Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Qupperneq 32
„Hugmyndin kviknaði fyrir mörg-
um árum síðan þegar ég var að selja
gamla DV,“ segir Kristian Guttesen
ljóðskáld og athafnamaður. Hann
hefur fyrst skálda tekið upp þá nýj-
ung að ganga með kortaposa svo
fólk geti keypt ljóðabækur hans með
greiðslukortum. Forlagið JPV gaf
nýlega út ljóðabók hans, Glæpaljóð,
sem er sjötta ljóðabók Guttesens.
Sjálfur segist hann vera götuskáld
og hefur gaman af því að hitta fólk
og selja því bækur á götum úti.
„Þetta virkar svo vel að það mun
engan tíma taka að selja upp í kostn-
að,“ segir Guttesen sem átti einn-
ig 33 ára afmæli í gær. Posaskáldið
Guttesen hefur stundað götusölu
nokkuð lengi. Hann segir hugmynd-
ina um posa hafa blundað hjá sér
lengi. Hún fæddist þegar nafntog-
aður einstaklingur vildi kaupa DV af
Guttesen fyrir allmörgum árum en
sá hafði eingöngu kort. Hann segist
hafa lært af reynslunni og er vopn-
aður posanum hvert sem hann fer.
„Maður dregur bara dýrið upp
úr töskunni og bjargar málunum,“
segir Guttesen sem hefur brugðist
við nýjum tíðaranda þar sem fáir
hafa raunverulega peninga í veskj-
um sínum.
Hann hefur þegar selt vel yfir
hundrað eintök á götunni en tvær
vikur eru síðan bókin hans kom út.
Hann segist hafa beðið JPV útgáf-
una um posann og hún útvegaði
honum einn. Hann segir að minnsta
kosti þriðjung allra seldra bóka fara
í gegnum posann. Að hans sögn tek-
ur fólk þessari nýjung afar vel auk
þess sem hann selji meira en áður.
Svo eru auðvitað þeir sem kaupa
ávallt af honum en þeim er sama
hvort greitt sé með peningi eða kort-
um segir Guttesen.
„Maður er eiginlega að ljóstra
upp atvinnuleyndarmáli,“ segir
hann hlæjandi.
Aðspurður hvað hann ætlaði að
gera á afmælisdeginum sínum seg-
ist hann ætla að mæla göturnar og
njóta veðursins.
„Ég er orðinn þroskaðra skáld,
ég fann muninn þegar ég vaknaði í
dag,“ segir Guttesen sposkur þegar
hann er spurður hvort það sé mun-
ur á að vera 32 ára gamall og 33 ára.
Margt er á döfinni hjá honum en
hann vinnur að leikgerð fyrir ónefnt
leikhús en það mun vera skáldsag-
an Brekkan sem hann undirbýr fyrir
leikhúsgesti. Sjálfur er hann dular-
fullur um framtíðina og segir blaða-
manni að áform hans muni fréttast
fyrr heldur en síðar. valur@dv.is
Alþýðusamband Íslands á skóla þar
sem allt að 150 kennarar vinna sem
réttindalausir verktakar. Um er að
ræða Mími – símenntun, þar fer fram
meirihluti allrar íslenskukennslu fyr-
ir útlendinga ásamt tómstundanám-
skeiðum og starfsmenntun.
„Það má alveg segja það fullum
fetum að hér er um að ræða gervi-
verktöku. ASÍ hefur varað sína félaga
við gerviverktöku. Þess vegna er þetta
hjákátlegt,“ segir Hildur Finnsdóttir,
kennari við skólann. Óánægju mátti
greina meðal fleiri kennara. Fæstir
vildu þó koma fram undir nafni vinnu
sinnar vegna.
Flestir í hlutastarfi
Gylfi Arnbjörnsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir að langflestir
kennarar Mímis séu þar í hlutastarfi
og hafi sín réttindi tryggð hjá öðrum
vinnuveitanda.
„Það er hins vegar engin launung
að þetta hefur þróast þannig að þarna
eru nokkrir kennarar sem hafa haft
þessa kennslu meira og minna sem
aðalstarf,“ segir hann.
Gylfi segir að ef fjölga eigi stöðu-
gildum við skólann sé ljóst að þá þurfi
að vera rekstrarleg vissa fyrir því. „Rík-
ið lagði til 100 milljónir króna til þess-
ara mála nú um áramótin. Þetta fé er
nú uppurið og því ríkir óvissa um fjár-
mögnun starfseminnar á haustmán-
uðum.“ Hann telur að ekki sé réttlátt
að tengja starfsemi Mímis við gervi-
verktöku.
Vara við gerviverktöku
Hildur Finnsdóttir segir alveg
skýrt hvenær um sé að ræða svokall-
aða gerviverktöku sem ASÍ hefur var-
að við. „Það er munur á því að vinna
sem verktaki þar sem maður vinnur á
sínum eigin forsendum í því umhverfi
sem maður velur sér. Það má alveg
segja það fullum fetum að hér er um
að ræða gerviverktöku. Þarna er unn-
ið á þeim forsendum sem þessi stofn-
un velur, í húsnæði sem hún á.“
Hún segir dæmi um kennara sem
hafi unnið árum saman án þess að
hafa veikindarétt. „Ef við fáum kvef
í nös, þá verðum við annað hvort
að hringja í eitt hundrað nemendur
þann daginn, oft fólk sem er nýflutt til
landsins og hefur stundum ekki síma.
Ellega þurfum við sjálf að útvega aðra
manneskju og við fáum engin laun.“
Vildum fastráða fleiri
„Það væri auðvitað ákjósanlegt að
geta fastráðið fleiri, en þessi rekstur
er mjög óöruggur,“ segir Hulda Ólafs-
dóttir, framkvæmdastjóri Mímis.
