Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Qupperneq 22
miðvikudagur 30. maí 200722 Neytendur DV Bílar Lundúnaleigu- bílar til Asíu LTI, sem framleiðir hina sí- gildu Lundúnaleigubíla, ætlar nú að hefja útflutning á bílun- um til Kína og til annarra landa víðar í Asíu á næsta ári. Líklegt er að bílarnir verði seldir á hálf- virði í Asíu miðað við gangverð í Bretlandi. Hafa breskir við- skiptajöfrar jafnvel hugleitt þá viðskiptahugmynd að fjárfesta í nokkrum bílum og flytja þá frá Asíu og aftur til Lundúna í gróðaskyni. Nýjasta gerð þessa þekktu leigubíla nefnist TX4 og er framleidd af fyrirtækinu LTI, sem er í eigu Britain‘s Manga- nese Bronze Holdings, en þeir eru ekki frábrugnir hinum sí- gildu Lundúnaleigubílum. Galileo seinkar Útkomu evrópska staðsetn- ingakerfisins Galileo seinkar auk þess sem útlit er fyrir að það verði dýrara en upphaflega var gert ráð fyrir. Unnið hefur verið að þróun kerfisins að frumkvæði Evrópusambands- ins. Með útkomu þess verða Evr- ópubúar óháðir hinu banda- ríska GPS staðsetningarkerfi sem fyrst og fremst er hugs- að út frá hernaðarsjónarmið- um. Galileo kerfið er hugsað til almennra nota, fyrir bíla, siglingar og borgaralegt flug svo fátt eitt sé nefnt. Kerfið verður nákvæmara en hið bandaríska GPS kerfi og hið rússneska GLONASS. Síðustu fregnir frá Brussel herma að kerfið komi út árið 2011 eða 2012. Ford að selja Volvo Blöð í Svíþjóð eru uppfull af sögusögnum um að BMW sé við það að kaupa Volvo-bílafram- leiðsluna sem er í eigu Ford. Eigendur Ford staðfestu í Fin- ancial Times í gær að viðræður ættu sér stað. Ljóst er að salan kemur nokkuð á óvart því for- svarsmenn Ford sögðu í mars að þeir hygðust eiga Volvo-verk- smiðjurnar áfram. Hins vegar sýndu nýlegar afkomutölur mikið tap á rekstri Ford-fyrirtækisins og í fram- haldi af því er talið að stjórn- endur hafi ákveðið að selja. Nú þegar sumarið er loksins komið fer suma að kítla í bensínfótinn. Þeir sem finna fyrir þessum fiðringi ættu að skella sér á kvartmílubrautina í Kabelluhrauni þar sem allir geta fengið útrás fyrir hraðakstur og það í löglegu umhverfi: „Keppnin byrjar klukkan tvö á laug- ardaginn, en keppendurnir mæta um tíuleytið með bílana sína. Þá verða bílarnir skoðaðir og fara í gegnum öryggisskoðun. Við verð- um líka með æfingu á föstudags- kvöldinu þar sem ökumennirnir geta spreytt sig í brautinni,“ segir Jón Gunnar Kristinsson, varaformaður Kvartmíluklúbbsins. Fyrsta kvart- mílúmót sumarsins verður haldið á kvartmílubrautinni í Kabelluhrauni í Hafnafirði á laugardag. Allir geta keppt „Það getur í raun hver sem er tekið þátt í svona kvartmílumóti. Bílarnir þurfa ekki að vera sérút- búnir eins og í mögum öðrum akst- ursíþróttum. Til dæmis gæti maður mætt með Yarisinn sinn og keppt í kvartmílu á honum. Sá hinn sami mun reyndar væntanlega tapa, en hann getu verið með og kemst hringinn. Ég mætti til dæmis, fyrst þegar ég var að byrja, á Saabinum mínum eins og hann var. Fyrst um sinn keppti ég á honum óbreytt- um. Þegar ég hætti hins vegar að keppa var bíllinn talsvert breyttur því það var búið að eiga heilmikið við hann,“ segir Jón Gunnar. Jón býst við spennandi móti um helgina. „Íslandsmeistararnir frá í fyrra verða flestir með og þeir eru búnir að vinna mikið í bílun- um sínum í vetur. Sigurstrangleg- astir hljóta að vera Leifur Rósen- berg, sem varð Íslandsmeistari í OF flokki