Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Síða 19
DV Umræða miðvikudagur 30. maí 2007 19 Undirbúningur Berglind og Héðinn í Ljósmyndaskóla Sissu voru í óðaönn við að leggja lokahönd á ljósmyndasýningu skólans sem var opnuð um helgina og verður opin til 3. júní. Dómstóll götunnar mynDin Á FramsóknarFlokkurinn sér viðreisnar von? P lús eð a Kristján Möller nýr sam- gönguráðherra fær plús frá DV fyrir að lofa því að hann muni ekki gleyma íbúum á höfuðborgarsvæðinu á komandi kjörtímabili. spurningin „Það breytist í sjálfu sér ekki mikið. Það er þó þannig að næstu tvö árin fáum við ekki ný rannsóknar- og nýtingar- leyfi, sem óneitanlega hefur einhver áhrif til framtíðar,“ segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. „að öðru leyti munum við halda okkar vinnu áfram bæði í neðanverðri Þjórsá og á Norðausturlandi þar sem við höfum verið að undirbúa virkjanir. Það er ljóst að samkvæmt stjórnarsáttmál- anum verður ekki ráðist í Skaftárveit- ur, sem oftast eru nú kallaðar Langisjór. Það er svo sem ekkert við því að segja, þetta er ákvörðun eigenda fyrirtækisins. að öðru leyti verða áhrifin ekki veruleg.“ Hvað breytist Hjá LandsvirkjUn með nýrri ríkisstjórn? Ja hérna, svo flokkarnir fá meira en 400 milljónir króna fyrir það eitt að fara í framboð og fá meira en tvö og hálft prósent þjóðar- innar til að kjósa sig. Hverjum hefði nú dott- ið þetta í hug? Ja hérna. Þeir mega alla vega eiga það þessir stjórnmála- menn að þeir vita í hvað er best að eyða skattpeningunum okkar. Þeir eru dáldið sniðugir þessir stjórn- málamenn. Fyrst setja þeir lög um að fækka kjördæmum og stækka þau og þá þurfa flokk- arnir auðvitað að fá aukagreiðsl- ur, svona svo þingmennirnir þeirra geti ferðast um þessi stóru lands- byggðarkjördæmi. Svo setja þeir lög um að þeir megi ekki betla jafn mikla peninga út úr fyrirtækjum og áður. Þá þurfa þeir auðvitað að fá aukagreiðslur til að koma á móti því tekjutapi. Þeir eru dáldið sniðugir að finna leiðir til að verja skattpening- unum okkar á skynsamlegan máta. Dagfari fór nú að-eins að reikna. Ef flokk- arnir fá rúmar 400 milljónir króna úr ríkissjóði fyrir góðan árang- ur í kosningunum og ef 180 þúsund manns greiddu þeim atkvæði þá fá flokkarnir 2.261 krónu fyrir hvert atkvæði sem þeir fengu í kosningunum. Stjórnmála- flokkarnir fá sem sagt borgaða 2.261 krónu fyrir hvert at- kvæði sem við greiddum þeim. Og hverjir eru það sem greiða flokk- unum fé fyrir þau atkvæði sem við greiddum þeim? Jú, það erum víst við. Við greiðum þeim hvort tveggja atkvæði og fé. Ja hérna. Nú hafa flokkarnir þeirra Geirs H. Haarde, Ingibjargar Sól-rúnar Gísladóttur, Guðna Ágústssonar, Steingríms J. Sigfús- sonar og Guðjóns Arn- ar Kristjánssonar nægan pening til að reka sig næstu árin, allt í boði okkar kjósenda og skattgreiðenda. Meira að segja Ómar Ragnarsson og félagar í Íslandshreyfingunni fá pening til að borga upp skuldir úr kosningabarátt- unni þrátt fyrir að ná ekki einum ein- asta manni eða konu á þing. Ja hérna. Annars fór Dagfari að velta fyrir sér hvort ekki mætti stofna fyrirtæki um þetta. Fá eitt- hvert sniðugt fólk, fara í framboð og sjá hvort ekki megi græða á því. Gæti heitið Framboðsflokkurinn eða jafn- vel Vinnumiðlunin. Hmm, kannski seinna heitið sé frátekið. Fá borgað Fyrir atkvæðin okkar DagFari Þeir vaða í peningum Halim Al fínn fýr lesenDur É g las grein í Mannlífi um daginn. Þar var heljarinnar grein um Halim Al sem er sennilega frægastur fyrir að ræna dætrum Sophiu Hansen. Þótt