Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Side 12
miðvikudagur 13. júní 200712 Fréttir DV
Síðastliðinn mánudag voru, í
London, fundnir sekir um morð
frændurnir Mahmod Mahmod og
Ari Mahmod. Fórnarlambið var
Banaz Mahmod, tvítug dóttir Mah-
mod Mahmod, en hún hvarf þann
24. janúar á síðasta ári og fundust
líkamsleifar hennar ekki fyrr en
þremur mánuðum síðar í ferða-
tösku sem hafði verið grafin í Birm-
ingham. Nýfallinn dómur hefur
vakið upp umræður um heiðurs-
morð því lögregluyfirvöld lýstu
því yfir að morðið á Banaz væri af
þeim toga.
Ástfangin af „röngum“ manni
Banaz Mahmod, sem var af kúr-
dísku bergi brotin, hafði að mati
ættingja sinna gerst sek um að
verða ástfangin af manni sem ekki
var fjölskyldu hennar samboðinn.
Faðir hennar hafði áður gert til-
raun til að myrða hana, en ekki tek-
ist. Í kjölfarið leitaði Banaz ítrekað
til lögreglunnar, en lögreglan leit
tilræðið ekki alvarlegum augum
og aðhafðist ekkert í málinu. Ban-
az Mahmod fór þá í felur en snéri
síðar heim á ný því hún hélt, þrátt
fyrir allt, að hún yrði örugg í návist
móður sinnar.
Faðir og frændi
Nú hafa faðir Banaz og Ari Mah-
mod frændi hennar verið fundn-
ir sekir um morðið á henni. Auk
þeirra var viðskiptafélagi Ari einn-
ig dæmdur fyrir morðið. Heiðri
fjölskyldunnar var ógnað því unn-
usti hennar var óásættanlegur að
þeirra mati. Ari Mahmod hafði
einnig haft í hótunum við Bekhal,
systur Banaz. Hún var barin og
kölluð hóra. „Ef ég væri faðir þinn
værir þú orðin að ösku núna,“ hef-
ur Bekhal haft eftir honum.
Bekhal hefur fordæmt ættingja
sína fyrir morðið á systur sinni og
fer nú huldu höfði af ótta við ætt-
ingja sína. „Að gera þetta við sitt
eigið hold og blóð er ófyrirgefan-
legt. Fyrirgefning er ekki einu sinni
inni í myndinni. Þeir verðskulda
ekki að vera á þessari jörð,“ sagði
Bekhal Mahmod.
Fleiri heiðursmorð
Talsmenn mannréttinda hafa
varað við því að mál Banaz Mah-
mod sé ekkert einsdæmi, heldur
séu heiðursmorð algengari í Bret-
landi en margir telja. Lögfræðing-
urinn Usha Sood, sem sérhæfir
sig í mannréttindamálum og mál-
efnum asískra fjölskyldna, lét hafa
eftir sér að svokallaðir heiðurs-
glæpir, hvort sem um væri að ræða
morð eða ekki, yrðu sífellt algeng-
ari og tilfellin skiptu hundruðum
ár hvert.
Neyddar til sjálfsmorðs
Í viðtali við BBC sagði Diana
Nammi sem vinnur hjá Réttinda-
samtökum íranskra og kúrdískra
kvenna að lögregluyfirvöld í Bret-
landi yrðu að líta vandamálið al-
varlegum augum. Nammi telur
að um sé að ræða fjölmörg tilfelli
heiðursmorða. „Það er fjöldi tilfella
þar sem konur hafa verið neyddar
til sjálfsmorða,“ sagði Nammi. Að
sögn Diönu Nammi hafði Banaz
Mahmod í fleirgang leitað til lög-
reglunnar, en enga aðstoð fengið
og að lokum verið myrt. „Það er
í raun engin deild innan lögregl-
unnar sem sérhæfir sig málum
tengdum heiðursmorðum,“ sagði
Diana Nammi.
Yfirvöld meðvituð
um vandamálið
Lögregluyfirvöld á Bretlandi eru
þrátt fyrir allt meðvituð um vanda-
málið. Fyrir tveimur og hálfu ári
síðan skar lögreglan upp herör
gegn heiðursmorðum og heimilis-
ofbeldi sem virtist vera fylgifiskur
fjölskyldna frá Suður-Asíu. Fórnar-
lömbin voru fyrst og fremst konur
sem höfðu farið í bága við strangar
hefðir og menningu þjóðar sinnar.
Á þeim tíma upplýsti saksóknarinn
Nazir Afsal að vitað væri um eitt-
hundrað og sautján tilfelli síðast-
liðin tíu ár, þar sem fólk hefði ver-
ið myrt eða horfið af yfirborði jarðar
og aðstæður gæfu ástæðu til að ætla
að um heiðursglæpi væri að ræða.
Ekki eingöngu Suður-Asía
Síðan þá hefur komið í ljós að
vandamálið tengist ekki eingöngu
fjölskyldum frá ríkjum Suður-Asíu.
Önnur ríki og menningarsvæði
koma líka við sögu. Á Bretlandi
tengjast fjölskyldur frá Austur-
Evrópu þessu vandamáli. Þar má
nefna fólk frá Tyrklandi, Albaníu
og Bosníu og Hersegóvínu. Einn-
ig tengjast slík mál fólki frá Grikk-
landi og Ítalíu. En yfirgnæfandi er
fjöldi tilfella sem tengjast fjölskyld-
um frá Mið-Austurlöndum.
„Ef ég væri faðir þinn
værir þú orðin að
ösku núna,“
HEIÐURSMORÐUM FJÖLGAR
KolbEiNN þorStEiNSSoN
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Talið er að heiðursmorðum hafi fjölgað verulega
í Bretlandi undanfarin ár. Nú síðast voru frænd-
ur fundnir sekir um að hafa myrt dóttur annars
þeirra. Sök hennar var að þeirra mati að hafa
orðið ástfangin af röngum manni.
banaz Mahmod gékk í bága
við vilja fjölskyldunnar.
Kúrdískar konur mótmæla
heiðursmorðum í istanbúl í
Tyrklandi fyrr á þessu ári.
Móðir og frænka í haldi lögreglu í tyrklandi 2004 Fjölskyldan tók þá
ákvörðun sameiginlega að myrða hina fjórtán ára nuran Haritoglu því henni hafði
verið nauðgað.
Mahmod Mahmod myrti dóttur sína vegna heiðurs fjölskyldunnar.