Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Side 2
miðvikudagur 13. júní 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Dóp í tölvum
Sjö voru grunaðir um tilraun
til að smygla 13 kílóum af hassi
og 200 grömmum af kókaíni
en þeir verða ekki sóttir til saka
vegna skorts á sönnunargögn-
um. Smygla átti fíkniefnunum frá
Danmörku, í fjórum tölvum til
Íslands, en efnin voru gerð upp-
tæki í Kaupmannahöfn en send-
ingin síðan látin halda áfram
hingað. Tveir Íslendingar sem
búa í Danmörku og fimm Íslend-
ingar sem búa hér á landi voru
yfirheyrðir en enginn þeirra ját-
aði og var þeim því öllum sleppt.
Að sögn Kolbrúnar Sævarsdótt-
ur, saksóknara hjá embætti rík-
issaksóknara, var ekki hægt að
rekja sendinguna og voru sönn-
unagögn því ekki næg til þess að
ákæra. Tölvurnar voru stílaðar
á fyrirtæki hér á landi en tengist
fyrirtækið ekkert málinu.
Fleiri ferðir til
Vestmannaeyja
Þriðju ferð Herjólfs verður
bætt við á mikilvægum ferðadög-
um sumarsins. Samkvæmt áætl-
un verður ferðunum fjölgað um
ríflega 20 í sumar og ríkisstjórnin
hefur samþykkt tillögu þess efnis.
Kostnaður vegna fjölgunarinnar
er talinn í kringum 30 milljónir
króna en það var ákvörðun Kristj-
áns L. Möller samgönguráðherra
að verða við þessari beiðni frá
bæjarstjórn Vestmannaeyja.
Góðar heimtur
milli skólastiga
Yfirgnæfandi meirihluti
þeirra nemenda sem luku námi í
grunnskóla í vor sóttu um skóla-
vist í framhaldsskóla næsta vetur.
Af 4.500 nemendum sóttu 4.200
um eða tæp 94 prósent. Vinsæl-
ustu skólarnir í ár voru Verzlun-
arskóli Íslands, Menntaskólinn
við Hamrahlíð, Menntaskólinn í
Reykjavík og Kvennaskólinn. Ríf-
lega 400 nemendur fá ekki inni
í vinsælustu skólunum sem þeir
höfðu valið sem fyrsta kost. Þeir
fá hins vegar vist í öðrum skólum
þar sem pláss er nægilegt í fram-
haldsskólunum. Í ár sóttu 3.000
eldri nemendur um vist í fram-
haldskólum landsins, sem ann-
að hvort óska eftir að skipta um
skóla eða hefja nám að nýju.
Einkavæða ekki
Íbúðalánasjóður verður
hvorki einkavæddur né lagður
niður í nánustu
framtíð, segir
Árni Mathiesen
fjármálaráð-
herra.
Framtíð sjóðs-
ins er hins vegar í
skoðun. Að mati
sendinefndar Al-
þjóða gjaldeyris-
sjóðsins, sem kynnti skýrslu sína
í vikunni eru vextir hér á landi of
háir og það skrifast að hluta til á
Íbúðalánasjóð. Nefndin hvatti til
að sjóðurinn verði lagður niður í
núverandi mynd.
Páley Borgþórsdóttir í bæjarstjórn Vestmannaeyja:
Vill fjölga ferðum milli lands og eyja
„Flugfélag Íslands hefur sinnt
okkur vel og við erum ánægð að þeir
treysti sér í að fljúga til Eyja,“ segir
Páley Borgþórsdóttir, en hún situr í
bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar. Á
dögunum voru opnuð tilboð í flug-
leiðina til Vestmannaeyja hjá Ríkis-
kaupum. „Þetta er öflugt félag með
öfluga starfsemi sem kemur okkur
til góða,“ segir Páley, en fyrirfram var
jafnvel búist við því að utanaðkom-
andi aðilar hygðust kaupa Dornier
flugvélar Landsflugs og bjóða einn-
ig í flugleiðina. Á endanum bauð þó
aðeins Flugfélag Íslands í flugleiðina
en til að uppfylla útboðskröfur þurfti
30 sæta flugvél en vélar Landsflugs
eru aðeins 19 sæta. „Vissulega er
samkeppni alltaf góð og við hefðum
viljað sjá hana. Staðreyndin er hins
vegar sú að það treysti sér enginn
annar í þetta. Við fögnum því bara,“
segir Páley.
