Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Side 18
miðvikudagur 13. júní 200718 Sport DV
Eggert Stefánsson knattspyrnumaður úr Fram sleit krossband í hné í leik liðsins við HK á sunnudag.
Eggert er búinn að vera einstaklega óheppinn með meiðsli á ferlinum og hann segist vera búinn að fá
nóg af fótbolta.
Eggert Stefánsson varnarmað-
ur Framara hefur verið einstaklega
óheppinn með meiðsli á ferli sín-
um. Á sunnudag sleit hann kross-
band eftir samstuð við sóknarmann
HK í leik í efstu deild. Hann segist
hættur í fótbolta.
„Ég var of lengi að losa mig við
boltann og sé leikmann HK koma
frá hægri. Þegar ég ætla að sparka
knettinum frá þá kemur hann inn í
tæklinguna og reynir að fara í bolt-
ann en keyrir í hnéð á mér í leiðinni.
Við það kemur svakalegur slinkur
og svo voru þetta bara öskur, væl og
hrikalegur sársauki. Til þess að bæta
gráu ofan í svart þá skorar HK þegar
ég ligg utan vallar án þess að skipt-
ingin hafi verið framkvæmd. Það
var svekkjandi,“ segir Eggert Stef-
ánsson um atvikið sem batt endi á
feril hans í knattspyrnu.
„Ég vissi strax að ég var mik-
ið meiddur og þegar Pétur sjúkra-
þjálfari byrjaði að spreya á ranga
löpp sagði ég við hann, þetta er
búið, þetta er búið,“ segir Eggert.
Skórnir á hilluna
„Eins og staðan er í dag þá er
ég búinn að leggja skóna á hilluna.
Ég þarf að jafna mig í 6-8 vikur svo
fer ég í aðgerð sem tekur langan
tíma að jafna sig á, allt að einu ári.
Að auki er þetta fremra krossband
sem er slitið sem er víst verra en
þegar aftara krossband fer,“ segir
Eggert.
Meiðslasaga Eggerts á sér fáar
hliðstæður. Um tvítugt hrjáðu
hann dularfull meiðsli í baki. „Það
var skilgreint sem hryggbrot og ég
var látinn liggja í spelku í tvær til
þrjár vikur. Það endaði hins vegar
með því að ég versnaði til muna.
Eftir það flakkaði ég á milli sér-
fræðinga, sjúkraþjálfara og skottu-
lækna en ekkert fannst. Þannig var
þetta næstu þrjú árin og ég var inn
og út úr liði. Svo byrjaði ég bara
að æfa á fullu og reyndi að gleyma
þessu. Fljótlega eftir að ég komst í
gott form tók ég eftir því að ég fann
lítið fyrir þessu þannig að ég beit
bara á jaxlinn.
Svo fór liðbandið árið 2005 þeg-
ar ég var í besta formi ferils míns
og ég kom ekki inn fyrr en í seinni
umferð Íslandsmótsins. Síðan hef
ég verið heill þangað til ég lendi í
þessu núna,“ segir Eggert.
Leikmenn Fram
í slæmu standi
Fram hefur byrjað illa á tíma-
bilinu og segir Eggert af gríðar-
legu knattspyrnuinnsæi að liðið fái
of mörg mörk á sig og ekki skora
nóg. „Sjálfstraustið í liðinu er lítið
og fram að þessu er þetta búið að
vera alveg skelfilegt. Menn verða
að líta í eigin barm í liðinu og hætta
að benda hver á annan. Það er al-
veg á tæru að menn hafa ekki verið
að leggja sig nægilega fram. Það er
mín persónulega skoðun að menn-
irnir sem komu inn í liðið seint og
voru ekki að æfa með liðinu í vet-
ur séu einfaldlega ekki í nógu góðu
formi,“ segir Eggert.
Nálægt atvinnumennsku
Þegar Eggert var rúmlega tví-
tugur var hann talinn með efnilegri
varnarmönnum á landinu. Nokkur
erlend lið hafa sýnt honum áhuga í
gegnum tíðina og fór hann á reynslu
til Barnsley, Stoke, Derby og OB í
Danmörku. Hann segir þetta hafa
verið ólíka reynslu í hvert skipti og
misjafnlega skemmtilegt. Einu sinni
var hann kominn með samning fyr-
ir framan nefið á sér þegar hætt var
við kaup á honum. „Mín besta ferð
var til Barnsley þegar Gaui Þórð-
ar þjálfaði. Þar var ég í þrjár vik-
ur og gekk mjög vel og allt stefndi
í samning. En vegna fjárhagsstöðu
liðsins, sem stuttu seinna var tekið
til gjaldþrotaskipta, varð ekkert úr
samningi,“ segir hinn geðþekki Egg-
ert Stefánsson að lokum og óskar
íþróttadeild DV honum góðs bata.
vidar@dv.is
Er hættur knattspyrnuiðkun
Sterkur varnarmaður Eggert er harður í horn að taka.
Með tærnar upp í loft
Eggert segist líta björtum
augum á tilveruna þrátt fyrir
meiðslin.