Hulda segir að notast hafi verið
við svona verktakafyrirkomulag um
langt árabil hjá Mími – símenntun.
„Hjá okkur eru margir kennarar sem
hér hafa unnið sem verktakar í meira
en tíu ár. Við finnum fyrir miklu trygg-
lyndi meðal þessa fólks.“
Hulda segir verkefnastöðu Mím-
is vera afar breytilega, jafnvel inn-
an sama árs, og því sé erfitt að halda
úti stórum hópi fastráðinna kenn-
ara. „Sumir kenna kannski bara tvo
til fjóra tíma á viku en aðrir kenna
hér fimmtíu stundir eða meira á viku
og hafa þetta sem aðalatvinnu,“ segir
Hulda.
miðvikudagur 30. maí 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Er mér nú hvergi óhætt...
Í GERVIVERKTÖKU HJÁ
ALÞÝÐUSAMBANDINU
Um 150 kennarar starfa sem gerviverktakar fyrir Mími – símenntun, sem er í eigu ASÍ:
kristian Guttesen Hefur brugðist við nýjum tíðaranda og býður fólki að borga fyrir ljóðabók sína, Glæpaljóð, með greiðslukorti
á götum úti. Nýmælið mælist vel fyrir og hefur hann selt yfir hundrað bækur á tveimur vikum.
kristian Guttesen gengur um með kortaposa og selur ljóð:
Ljóðskáld vopnað posa
Hringrás sýknuð
Hringrás var sýknuð af 25,6
milljóna króna bótakröfu Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær, en
krafist var bóta vegna sértækra
slökkviaðgerða þegar stórbruni
varð á athafnasvæði Hringrásar í
nóvember 2002.
Fyrirtækið E.T. ehf lagði til
mannskap og tækjabúnað við
slökkvistarfið að beiðni Slökkvi-
liðsins sem síðar fór fram á að
tryggingafélag Hringrásar greiddi
fyrir. Tryggingafélagið hafnaði
kröfunni með þeim rökum að
dekkjahrúgan sem eldur logaði
í hafi verið ótryggð en að henni
beindist tækjabúnaður E. T. helst.
Dæmdur fyrir
líkamsárás
Tvítugur maður var dæmdur í
tveggja mánaða fangelsi skilorðs-
bundið til tveggja ára fyrir tvær lík-
amsárásir.
Önnur árásin átti sér stað fyrir
utan pítsastað í miðborg Reykjavík-
ur. Þá skallaði hann annan mann
með þeim afleiðingum að sá hlaut
kinnbeinsbrot. Einnig réðst hann á
leigubílstjóra fyrir utan heimili sitt
en hann vildi meina að í báðum
tilvikum hefðu fórnarlömbin átt
upptökin að slagsmálunum. Allur
miskakostnaður til fórnarlamba var
felldur niður en maðurinn þarf að
borga málskostnað upp á tæpar 200
þúsund krónur.
Óvíst með
ráðherrabílinn
Jóhanna Sigurðardóttir félags- og
tryggingamálaráðherra hefur ekki
ákveðið hvort hún ætlar að þiggja
ráðherrabíl. Athygli vakti á ráðherra-
árum hennar frá 1987 til 1994 að
hún afþakkaði ráðherrabíl og bíl-
stjóra, ein ráðherra.
„Ég hef nú ekki haft tíma til þess
að spá í það. Það eru nú orðin tutt-
ugu ár síðan ég var ráðherra síðast
og þótt ég hafi neitað ráðherrabíl þá
er ekkert víst að ég geri það núna.
Umferðin er orðin önnur
í dag en hún var fyrir
20 árum og maður
þarf alltaf að vera að
tala í gemsa í bíln-
um þannig að ég er
bara svona að velta
því fyrir mér hvað ég
geri,“ segi Jóhanna
Sigurðardóttir, fé-
lags- og trygg-
ingamálaráð-
herra. Fjöldaslagsmál
Lögreglan í Stavropol þurfti að
skjóta viðvörunarskotum í loft upp
til að róa nokkur hundruð menn,
annars vegar Rússa og hins vegar
innflytjendur frá Kákasus.
Mennirnir slógust með járn-
stöngum, hafnarboltakylfum og
hnífum sem leiddi til þess að einn
Tsjetsjeni var myrtur og átta slösuð-
ust. Tsjetsjeninn hafði lent í útistöð-
um við Rússa með þeim afleiðingum
að fylkingar söfnuðust við bak hvors
um sig með fyrrgreindum afleiðing-
um. Töluverðrar spennu gætir milli
Rússa og innflytjenda um þessar
mundir.
siGtryGGur ari jóhannsson
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Dæmdir fyrir
skotkeppni
Tveir menn á Sauðárkróki voru
dæmdir í sektir fyrir að standa fyr-
ir skotkeppni á skemmtistaðnum
Bar-inn. Þar var auglýst keppnin
SKOTHELGI Á BARNUM og var
hún auglýst í héraðsblaði. Keppn-
in fólst í kappdrykkju áfengra
drykkja.
Þrír tóku þátt í
keppninni en allir
voru þeir undir tví-
tugu. Einn kepp-
andinn hafði ekki
náð átján ára aldri.
Þátttakendur drukku
tópas- og ópalskot
en enduðu allir með
áfengiseitrun á spít-
ala. Báðir aðilarnir ját-
uðu brot sín skýlaust. Voru þeir
annars vegar dæmdir til þess að
greiða hundrað þúsund krónur og
hins vegar tvöhundruð og fimm-
tíu þúsund krónur.