Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Síða 6
miðvikudagur 13. júní 20076 Fréttir DV
Þriðja hver króna sem stærstu fyrir-
tækin í Kauphöll Íslands högnuðust
um á síðasta ári var flutt úr landi til
erlendra félaga í eigu Íslendinga,
sem skráð eru í Vestur-Evrópu. Átta
stærstu fyrirtækin högnuðust um
310 milljarða króna á síðasta ári
og færðust þar af um 100 milljarð-
ar króna til eignarhaldsfélaga sem
flest eru skráð í Amsterdam og víðar í
Hollandi. Þetta kemur fram í nýlegri
skýrslu greiningardeildar Lands-
banka Íslands.
Þegar íslensk fyrirtæki hagnast á
sölu á hlutabréfum á öðru fyrirtæki
er þeim gert að greiða 18 prósenta
skatt af söluhagnaðinum. Skattlagn-
ingunni má þó fresta um tvenn ára-
mót og hún fellur niður sé endurfjár-
fest fyrir söluhagnaðinn. Með því að
stofna dótturfélög í Hollandi og end-
urfjárfesta fyrir söluhagnaðinn kom-
ast fyrirtækin hjá því að greiða skatt
af söluhagnaði af eignum sínum í
öðrum hlutafélögum.
Skattatæknilegt mál
Björn Guðmundsson forstöðu-
maður greiningardeildar Lands-
bankans, sem vann skýrsluna seg-
ir stóru fyrirtækin augljóslega sjá
sér hagræði í því að fara þessa leið.
„Þessi aðferð fyrirtækjanna byggir á
tvísköttunarsamningum sem fjár-
málaráðuneytið gerir við önnur
lönd. Í þessum samningum er að
finna ákvæði um mismunandi með-
ferð á fjármagnstekjum og öðrum
sambærilegum tekjum.“
Tvísköttunarsamningar eru ólík-
ir á milli þjóða og bendir Björn á að
Íslendingar geri annars konar tví-
sköttunarsamning við Hollendinga
heldur en til að mynda Þjóðverjar
og Frakkar kunni að gera sín á milli.
Samningar Íslendinga við Hollend-
inga gera þessar leiðir mögulegar auk
þess sem skattaumhverfið í Hollandi
sé stórum fyrirtækjum hagstætt.
Þessar tilfærslur fyrirtækjanna
hafa lítil áhrif hér á landi að mati
Björns Guðmundssonar. „Í þessum
tilvikum fara peningarnir raunveru-
lega ekkert. Hagnaðurinn er bók-
færður og skráður út úr landinu.
Jafnframt er hann færður til baka í
gegnum svokallaðan fjármagnsjöfn-
uð, þannig að í þessum tilvikum er
ekki um raunveruleg áhrif á krónuna
að ræða. Raunverulegir peningar
fara aldrei á milli landa,“ segir hann
og bætir við: „Þetta er einn af þeim
þáttum sem snýr að því að viðskipta-
hallinn er ekki alltaf rétt metinn.“
Hundruð milljarða
Meðal þeirra fjárfestingafélaga
sem stofnað hafa eignarhalds-
félög erlendis eru FL Group og
Exista. FL Group stofnaði dótt-
urfélag um 26 prósenta hlut sinn
í Glitni, en hlutur fyrirtækisins er
metinn á um 95 milljarða króna.
Hannes Smárason, sem á stærst-
an hlut í FL Group, eða 20 prósent
stofnaði félagið Oddaflug BV sem
skráð er fyrir 47 milljarða króna
hlutabréfaeign í félaginu.
Þá hafa Ágúst og Lýður Guð-
mundssynir sem kenndir eru við
Bakkavör, stofnað tvö eignarhalds-
félög í Hollandi, annars vegar Hold-
ing BV sem er skráð fyrir 130 millj-
arða króna hlut í Exista og hins
vegar Exista BV sem
skráð er
fyrir
Hundrað milljarða króna hagnaður stærstu fyrirtækja sem
skráð eru í Kauphöll Íslands færðist til erlendra félaga í
eigu Íslendinga. Stórir íslenskir fjárfestar hafa
stofnað dótturfyrirtæki í Hollandi og endurfjár-
festa fyrir söluhagnað af hlutabréfasölu.
Með þessu geta fjárfestarnir komist hjá
því að greiða skatt af söluhagnaðin-
um eins lengi og þeir endurfjár-
festa. Óveruleg áhrif fyrir
ríkið, segir ríkisskatt-
stjóri.
Valgeir Örn ragnarSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
HUNDRAÐ MILLJARÐAR
FLUTTIR ÚT ÚR LANDINU
„Þetta er einn af þeim
þáttum sem snýr að því
að viðskiptahallinn er
ekki alltaf rétt metinn.“
Holding BV Er skráð fyrir 130
milljarða króna hlut í Exista.
Ágúst og lýður
guðmundssynir Fresta
skattlagningu á söluhagn-
aði fyrirtækja í gegnum
hollensku leiðina.