Gagnrýnisraddir hafa heyrst um
að verð á flugi á milli lands og Eyja
komi til með að haldast hátt og fram-
boð á ferðum komi til með að vanta.
Páley segir að markmiðið sé að reyna
að fá fleiri ferðir og reynslan sýni að
það sé full þörf fyrir fleiri ferðir. „Við
höfum verið með tvær ferðir alla
daga vikunnar, fyrir utan laugardaga
þar sem ein ferð hefur verið farin.
Okkur hefur oft vantað þessa aðra
ferð á laugardeginum,“ segir Páley
en hún segist vilja fjölga ferðum um-
talsvert. „Við vildum helst að ferðum
yrði fjölgað í þrjár á hverjum degi. Ég
held að okkur veiti ekkert af því mið-
að við nýtinguna á sætunum sem er
um 60%. Það snarbreytir öllu lands-
lagi fyrir okkur að geta flogið beint til
og frá Reykjavík,“ segir Páley, en það
þýðir að farnar verði um tuttugu ferðir
á viku. Flugfélag Íslands hóf í október
síðastliðnum flug til Vestmannaeyja.
Félagið hætti flugi til Vestmannaeyja
árið 2001 þar sem mikið tap var á
rekstrinum. Áður höfðu Flugfélag Ís-
lands og Íslandsflug háð mikla sam-
keppni um farþega sem varð til þess
að fjöldi farþega til eyja jókst umtals-
vert. Samkeppnin varð þó til þess að
bæði félögin hættu flugi. Í október
fékk Flugfélag Íslands ríkisstyrk og
samdi ríkið til tíu mánaða. Samning-
urinn sem nú var gerður er til tveggja
ára. einar@dv.is
Flugfélag Íslands mun sinna
flugi til eyja næstu tvö árin.
Olgeir Jónsson, íbúi á Hafnargötu 70 í Reykjanesbæ, er mjög ósáttur við Árna Sigfús-
son bæjarstjóra vegna mistaka í framkvæmdum framan við hús sitt. Böðvar Jónsson,
fulltrúi bæjarráðs í Reykjanesbæ, segir að Olgeir hafi fengið tjónið bætt og segir að
óánægja Olgeirs stafi af því að honum var synjað um vinnu hjá bænum:
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
EYÐILAGÐI HÚSIÐ MITT
Einar Þór SigurðSSOn
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Kjallarinn í húsinu virkaði eins og
sundlaug og ég er búinn að vera í
stöðugri baráttu um að fá þetta borg-
að en það hefur gengið mjög illa,“
segir Olgeir Jónsson, íbúi á Hafnar-
götu 70 í Reykjanesbæ, en í kjölfar
götuframkvæmda á Hafnargötunni
fylltist íbúðin hans af vatni. „Það
stóðu yfir miklar framkvæmdir á
Hafnargötunni og hún var tekin alveg
í gegn. Þeir skiptu meðal annars um
rör og þess háttar en þeir gleymdu að
tengja niðurfallið á íbúðinni.
Ég bjóst við að þarna hefðu orð-
ið mannleg mistök en þegar ég fór að
láta reyna á, að fá þetta borgað færði
bæjarstjórnin fram þau rök að mis-
tökin lægju hjá manneskjunni sem
bjó í húsinu á undan,“ segir Olgeir,
en hann flutti inn í húsið árið 2004,
um það bil ári eftir að umræddar
framkvæmdir hófust. „Það eru dylgj-
ur um það að 53 ára gömul kona sem
bjó þarna á undan mér hafi eyðilagt
þetta.
