Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Side 17
DV Sport miðvikudagur 13. júní 2007 17
ÍÞRÓTTAMOLAR
Neil leNNoN til Forest
rauðhærði baráttujaxlinn neil Lennon er
á leiðinni til nottingham Forest. Lennon
spilaði undir stjórn martins O‘neill hjá
Celtic og Leicester
á árum áður þar
sem hann sinnti
„skítverkum“ á
miðjunni. nokkur
lið voru á eftir
Lennon og er vitað
að roy keane,
framkvæmdatjóri
Sunderland, var
hrifinn af leikmanninum. Hann valdi hins
vegar nottingham Forest sem kemur
talsvert á óvart þar sem félagið spilar í
þriðju efstu deild í Englandi.
Spurningin er hvort að Lennon muni
eiga aðsetur í Skírisskógi og færa
sauðsvörtum almúganum í nottingham
gleði. um það skal ósagt látið.
Gillett dreGur úr væNtiNGum
Stuðningsmenn Liverpool hafa hingað
til gert sér vonir um að nýju eigendur
liðsins muni ausa peningi í leikmanna-
kaup í sumar. nú er hins vegar útlit fyrir
að rafael Benitez þurfi að sætta sig við
að halda sömu stefnu í leikmannamálum
og undanfarin ár.
„Ég las að rafa væri
að kasta
handsprengjum og
væri að gera kröfur
en það gæti ekki
verið fjær
sannleikanum. við
ætlum að eyða
pening, en það
verður innan vissra marka. við munum
ekki eyða eins og drukknir sjóarar,“ sagði
george gillett. Fyrst eftir að gillett og
Hicks keyptu Liverpool voru leikmenn
eins og Samuel Eto‘o, Fernando Torres
og david orðaðir við félagið en síðustu
daga hafa nöfn eins og diego Forlan,
darren Bent og diego milito komið til
sögunnar. Ef til vill er það merki um
minna fjármagn til leikmannakaupa.
malouda til eNGlaNds
jean-michel aulas, forseti Lyon, hefur
sagt að kantmaðurinn Florent malouda
sé á leið til Englands. Hann vildi þó ekki
gefa upp hvaða lið væru að sverma fyrir
kappanum, en Chelsea, Liverpool og
arsenal hafa verið
nefnd til sögunnar.
„Ég mun funda
með yfirmönnum
ensks liðs á næstu
48 tímum.
malouda kostar 25
milljónir evra (2,2
milljarðar króna),“
sagði aulas. „Franck
ribery fór til Bayern fyrir 26 milljónir og
malouda var leikmaður ársins í frönsku
deildinni þannig að ég sé ekki af hverju
verðið ætti ekki að vera svipað,“ bætti
aulas við en malouda verður 27 ára í
dag.
Yrði með sömu lauN oG allt lið-
ið til samaNs
Hollendingurinn jimmy Floyd
Hasselbaink hefur undanfarna daga
verið orðaður við búlgarska liðið Levski
Sofía. Stanimir Stoilov, þjálfari Levski,
segir að erfitt yrði þó að fá Hasselbaink
til liðsins. „Ég tel að
það yrði mjög erfitt
að fá leikmann eins
góðan og
Hasselbaink til
Búlgaríu þar sem
hann hefur enn
margt að bjóða
enskum liðum. Þar
fyrir utan yrði sá
leikmaður líklega
með jafn há laun og allt liðið til samans,“
sagði Stoilov og bætti við að hann hafi
talað við Hasselbaink fyrir nokkru síðan,
þegar samningur hans við Charlton rann
út. „Hann sagði mér að hann væri að leita
að nýju liði á Englandi og væri með
nokkur tilboð á borðinu.“
middlesbrouGh á eFtir Grétari
raFNi
Sky sports segir frá því að middles-
brough séu á eftir grétari rafni
Steinssyni sem spilar með aZ alkmaar í
Hollandi. grétar er metinn á um fjórar
milljónir punda og er talið að gareth
Southgate sé á höttunum á eftir hægri
bakverði. umboðsmaður grétars, jerry
de koning, lét hafa
eftir sér við
fjölmiðla að
íslendingurinn
hefði mikinn hug
á því að spila í
ensku knatt-
spyrnunni.
Á mánudagskvöldi áttust við 3.
deildar lið Gróttu og 1. deildar lið
Reynis frá Sandgerði í 3. umferð VISA
bikars karla í knattspyrnu. Leikurinn
fór 2-1 fyrir leikmönnum Reynis eft-
ir að staðan hafði verið 1-0 Reyn-
ismönnum í vil í hálfleik. Það var
Guðmundur Gísli Gunnarsson sem
skoraði bæði mörk Reynis en Brynj-
ólfur Bjarnason skoraði mark Gróttu
í leiknum.
Umdeilt atvik átti sér stað rétt
undir lok leiksins þegar Sverri Berg-
steinssyni, leikmanni Gróttu, og Jó-
hanni Magna Jóhannssyni, leik-
manni Reynis, lenti saman eftir að
sá síðarnefndi braut á Sverri á vall-
arhelmingi Gróttu. Gróttumenn
voru þá komnir í ágæta stöðu fjórir
sóknarmenn gegn þremur varnar-
mönnum þegar dómarinn flautar og
dæmir aukaspyrnu. Upphefjast þá
stympingar milli Sverris og Jóhanns
sem enda með því að báðir leik-
menn fá gult spjald frá Guðmundi
Guðmundssyni, dómara leiksins.
Gróttumenn undirbjuggu sig til að
taka aukaspyrnuna og sendu allt sitt
lið inní markteig Reynismanna. Þar
verða einhver læti milli manna sem
enda með því að Andri Sveinsson,
leikmaður Gróttu, var sendur í bað
með rautt spjald. Í kjölfarið flaut-
aði dómarinn leikinn af án þess að
aukaspyrnan væri tekin og leiktím-
inn virtist ekki vera búinn.