ótrúlegt virð- ist þá virtist hann fínasti gæi. Maður hélt alltaf að hann væri snarruglaður múslimi sem vildi bara kúga konur og lesa Kóraninn. En hvað getur maður sagt. Hann er að vísu með skegg eins og Osama bin Laden en það er sennilega bara tískan þarna í Tyrklandi. Menn eru ekki endi- lega vondir þótt þeir fylgi ákveð- inni tísku. Það kom mér þó á óvart að hann var tilbúinn til þess að fyr- irgefa Sophiu fyrir framhjáhald- ið. Sjálfur hef ég lent í því að kona hélt framhjá mér. Henni hef ég ekki fyrirgefið enn þann dag í dag. Enda ekki til fyrirmyndar að eyðileggja fjölskyldur. Ég er ekki frá því að Halim sé nokkuð göf- ugur maður fyrir að vera tilbúinn að fyrirgefa henni þessa vitleysu. Reyndar tók hann börnin henn- ar. Kannski var það bara sann- gjarnt að hann fyrirgæfi henni þetta. Annars virðist þessi Halim Al bara vera ágætisnáungi. Mað- ur á víst ekki að dæma bókina eftir kápunni. Björgvin „Nei, ég held að hann sé alveg búinn að vera. Þó gæti guðni gert eitthvað til að rétta úr kútnum en ég bind nú ekki miklar vonir við það. Ég hef lítið kynnt mér það hvort valgerður Sverrisdóttir gæti hjálpað þeim eitthvað en ég býst nú ekki neitt sérstaklega við því, hef ekki mikla trú á henni.“ Gunnar Örn arnarsson, 22 ára, bílamálari „Nei, ég held að þeir séu búnir að missa öll tök á þessu. Ég held að guðni Ágústsson muni lítið hjálpa framsókn- armönnum við það að byggja flokkinn upp, ég hef enga trú á honum. valgerð- ur Sverrisdóttir gæti gert eitthvað, ég hef meiri trú á henni. annars held ég að það muni fara þeim vel að vera í stjórnarandstöðu því þetta eru svo miklir tuðarar.“ margrét Fanney bjarnadóttir, 38 ára, öryrki „Já, eiga það ekki allir? Þeir þurfa að endurskoða sitt innra starf, það sem hefur gengið vel hjá þeim og svo það sem hefur gengið illa. Það hafa verið einhver innanflokksátök hjá þeim en ef þau lægir og þeir taka mál sín í gegn ætti þetta nú að ganga hjá þeim.“ ólafur árnason, 40 ára, ráðgjafi Sjónvarpsáhorfandi hissa á framferði forsætisráðherra: Stuttur í spuna Ansi þótti mér Geir H. Haarde stuttur í spuna við fjölmiðlamenn eftir að hafa nýlokið við að tilkynna hvaða þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins fengu ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn í beinni útsendingu. Um leið og hann sleppti síðasta orðinu gekk hann á brott án þess að gefa færi á sér, líkt og hann vissi að von væri á erfiðum eða óþægilegum spurningum fjölmiðlamanna, og mátti sjá undir sóla hans á leiðinni burt. Síðar í sjónvarpsútsendingu Sjónvarpsins og Stöðvar 2 náðist viðtal við forsætisráðherrann og að mínu mati skein úr augum ráðherr- ans að hann nennti ekki að sitja fyr- ir svörum. Annað sem vakti athygli mína í þessum sjónvarpsútsendingum er munurinn á tíma sem það tók þing- flokka Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar að opinbera ráðherra- val sitt. Sjálfstæðismenn afgreiddu málið snaggaralega enda mátti heyra á þingmönnum flokksins að tilkynningu lokinni að ekki sé hefð innan flokksins að mótmæla. Það tók Sam- fylkinguna mun lengri tíma að fara yfir málin og þar á bæ þurftu þingmennirnir greinilega að ræða meira saman. Það er aftur á móti spurning hvort einhver mót- mæli hafi þar komið upp án þess að fjölmiðlar hafi verið látnir vita af því. lesenDur SÍMINN 512 7070 SEM ALDREI SEFUR FRÉTTASKOTDV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur. Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins. www.dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.