Það var nánast fyrsta daginn sem
við komum þarna inn sem íbúð-
in fylltist af vatni. Það var um 40 til
50 sentimetra vatn í húsinu þar sem
klósettið var lægsti punktur. Þeir
sögðu mér að það væri bara eðlilegt
og sökin væri okkar,“ segir Olgeir
Olgeir segist vera mjög ósáttur
við sitjandi bæjarstjóra, Árna Sig-
fússon og hefur hann meðal annars
brugðið á það ráð að hengja borða út
í glugga með áletruninni: „Sjálfstæð-
isflokkurinn eyðilagði húsið mitt.“
Olgeir segir einnig að hann hafi boð-
ið sig fram til að taka að sér verkefni
á gröfu en fengið þau skilaboð frá
bænum að ekki væri þörf fyrir krafta
hans. Að sögn Olgeirs hafi bærinn í
staðinn tekið gröfur á leigu hjá fyri-
ræki í bænum og greitt fyrir þær fúlg-
ur fjár á meðan þær stóðu ónotaðar.
níðingsskapur
„Ég er búinn að vera í stöðugri
baráttu um að fá þetta borgað en yfir-
menn bæjarins ekki viljað gera mikið
fyrir mig. Þetta er bara níðingsskap-
ur, þessir menn virðast eiga bæinn
með öllu,“ segir Olgeir og ýjar að því
að ástæðan fyrir því að hann fái svona
litlar bætur liggi hjá tryggingakerfinu.
Bæjaryfirvöld gengust á endanum við
því að laga þurfti skólplagnirnar.
„Þeir leyfðu mér að laga skólpið en
til þess að laga það mátti ég ekki taka
upp gangstéttina fyrir utan húsið. Ég
þurfti að brjóta allt húsið að innan-
verðu og komast þannig að skólpinu.
Þeir borguðu mér svo þann viðgerðar-
kostnað sem var upp á 390.000 krónur
og sögðu að inn í þeirri upphæð væru
bæturnar fyrir þeim óþægindum sem
þetta olli,“ segir Olgeir og segist vilja fá
frekari bætur vegna þessara mistaka.
„Árni Sigfússon sem er yfirmaður fé-
lagsmála hjá bænum hagar sér bara
eins og níðingur. Það er deginum ljós-
ara að það þarf einhverjar breytingar í
bænum,“ segir Olgeir.
Fékk hærri bætur
„Þetta mál var afgreitt frá bæjar-
ráði og maðurinn fékk tjónið bætt
í samræmi við mat tryggingafélags
bæjarins. Hann var mjög ósáttur við
þá upphæð sem við greiddum hon-
um,“ segir Böðvar Jónsson, fulltrúi
bæjarráðs í Reykjanesbæ. Böðvar
segir að Olgeir hafi sent aftur beiðni
um fá greiddar viðbótarbætur og
voru honum greiddar um 300 þús-
und krónur í viðbót við þá upphæð
sem honum voru greiddar áður og
að samkomulag hafi verið gert og
málið væri fullfrágengið. Böðvar seg-
ir að niðurfallið í húsinu hafi ekki
verið tengt við skólpkerfi bæjarins og
hafi aldrei verið. „Þetta er gamalt hús
og hvort það sé bænum að kenna
eða fyrrum íbúum skiptir ekki máli.
Hann fékk tjónið bætt,“ segir Böðvar.
Böðvar telur að rót þessa ósætt-
is sé sú að Olgeir keypti sér gröfur
og hafi sótt um starf hjá bænum, en
ekki fengið. „Því miður var ekkert um
það að ræða. Við höfðum engin sér-
stök verkefni fyrir hann. Við töluð-
um við aðra verktaka sem starfa fyr-
ir bæinn og þeir höfðu ekki not fyrir
hann. Það er ekki hlutverk bæjarins
að halda uppi atvinnubótavinnu,“
segir Böðvar.
„Árni Sigfússon sem er
yfirmaður félagsmála
hjá bænum hagar sér
bara eins og níðingur“
Eyðilegging Hér má sjá eina
áletrun á húsi Olgeirs.
níðingur í bílnum stendur
„níðingur á ekki að stjórna
félagsmálum“