Ásmundur Haraldsson, þjálfari
Gróttu, segir að þessar lokamínút-
ur hafi verið ansi undarlegar. „Það
sem gerist þarna í kjölfarið er að
Magnús Jónsson varnarjaxl okkar
fer inní markteiginn og freistar þess
að skora. Þá kemur einn leikmaður
Reynis og hleypur á Magnús og læt-
ur sig falla í jörðina til að reyna að fá
Magnús útaf með rautt spjald. Andri
Sveinsson Gróttumaður kemur þá
að og er pirraður yfir framkomu leik-
manns Reynis. Andri rífur í leikmann
Reynis og reynir að toga hann upp af
jörðinni og þá skallar hann Andra en
lætur sig sjálfur detta í jörðina. Dóm-
arinn gefur þá Andra rautt spjald,“
sagði Ásmundur.
DV setti sig í samband við nokkra
aðila sem voru á leiknum á mánu-
dagskvöldi og voru margir á þeirri
skoðun að tíminn hefði ekki verið
búinn þegar leikurinn var flautaður
af. Nokkrir áhorfendur sögðu að tvær
til þrjár mínútur hefðu átt að vera eft-
ir af venjulegum leiktíma og uppbót-
artími. „Dómarinn segir að það hafi
verið komnar 38 sekúndur fram yfir
venjulegan leiktíma og þá hafi hann
flautað leikinn af. Það er á hreinu að
það hefði átt að bæta töluvert meira
við leiktímann en það. Að mínu mati
flautar dómarinn leikinn af vegna
þess að ætlar sér ekkert að reyna að
leysa málið,“ bætti Ásmundur við.
Jakob Már Jónharðsson, þjálfari
Reynismanna, hafði eilítið aðra sögu
að segja. „Það var kominn töluverð-
ur pirringur í Gróttumenn þegar við
komumst yfir. Þeir höfðu verið sterk-
ir í síðari hálfleik og oft á tíðum verið
nálægt því að komast yfir. Svo skor-
um við og það fer töluvert í pirrurnar
á þeim. Í lokasókninni þá eru tveir af
okkar mönnum slegnir niður í teign-
um, annar skallaður og hinn sleg-
inn í bringuna. Við það þjóta allir af
bekknum hjá Gróttu inn á völlinn
en við reyndum að halda ró okkar,“
sagði Jakob Már.
Jakob Már hélt að meiri tími væri
eftir af leiknum þegar dómarinn
skyndilega flautaði leikinn af. „Dóm-
arinn flautaði leikinn af og sagði að
leikurinn væri búinn. Ég hélt reyndar
að leiktíminn væri ekki búinn. Dóm-
arinn sagði að hann hefði bætt 38
sekúndum við venjulegan leiktíma
en ég er klár á því miðað við skipt-
ingar og annað að hann hefði átt að
bæta meiri tíma við. En hann ákvað
að flauta leikinn af ábyggilega bara
til að losna við frekari vandræði,“
sagði Jakob.
Reynir fór áfram í 4. umferð VISA bikars karla í fótbolta eftir skrautlegan leik gegn
Gróttu á mánudagskvöldi:
REYNIR ÁFRAM Í
SLAGSMÁLALEIK
barátta Hart
var tekist á í
leik gróttu
og reynis frá
Sandgerði á
mánudags-
kvöldi.
hef´ann Leikmenn gróttu
reyna að verjast sókn
reynismanna.
Fernando alonso er ekki sáttur hjá McLaren en gerir sér grein fyrir aðstæðum:
Liðið fagnar Hamilton meira
Heimsmeistarinn Fernando
Alonso segir að honum líði ekki full-
komlega vel hjá McLaren og telur að
liðið fagni árangri Lewis Hamilton
meira en sínum.
Alonso er hrifinn af árangri hins
22 ára gamla félaga síns en Alonso er
átta stigum á eftir Hamilton í keppni
ökumanna eftir sex keppnir.
„Frá fyrstu stundu leið mér ekki
nægilega vel með hlutina. Ég er í
ensku liði með enskan liðsfélaga sem
er að standa sig frábærlega.
Þú veist að liðið mun leggja allt
í hjálpa honum. Ég gerði mér grein
fyrir því frá fyrstu stundu og ég mun
ekki kvarta yfir því,“ sagði Alonso í
viðtali við spænsku útvarpstöðina
Cadena Ser.
Þegar hann var spurður hvort
tækniliðið hjá McLaren hafi fagnað
sigri Hamiltons í Kanada um síðustu
helgi meira en sigri hans í Malasíu og
Mónakó svaraði Alonso: „Ég fannst
það en þetta er enskt lið.“
Þrátt fyrir að vera átta stigum á
eftir Hamilton hefur Alonso enn
mikla trú á því að hann geti varið
heimsmeistaratitil sinn.
„Ég hef engar áhyggjur. Mér líð-
ur vel og ég veit að sumir hafa meiri
væntingar, en ég er enn þar sem
ég vildi vera þegar ég gekk í raðir
McLaren.“
Alonso telur að þrátt fyrir að
hann aki fyrir enskt keppnislið þá
geri enska pressan upp á milli þeirri
Alonso og Hamilton.
„Sem betur fer hefur spænska
pressan meiri virðingu,“ sagði Alonso
sem gekk í raðir McLaren frá Ferrari
fyrir yfirstandandi tímabil.
dagur@dv.is Félagar hjá mclaren Fernando alonso segir að Hamilton fái meiri hjálp hjá
mcLaren en bætti því við að hann sé ekki að kvarta.