Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Síða 19
Það kom að því að maður færi til
Kópavogs, mig vantaði kassa, sem er
ekki auðfengið mál. Ég ákvað fyrst
að að taka hús á áfengisverslun allra
landsmanna eða hvað? Þar komið
sögu leit ég varninginn. Auðfeng-
ið virðist þetta, hugsaði ég. Þetta er
auðfengin bráð. Þarna voru marg-
ir kassar upp í rjáfri og ég hugsaði
með mér hvort ég þyrfti að spyrja?
Ég ákvað að það væri betra að vopna
sig og kaupa fjóra bjóra. Þegar ég var
kominn að nútímakassa eftir ríkis-
ins lögmálum, hugsaði ég hvort ég
þyrfti að biðja um kassa. Ég ákvað
að spyrja starfsmann verslunarinn-
ar:Má ég fá einn kassa? Konan velti
augunum og svaraði mér svo að
kassarnir væru bara fyrir stórkaup-
endur. Ég leit á mína fjóra bjóra og
spurði hana aftur hvort ég mætti
ekki fá einn kassa af þessum fjölda
sem voru þarna upp í lofti? Kon-
an brást illa við og hreytti út úr sér
að ég kassarnir væru eingöngu fyr-
ir stórkaupendur. Þetta er ríkið í öllu
sínu veldi, neitar saklausum manni
um pappakassa. Á endanum lapp-
aðist ég út án kassa. Ég hefði betur
bara tekið hann. Þá hefði enginn
sagt neitt.
Sigyn hefur velt því fyrir sér alveg síðan tilkynnt var um nýjan við-skiptaráðherra hvaða skrifstofu
Björgvin G. Sigurðsson fái í gamla
iðnaðar-og viðskiptaráðuneytinu sem
nú hefur verið skipt í tvennt. Sigyn
hefur einnig verið hugleikið hvaða bíl
hann fái til afnota. Nú er hvort tveggja
komið á hreint og Sigyn er létt. Búið
hefur verið um Björgvin á skrifstofu
sem hýsti viðskiptaráðherra áður en
ráðuneytin voru sam-
einuð - en síðasti
viðskiptaráðherr-
ann sem gegndi
því embætti áður
en ráðuneytið
var sameinað iðn-
aðarráðuneyti var
Matthías Á Matthie-
sen, sá mæti maður. Þá hefur Sigyn
frétt að Björgvin sé nú ekið um á ráð-
herrabíl sem áður var notaður til að
ferja Guðna Ágústsson á milli staða.
Bíllinn hans Guðna stóð óhreyfður
því Einari K. Guðfinnssyni dugar
víst einn bíll undir sig en hann tók
við embætti landbúnaðarráðherra af
Guðna og er sjávarútvegsráðherra að
auki.
Sigyn virðist sem Björgvin G. sé heldur betur nýtinn. Hún veltir því fyrir sér hvort það sé ekki bara
málið að hann fari alla leið í nýtninni
og velji sér aðstoðarmann sem er
fyrrverandi aðstoðarmaður einhverra
þeirra ráðherra sem misstu ráðherra-
embætti sitt í vor. Það voru Guðni Ág-
ústsson, Jónína Bjartmarz,
Jón Sigurðsson, Magnús
Stefánsson, Siv Frið-
leifsdóttir, Valgerður
Sverrisdóttir og Sturla
Böðvarsson.
Það ætti ekki að vefjast fyrir Björgvini að ráða sér aðstoð-armann sem hefur aðstoðað
ráðherra úr öðrum flokkum - meira
að segja ekki þótt þeir hafi verið fram-
sóknarráðherrar því flokkspólitíkin
virðist ekki skipta þar
nokkru máli um.
Sigyn hefur til að
mynda fyrir því
öruggar heim-
ildir að Stein-
grímur Sævarr
Ólafsson sé alls
ekki framsóknarmað-
ur. Að minnsta kosti sagðist hann ekki
vera það á sínum tíma þegar hann var
upplýsingafulltrúi Halldórs Ásgríms-
sonar.
Meðal fyrrum aðstoðarmanna er Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sem hefur
starfað í umhverfisráðuneytinu við
hlið bæði Sivjar Friðleifsdóttur og Jón-
ínu Bjartmarz. Kristrún Lind Birg-
isdóttir, fyrrum aðstoðarskólastjóri
Lindaskóla í Kópavogi, var ráðin að-
stoðarmaður Sturlu eftir að Bergþór
Ólason hætti í fyrra. Guðmundur Páll
Jónsson var aðstoðarmaður Magnús-
ar Stefánssonar félagsmálaráðherra
en hann var áður bæjarstjóri á Akra-
nesi. Þá var Páll Magnússon um hríð
aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdótt-
ur þótt hann sé nú upptekinn forstjóri
Landsvirkjunar. Arnar Þór Sævars-
son lögmaður var aðstoðarmaður Jóns
Sigurðssonar og Eysteinn Jónsson
aðstoðarmaður Guðna Ágústssonar.
