Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Blaðsíða 4
varðar rekstur og tilfærslur ríkissjóðs
eru laun og aðrir þættir sem ráðast
af kjarasamningum og það segir sig
sjálft að ef það á að vera aðhald í rík-
isfjármálum, þá þarf það að koma
fram þar á einhvern hátt.“
Árni telur jafnframt að laun op-
inberra starfsmanna þurfi að vera í
takt við það sem gerist annars staðar
í þjóðfélaginu og aðhald á almenna
markaðinum sé því ekki síður nauð-
synlegt en hjá hinu opinbera.
Sem olía á eld
Hart var deilt á launahækkun
seðlabankastjóra á Alþingi í gær og
krafðist Kristinn H. Gunnarsson þing-
maður Frjálslynda flokksins, skýringa
á því hvað mönnum gengi til með
slíkri hækkun. Helgi Hjörvar þing-
maður Samfylkingarinnar tók und-
ir gagnrýnina og sagði þessar hækk-
anir vera sem olíu á eld í viðkvæmu
ástandi. Þá sagði Lúðvík Bergvinsson
hækkanirnar vera óhóflegar og senda
fráleit skilaboð út í samfélagið.
Árni Mathiesen kvaðst í samtali
við DV ekki hafa sérstaka skoðun á
hækkuninni. „Seðlabankinn er sjálf-
stæður og hluti af sjálfstæði hans er
að ákveða laun sinna starfsmanna og
ég hef ekkert með það að gera.“
miðvikudagur 13. júní 20074 Fréttir DV
Ætlar að kæra
úrskurð
Farbann Viggós Þóris Þóris-
sonar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra verðbréfasjóðs Spari-
sjóðanna, var framlengt um tvo
mánuði í gær. Sagðist Viggó ætla
að kæra úrskurðinn til Hæsta-
réttar.
Hjá efnahagsbrotadeild Ríkis-
lögreglustjóra fengust þær upp-
lýsingar að verið væri að skoða
tengsl málsins við önnur lönd og
að það væri sérlega þungt í vöfum
að þurfa að leita yfir landamæri
til að fá upplýsingar. Viggó var
vikið fyrirvaralaust úr starfi í apríl
vegna meintra bókhaldssvika.
Enn í haldi vegna
skotárásar
Mál karlmanns sem skaut af
haglabyssu að eiginkonu sinni í
Hnífsdal á föstudagskvöld er enn
í rannsókn. Maðurinn var úr-
skurðaður í gæsluvarðhald fram
á föstudag.
Vopnuð sérsveit var kölluð
út eftir að tilkynning barst um
byssumanninn og ríkti umsátur-
sástand um hús hans í nokkrar
klukkustundir. Eiginkonan hlaut
minniháttar áverka í andliti eftir
að hann hleypti af skoti.
Viðbúið er að þegar lögreglan
hefur lokið rannsókn verði málið
sent til saksóknara.
Einkavæða ekki
Íbúðalánasjóður verður
hvorki einkavæddur né lagður
niður í nánustu framtíð, segir
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra.
Framtíð sjóðsins er hins vegar
í skoðun. Að mati
sendinefndar Al-
þjóða gjaldeyr-
issjóðsins, sem
kynnti skýrslu
sína í vikunni eru
vextir hér á landi
of háir og það
skrifast að hluta
til á Íbúðalána-
sjóð. Nefndin
hvatti til að sjóðurinn verði lagð-
ur niður í núverandi mynd.
Árásarmaðurinn
er enn ófundinn
Árásarmaður sem reyndi að
nauðga konu við Þjóðleikhús-
ið aðfaranótt laugardags er enn
ófundinn. Engin vitni hafa gefið
sig fram.
Rannsókn er í fullum gangi og
lýsir lögregla eftir árásarmann-
inum. Hann er talinn vera um
þrítugt, 185 til 190 sentímetrar
á hæð, grannvaxinn, með stutt
mjög dökkt hár og svarta skegg-
brodda eða svart skegg.
Þeir sem hafa upplýsingar um
árásina eru beðnir að hafa sam-
band við lögreglu í síma 444 1000
eða 444 1100.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn segir að halda þurfi aftur af hækkun launa hjá hinu opin-
bera. Seðlabankinn kynnti ráðleggingarnar viku eftir að laun seðlabankastjóra hækk-
uðu um tvö hundruð þúsund krónur. Ekki sömu lögmál fyrir almenna launþega og
seðlabankastjóra segir Halldóra Friðjónsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna.
Ný ríkisstjórn þarf að sýna sterka
forystu í kjaraviðræðum á kjör-
tímabilinu og halda aftur af hækk-
un launa hjá hinu opinbera. Þetta
kemur fram í nýrri úttekt sendi-
nefndar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins
á hagkerfi Íslands. Þetta þarf ríkis-
stjórnin að gera þrátt fyrir skort á
vinnuafli. Seðlabankinn kynnti út-
tekt sendinefndarinnar viku eft-
ir að bankaráð Seðlabanka Íslands
samþykkti umdeilda launahækkun
til handa seðlabankastjóra um tvö
hundruð þúsund krónur. Þar var sú
skýring meðal annars gefin að mikil
samkeppni væri um hæfustu starfs-
menn í fjármálageiranum.