í fyrra, Þórður Tómas- son, mikill keppnismaður í kvart- mílu sem endaði að mig minnir í öðru sæti í fyrra, Davíð Ólafsson, formaður Kvartmíluklubbsins og Björn Sigurbjörnsson sem var Ís- landsmeistari í fyrra í þúsund rúm- sentímetra flokki. Svo eru líka alltaf nýir og efnilegir ökumenn að bæt- ast í hópinn,“ segir Jón. Keppt eftir tegundum Á mótinu um helgina verður keppt í ákveðnum flokkum sem fara eftir stærð vélanna í bílunum og ættu allir að finna flokk sem hæfir sínum bíl. „Í sumar stefnum við einnig á að hafa BMW mílu og jafnvel Subaru mílu en þá eru bara þannig bílar sem keppa,“ segir Jón Gunnar. Kvartmíluklúbburinn, sem held- ur mótið, er áhugamannafélag um kvartmílu. Tilgangur félagsins er að sameina áhugamenn um mót- orsport og bílaáhugamennsku, og starfrækja keppnishald á lokuðum svæðum í bílaíþróttum. „Kvartmílu- klúbburinn hefur verið starfræktur í 33 ár og okkar markmið er auðvitað að efla vitund og koma því í kring að hraðakstur skuli ekki stunda á um- ferðagötum,“ segir Jón Gunnar. Kvartmílubrautin, í Hafna- firði er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og líklega líka í Evrópu. „Kvartmíluklúbburinn fór í það að byggja þessa braut árið 1979 en þetta er fyrsta brautin í Evrópu sem er byggð gagngert til þess að keppa í kvartmílu. Við höfum rekið mik- ið starf í kring um þessa braut og hingað koma allt upp í 1.500 hest- afla bílar. Brautin er auðvitað orðin gömul og það er búið að keyra mik- ið á henni. Það stendur til að fara að endurnýja en það fer auðvitað eftir því hvað buddan leyfir. Við erum alltaf að bæta aðstæðurnar, til dæmis erum við núna að ljúka við að setja upp vegrið í kringum brautina svo menn geti ekki keyrt út af henni. Þetta er allt samkvæmt öryggiskröfum nútímans sem voru að sjálfsöguð ekki þegar brautin var byggð 1979. Stefnan er svo í fram- haldinu að setja gras í kring um brautina til þess að við séum með meira og betra öryggi,“ segir Jón Gunnar. Fyllsta öryggis gætt „Við erum alltaf á tánum í þess- um öryggismálum, því við viljum halda hraðakstrinum á lokuðum svæðum þar sem fyllsta öryggis er gætt. Maður þarf ekki annað en að horfa í kring um sig til þess að sjá hversu mikil þörf er á sérstöku svæði til hraðaksturs. Sérstaklega ungir piltar sem byrja á því að keppa í kapphlaupi, síðan á reiðhjólum og fleira sem allt er löglegt, fá bílpróf og hafa ekki stað til þess að fá útrás fyrir þessa keppnisþörf, sína nema undir ólöglegum kringumstæðum, þeir geta komið til okkar og keppt í brautinni á löglegan hátt,“ segir Jón Gunnar í lokin. Það er ennþá snjór á hálendinu og þeir sem vilja fara í almennilega fjallaferð ættu að fara Fjallabaksleið syðri. Þessa dagana er mjög gaman að koma bæði inn á Mænifellssand og inn í Strútslaugar, þar er ennþá snjór og falleg náttúra. Leiðin er erfið og nauðsynlegt er að vera á vel útbúnum bílum og vanir fjallagarpar segja að það sé nauðsynlegt að vera í það minnsta á 46 tommum til þess að komast alla leið. Almennileg fjallaferð Fyrsta kvartmílu- mótið um helgina KriStín H. HALLdórSdóttir blaðamaður skrifar: kristinhrefna@dv.is dragster Þessi bíll er 2000 hestöfl og fór kvartmíluna á 6,99sek og á 320km hraða sem þýðir að bíllinn er hraðskeiðasti bílll á íslandi. íslandsmeistari á ferð íslandsmeistari síðustu tveggja ára Leifur rósinbergsson á Pinto.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.