Sigyn er því sannfærð um að Björg-
vin hljóti að velja sér einn þess-
ara reyndu aðstoðarmanna vilji
hann halda áfram að endurnýta
sem hingað til.
Skyldi Björgvin líka ætla að
endurnýta aðstoðarmenn?
DV Umræða miðvikudagur 13. júní 2007 19
Í stÍl við bÍl kristján möller nýr samgönguráðherra var í góðu skapi eftir ríkisstjórnarfund í gær-
morgun. kristján brá á leik fyrir ljósmyndara og blaðamann dv og bauð þeim að mynda sig við hlið nýja
ráðherrabílsins, sem var í stíl við jakkaföt ráðherrans þennan dag. athygli vekur að bílafloti ráðherra er
að mestu leyti svartur að lit, en kristján sker sig úr.
Dómstóll götunnar
mynDin
Hver á að borga fyrir Hreinsun gatna við skemmtistaði?
P
lús
eð
a m
ínu
s
Mínusinn í dag fær
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra eftir að
fréttir bárust um að Hafnarfjarðarbær
myndi borga fyrir framkvæmdir við
hús hennar.
spurningin
„Það er erfitt, því það er slegist um
hvert hús,“ segir grímur atlason
bæjarstjóri í Bolungarvík. íbúðalána-
sjóður neitaði nýlega að veita lán
fyrir íbúðarhúsnæði í bænum, vegna
þess að aðrar reglur gilda um
lánaveitingar á landsbyggðinni en í
stórum þéttbýlum. í Bolungarvík er
til dæmis aldrei lánað meira en því
sem nemur 1,5 sinnum hærra verð
en fasteignamat eignarinnar.
Er Ekki hægt
að kaupa hús Í
bolungarvÍk?
NýtiNN
ráðherra
sigyn
Manneskjur
án kennitalna
lesenDur
Einar Ingvi Magnússon skrif-
ar:
Fóstureyðingar eru orðn-
ar svo algengar að það telst árás
og níð á einstaklingsfrelsið að
gagnrýna svo sjáfsagðar athafn-
ir í siðmenntuðum samfélögum.
Konur vilja ráða yfir líkama sín-
um og ófæddum börnum sínum
ef þær hafa orðið svo „óheppn-
ar“ að verða barnshafandi fyr-
ir slysni. En hver er réttur hins
ófædda barns? Hvert er frelsi og
öryggi mannveru á fyrstu vikum
og mánuðum lífsins? Hver talar
máli þeirra?
Í sumum þjóðfélögum er litið
svo á að lífið byrji við getnað og í
Genfarheiti lækna er þeim boð-
ið að vernda líf allt frá getnaði. Ef
mannlífið er svo heilagt að mönn-
um sé refsað fyrir að verða manni
að bana af ásettu ráði, hvers vegna
er þá leyfilegt að deyða mannveru
á fyrstu vikum lífsins í móðurlífi?
Hver setur slík lög? Hver ákveð-
ur að leyfilegt sé að binda endi
á líf mannveru sem byrjað hef-
ur að myndast og er í mótun, en
myndi vernda hana innan við ári
síðar og svo allt hennar líf eftir að
hún hefði fæðst og fengið nafn og
kennitölu?
Hvenær má drepa mann? Lög-
um samkvæmt er það leyfilegt á
fyrstu vikum eftir getnað, þó sá
verknaður sé kallaður fínna nafni,
hvað hvað er fóstureyðing annað
en fósturdráp og fóstur annað en
mannvera? Hvers eiga varnar-
lausu ófæddu börnin að gjalda?
Er ekki kominn tími til að tryggja
þeim frelsi, öryggi og tilverurétt
í þjóðfélagi sem státar sig af að
berjast fyrir auknum mannrétt-
indum?
„Það á borgin að sjá um eins og annað
sem kemur að gatnahreinsun. Það á
ekki að vera neitt öðruvísi með þetta
en annað sem kemur að gatnahreins-
un.“
páll skúlason, 66 ára lögfræðinur
„reykjavíkurborg á að sjálfsögðu á að
borga fyrir hreinsunina. Þetta er í
borginni og á götum úti, þannig að
mér finnst það alveg sjálfsagt.“
helga lára, 23 ára í fæðingar-
orlofi.
„Yfirvöld eiga að borga þetta, hvort
sem það er ríkið eða borgin. Þeir settu
þetta reykingabann á þannig að þeir
eiga að borga þetta.“
Jóhann geir Jónsson 24 ára,
háskólanemi
Birgir Ás skrifar:
Pappakassar
fyrir útvalda
lesenDur
SÍMINN
512 7070
SEM ALDREI SEFUR
F R É T TA S K O TDV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur. Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000
krónur fyrir besta fréttaskot
mánaðarins.
www.dv.is