Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Page 11
DV Fréttir miðvikudagur 13. júní 2007 11
Stjórnvöld í Simbabve hafa verið
hvött til að láta af áreitni sinni í garð
lögfræðinga og hafa stjórn á lög-
reglunni. Alþjóðasamtök lögmanna
sendu fulltrúa sína til Simbabve og
þeim hefði verið brugðið mjög á
ferðalagi sínu um landið. Tilgangur
ferðarinnar var að rannsaka hvern-
ig lögmenn sem styðja stjórnarand-
stöðuna hafa verið kúgaðir og beitt-
ir þvingunum.
„Þetta var mjög átakanlegt,“
sagði kanadíski sendifulltrúinn,
L´Heureux-Dube, í samtali við
fréttastofu BBC. „Þarna voru lög-
fræðingar barðir og lögreglumenn
sem hlýddu ekki skipunum rétt-
arins. Á mínum 30 ára ferli hef ég
aldrei séð neitt þessu líkt.“
Fulltrúarnir ferðuðust um í
fimm daga og kynntu sér staðhætti.
Í kjölfarið lýstu þeir yfir áhyggjum
vegna þess hversu lítið yfirvöld við-
ast skipta sér af starfi lögreglunnar.
Áreitni lögreglumanna í garð lög-
manna var sérstaklega áberandi
og sendifulltrúi frá Kenya sagði að
sér hefði mjög brugðið við að heyra
sögur af því að lögmenn væru barð-
ir á lögreglustöðvum.
Þótti fulltrúum sendinefndar-
innar lögmenn stjórnarandstöð-
unnar í Simbabve sýna af sér mik-
inn styrk þar sem þeir væru að
vinna við erfiðar aðstæður.
„Þeim hefur verið hótað öllu illu
en láta engan bilbug á sér finna. Þeir
eru afar hugrakkir,“ sagði L´Heur-
eux-Dube. „Þessir lögfræðingar eru
að leggja sig í lífshættu fyrir mál-
staðinn.“
Fulltrúar sendinefndarinnar
óskuðu eftir að fá að hitta æðstu
embættismenn landsins en var
þeirri beiðni oft hafnað.
Dómsmálaráðherra, innanríkis-
ráðherra og dómarar sáu sér ekki
fært að hitta þá en ritari dómsmála-
ráðherra og ríkissaksóknari áttu
með þeim fund.
Putin mildast í garð andstæðinga
dag og mánudag. Bukovsky hyggst
bjóða sig fram í forsetakosningum á
næsta ári. Garry Kasparov og stuðn-
ingsmenn hans hafa haldið því fram
að forsetinn og hans fólk hafi tak-
markað aðgang andstæðinga hans
að fjölmiðlum til að tryggja að sá
frambjóðandi sem Pútín mun lýsa
stuðningi við hafi sigur. Pútín má
ekki bjóða sig fram enda hefur hann
bráðum setið í tvö kjörtímabil.
Keppt um útnefninguna
Meðal ræðumanna á ráðstefn-
unni í Sankti Pétursborg um helgina
voru aðstoðarforsætisráðherranir,
Sergei Ivanov og Dmitry Medvedev.
Þeir tveir eru taldir líklegastir til að
verða útnefndir sem frambjóðendur
til forsetaembættisins af hálfu flokks
Pútíns. Þrátt fyrir að kosningabar-
áttan sé ekki hafin með formlegum
hætti er fullyrt á fréttavef BBC að
Ivanov og Medvedev séu nú þegar
komnir í kosningaham. Báðir hafa
þeir verið á ferðalögum um landið
og er talið að Pútín fylgist vel með
frammistöðu þeirra. Það er næsta
víst að sá sem hann lýsir yfir stuðn-
ingi við muni sigra kosningarnar.
Ivanov er talinn sigurstranglegri en
hann var hægri hönd forsetans hjá
rússnesku leyniþjónustunni, KGB á
sínum tíma. Þeir hafa því lengi unn-
ið náið saman og eru sagðir líkir per-
sónuleikar. Í frétt BBC er fullyrt að
vesturveldunum lítist illa á að næsti
forseti Rússlands komi, líkt og Pútín
úr njósnageiranum. Eins er Ivanov
talinn líklegur til að fylgja fast þeirri
stefnu sem Pútín hefur markað í átta
ára forsetatíð sinni.
Þrátt fyrir að andstæðingar Pút-
ín fái nú að safnast saman á al-
mannafæri er enginn sem spáir for-
setaframbjóðanda úr þeirra röðum
sigri í kosningunum. Einn viðmæl-
anda The Guardian úr röðum mót-
mælenda á mánudag segir ástæð-
una vera þá að hinn almenni Rússi
kjósi frekar að vera heima hjá sér og
drekka bjór en að skipta sér af stjórn-
málum.
dauðsföll vegna flóða
Minnst 71 hefur látið lífið og um 640
þúsund manns hafa lent á vergangi
á undanförnum dögum í flóðum og
skriðuföllum vegna mikilla rigninga
í suðurhluta Kína. Talið er að um
56 þúsund heimili hafi eyðilagst í
vatnsflaumnum og sama má segja
um þúsundir hektara nytjalands.
Árlega verða mikil flóð í Kína vegna
rigninga. Borgir og bæir eru flest
varin af sýkjum en minni þorp hafa
síður gert slíkar ráðstafanir og eru
því í meiri hættu.
Veðurfræðingar á svæðinu vara við
frekari rigningu á næstunni og er
stormatími í vændum.
Segir að ástandið í Simbabve sé það versta sem hann hefur séð á 30 ára ferli.
lögmenn barðir á lögreglustöðvum
Sergei Ivanov, aðstoðarforsætis-
ráðherra Er talinn líklegastur til að
verða forsetaframbjóðandi flokks
Pútíns í kosningum
Garry Kasparov Fór fyrir mótmæl-
endum í moskvu á mánudag. Þetta
voru fyrstu mótmæli stuðningsmanna
hans sem ekki eruð stöðvuð af
lögreglu.
Leitin að næsta forseta
að hefjast fyrir alvöru
Lögreglan stöðvar mótmælanda
mótmælendum var ekki leyft að fara út fyrir
ákveðið svæði í miðborg moskvu á
mánudag. Lögreglan hafði ekki jafn mikinn
viðbúnað við mótmælin eins og venja er.
Robert Mugabe, forseti Simbabve Lögreglan hefur hunsað skipanir réttarins og
kúgað lögmenn sem styðja stjórnarandstöðuna þar í landi.