Þarf að ná til allra stétta
Halldóra Friðjónsdóttir formað-
ur Bandalags háskólamanna seg-
ir skýrslu sendinefndarinnar vera
nokkur vonbrigði. Ennþá séu laun hjá
hinu opinbera og á almennum mark-
aði ekki sambærileg. „Það er ekki hjá
hinum almenna launamanni sem
mestar hækkanir hafa orðið á síðasta
samningstímabili. Við þurfum ekki
nema að horfa til síðustu hækkanna
hjá Seðlabankanum.“ Hún undrast
jafnramt rökfærslur fyrir hækkuninni
um að samkeppnin um starfsmenn
sé hörð. „Það virðast ekki gilda sömu
lögmál þegar kemur að heilbrigðis-
og umönnunarstéttum. Framboð og
eftirspurn virðast ekki hafa nein áhrif
þar. Launahækkun seðlabankastjóra
er jafn há því sem nemur mánaðar-
launum hjá starfsfólki í umönnunar-
og hjúkrunarstéttum.“
Aðhald á almenna markaðnum
Árni Mathiesen fjármálaráðherra
segist ánægður með niðurstöðu Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins um íslenskt
efnahagslíf. Skýrslan sé jákvæð, bæði
hvað varðar stöðu efnahagsmálanna í
heild sem og ríkisfjármálastjórnina.
Árni var hins vegar varkár í tali
eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun
um kröfur sendinefndarinnar um að
halda þurfi aftur af launahækkunum
opinberra starfsmanna í kjarasamn-
ingum. „Tveir þriðju hlutar þess hvað
VAlgeir Örn rAgnArSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
FrÁlEit skilaboð
út í samFélagið
„laun opinberra starfsmanna
þurfa að vera í takt við það
sem gerist annars staðar
í þjóðfélaginu.“
Seðlabanki
Íslands
Launahækkun
seðlabankastjóra
nemur mánaðar-
launum starfs-
manna í umönnun-
arstéttum.
Óvirk eftirspurn „Það virðast ekki gilda
sömu lögmál þegar kemur að heilbrigð-
is- og umönnunarstéttum. Framboð og
eftirspurn virðast ekki hafa nein áhrif
þar,“ segir Halldóra Friðjónsdóttir,
formaður Bandalags háskólamanna.
Sjálfstæður Seðlabanki „Seðlabank-
inn er sjálfstæður og hluti af sjálfstæði
hans er að ákveða laun sinna starfsmana
og ég hef ekkert með það að gera,“ segir
fjármálaráðherra.
Tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar um nágrannavörslu gefur góða raun:
Fleiri vilja vera með
„Verkefnið hjá okkur hefur gefið
mjög góða raun og því þótti okkur
alveg sjálfsagt að bera út þennan já-
kvæða boðskap. Þegar sveitarfélög-
in byrjuðu að setja sig í samband við
okkur ákváðum við að best væri að
afhenda Sambandi íslenskra sveit-
arfélaga merkið. Þaðan er hægt að
dreifa boðskapnum um allt land,”
segir Anna G. Ólafsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi á skrifstofu borgarstjóra.
Í gær afhenti Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóri fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Þórði Skúlasyni, merki
tilraunaverkefnis borgarinnar í ná-
grannavörslu. Fyrir vikið fá öll sveit-
arfélög í landinu afnot af verkefni og
geta hafið tilraunir innan sinna bæj-
armarka.
Í samvinnu við hverfamiðstöðv-
ar borgarinnar var ákveðið að hleypa
verkefninu af stokkunum í ákveðn-
um götum í tilraunaskyni. Þær götur
eru; Blesugróf, Brekkustígur, Dverg-
hamrar, Freyjugata, Malarás, Ritu-
hólar, Starrahólar og Trönuhólar.
Íbúar þeirra fengu fræðslu um inn-
brotavarnir og bundust óformlegu
samkomulagi um að líta eftir húsum
og eignum nágranna sinna í götunni
í tímabundnum fjarvistum. Lág-
marks nágrannavarsla felur í sér að
íbúi taki að sér að skrá grunsamlega
hegðun, bifreiðanúmer og lýsingu á
fólki og tilkynni til lögreglu með því
að hringja í símanúmerið 112.
Aðspurð á Anna von á því að verk-
efnið Nágrannavarsla verði stækkað
út hjá Reykjavíkurborg og vonandi
víðar um land. Hún ítrekar mikil-
vægi þess að ekki er ætlast til þess að
þátttakendur taki að sér löggæslu-
hlutverk með því að grípa inn í at-
burðarrás innbrota. „Góður granni
er áhrifaríkasta afbrotavörnin. Við
erum sérlega ánægð með hvernig til
hefur tekist. Bæði hefur þetta aukið
öryggi í þeim götum sem þetta hef-
ur verið prófað í ásamt því að þjappa
íbúum gatnanna saman. Þannig eru
möguleikar á áframhaldandi sam-
stöðu íbúanna í framtíðinni,” segir
Anna. trausti@dv.is
Allir saman nú í samstarfi við lögregluembætti landsins stefna sveitarfélög á
útbreiðslu nágrannavörslu.