteini. Almennir ökumenn þurfa hins vegar ekki að sækja end- urmenntunarnámskeið til að end- urnýja réttindi sín, líkt og atvinnu- bílstjórar. Aldursmörk atvinnuökuréttinda taka einnig breytingum. Aldurs- mörk þeirra sem geta fengið öku- réttindi á vöruflutningabifreiðar fær- ast frá átján árum í 21 ár. Bílstjórar hópbifreiða geta fengið réttindi við 23 ára aldur en mörkin voru áður 21 ár. Frá og með 10. september 2011 þurfa allir hópbílabílstjórar síðan að sækja endurmenntunarnámskeið til að fá atvinnuréttindi sín endurnýjuð. Vöruflutningabílstjórar eru skyldaðir á námskeið ári síðar. Eiga eftir að rísa upp Pálmar Sigurðsson, starfsmanna- stjóri Hagvagna, hefur kynnt sér þess- ar breytingar og hefur áhyggjur af þróuninni. Hann er sannfærður um að bílstjórum með mikla reynslu eigi eftir að lítast illa á hið nýja fyrirkomu- lag. „Hugmyndin er líklega tilraun til að gera auknar kröfur til stéttar- innar. Þetta hefur nú ekki verið rosa- lega mikið kynnt ennþá og nú eru bílstjórar að vakna upp við það hvað þetta þýðir í raun. Ég get tekið undir að tilraunir til að gera starfið faglegra eru góðra gjalda verðar en ekki er ég viss um að þetta sé rétta leiðin. Það verður að segjast eins og er að mikill hörgull er á meiraprófs- bílstjórum, mikil ósköp, og þetta er svo sannarlega ekki til að hjálpa til í þeim efnum,“ segir Pálmar. „Við erum náttúrlega orðin alþjóðlegt samfélag og erlendir bílstjórar þurfa að sæta sömu reglum. Þetta getur virkað frá- hrindandi á þá líka. Mitt starf felst í því að manna bílana og þessi stefna er ekki alveg til þess fallin að gera starf- ið meira aðlaðandi fyrir nýliða. Svo ekki sé talað um reynsluboltana, á allt í einu að fara að senda þá á skóla- bekk aftur? Það jaðrar við að hægt sé að líta á það sem móðgun. Ég er alveg sannfærður um að þegar þetta fer að fréttast meira með bílstjórana þá eiga þeir eftir að rísa upp. Ég held að mik- ilvægast í þessu sé að reyna að ná fram mýkri lendingu.“ Hvað á að kenna? Helgi Aðalsteinsson vörubílstjóri er hissa á þessum breytingum. Hann segist ekki geta séð sérstakar ástæð- ur fyrir því að skylda atvinnubíl- stjóra sérstaklega til endurmennt- unar umfram aðrar stéttir. „Þetta er ansi spaugilegt og skrítið að skylda eina stétt svona sérstaklega til end- urmenntunar. Ég bíð spenntur eft- ir því að sjá hvað þeir ætla að fara að kenna á þessum námskeiðum. Verða umferðarreglurnar kenndar? Á að kenna manni að keyra upp á nýtt? Þetta finnst mér ekki sniðugt og ótrúlegt að svona lagað sé sett á,“ segir Helgi. „Upphaflega hafa menn farið í starfið og borgað helling fyrir. Ég hélt að fyrir vikið væru menn þá frjálsir til að stunda sína vinnu eins og aðrir. Það verða alveg örugglega einhverjir snillingar sem ekki nenna að standa í svona námskeiðum og detta út úr starfinu fyrir vikið. Mér finnst skrítið að skikka okkur með þessum hætti. Atvinnunnar vegna verður maður líklega að beygja sig undir þetta. Það gefur augaleið því ekki ætla ég að fara á aumingjabæt- ur.“ Ekki á bætandi Valdimar Jónsson, trúnaðar- maður vagnstjóra Stætó bs., tekur í sama streng og óttast verulega að reglulegt námskeiðahald fæli bíl- stjóra frá. Hann segir þessa breyt- ingu á reglugerðinni hrein og klár mistök. „Mér líst ekkert á þessar miðvikudagur 30. maí 20076 Fréttir DV TrausTi HafsTEinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is BÍLSTJÓRAR SKIKKAÐIR TIL AÐ SÆKJA NÁMSKEIÐ Almennir ökumenn eiga að endurnýja öku- skírteini sín á 10 ára fresti. Atvinnubílstjórar þurfa að endurnýja á 5 ára fresti og þurfa áður að sækja endurmennt- unarnámskeið. Þetta kemur til vegna reglna frá Evrópusambandinu. Vörubílstjórar og bílstjórar hóp- bíla verða að sækja endurmennt- unarnámskeið til að fá ökurétt- indi sín endurnýjuð. Á fimm ára fresti þurfa þeir að endurnýja réttindin og almennir ökumenn þurfa framvegis að endurnýja ökuréttindi sín á tíu ára fresti. Óttast er að breytingarnar valdi vandræðum í fámennri stétt meiraprófsökumanna. Tíu ára frestur almennir bílstjórar eiga að endurnýja ökuréttindi sín á tíu ára fresti. Þeir þurfa ekki að sækja endurmenntunarnámskeið. Vörubílstjórar Eru líka skyldaðir til að fara á námskeið áður en þeir fá endurnýjuð ökuréttindi. Það þurfa þeir að gera á fimm ára fresti. fimm ára frestur vagnstjórar þurfa nú, líkt og aðrir bílstjórar hópferðarbíla, að sækja námskeið á fimm ára fresti til að endurnýja ökuréttindi sín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.