Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Blaðsíða 20
Menning
miðvikudagur 13. júní 200720 Menning DV
Bók um
Hornstrandir
Út er komin bókin Horn-
strandir – Gengið um eyði-
byggðir frá Snæfjallaströnd til
Ingólfsfjarðar eftir Pál Ásgeir
Ásgeirsson, blaða- og útivistar-
mann. Áður
hefur Páll
sent frá sér
ýmsar ferða-
og göngu-
leiðabækur,
svo sem Bíl
og bakpoka,
Hálendis-
handbókina,
Útivistarbók-
ina og Gönguleiðir. Í bókinni er
fjallað um allar helstu göngu-
leiðirnar á svæðinu, jafnt þær
vinsælustu sem minna þekktar
leiðir, og gefin ráð um hvaðeina
sem að ferðalaginu lýtur. Þá
auka greinargóð leiðakort, GPS-
punktar og fjölmargar litmyndir
mjög gildi bókarinnar. Bókin er
í handhægu broti og plasthlífð-
arkápu. Ný útgáfa af vönduðu
landshlutakorti af Hornströnd-
um fylgir frítt með.
Sögusigling á Akureyri
Hvernig lítur Akureyri út séð af sjó? Hvenær er fyrstu mannaferða getið
á Oddeyrinni? Hvar er elsta hús Akureyrar? Hvernig atvinnustarfsemi
var á Oddeyrinni? Hver byggði Akureyrarkirkju? Svörin við þessum
spurningum fást í sögusiglingu með Húna II í kvöld. Farið verður frá
Torfunefsbryggju við Kaupvangsgilið kl. 19.30 og allir eru velkomnir.
Skapandi sumarstörf hjá Hinu húsinu eru nú að hefjast í fjórða sinn:
Reiðhjólapönkarar, lifandi gínur og Þórbergsvísur
Lifandi gínur, lög við vísur Þór-
bergs Þórðarsonar og pönkarar með
reiðhjólaáhuga er meðal þess sem
fólk má eiga von á frá þátttakendum
í verkefninu Skapandi sumarhóp-
um hjá Hinu húsinu í sumar. Val-
in hafa
verið
þrett-
án fjölbreytt verkefni sem fólki á
förnum vegi í Reykjavík verður boð-
ið upp á að njóta en tæplega fimm-
tíu umsóknir frá ungum listamönn-
um bárust.
Ein af þeim hugmyndum sem
fengu brautargengi í ár er framlag
Tepokans en hann samanstendur
af fimm ungum og efnilegum djass-
nemum sem ætla að varpa rythma-
tískum sprengjum frá hinum ýmsu
heimsálfum á Reykjavíkurborg í
sumar. Dúóið Paradís, sem skipað
er flautuleikara og píanóleikara,
virðist öllu hæglátara en það ætl-
ar meðal annars að spila á dvalar-
heimilum aldraðra, sambýlum og
hjúkrunardeildum spítalanna. Vin-
ir Láru eru tveir ungir menn sem
hafa áhuga á mörgu, til að mynda
bílflautu í Renault-bifreið, söngvar-
anum Bergþóri Pálssyni og hljóm-
sveitinni Hanson. Þeir ætla þó að
einbeita sér að Þórbergi Þórðar-
syni í sumar og spila lög við vísur
hans. Hljóðmyndaklúbburinn Slef-
beri hefur sett sér það markmið að
setja vikulega saman tónlistarvæn-
ar ljósmyndasýningar á fjölförnum
stöðum í borginni en Reiðhjóla-
gengið Ræbbblarnir hefur hins
vegar það markmið að auka reið-
hjólanotkun í höfuðborginni. Um
er að ræða hóp pönkara sem hyggst
smíða og gera við hjól auk þess að
standa fyrir ýmsum uppákomum
tengdum hjólreiðum. Þetta er að-
eins brot af því besta.
Fyrst var boðið upp á Skap-
andi sumarstörf Hins hússins fyrir
þremur árum og hafa þau mælst vel
fyrir hjá fólki sem nýtur blíðunnar,
sem er mismikil eins og alkunna er,
í höfuðborginni. Nánari upplýsing-
ar er að finna á hitthusid.is.
kristjanh@dv.is
„Það sem manni finnst athygl-
isvert þegar maður skoðar þetta er
hvað áhrif Keflavíkurflugvallar eru
mikil,“ segir Eggert Þór Bernharðs-
son sagnfræðingur sem fjallar um
þróun íslenskrar dægurtónlistar á
árunum 1940-1963 í grein í nýjasta
hefti Sögu, tímarits Sögufélagsins.
„Með Kanaútvarpinu kynnist
ungt fólk á Faxaflóasvæðinu nýrri
bandarískri tónlist, það er að segja
rokkinu, en hún átti ekki mjög upp
á pallborðið hjá Ríkisútvarpinu á
sjötta áratugnum,“ segir Eggert.
„Á Vellinum eru svo ýmsir klúbb-
ar þar sem íslenskar hljómsveitir
fá tækifæri til að spila fyrir fjölda
bandarískra hermanna og þetta
styrkir stöðu hljómsveitanna. Það
sem mér finnst því athyglisvert er
þetta tvennt, hvernig annars veg-
ar Kanaútvarpið flytur íslenskum
ungmennum þessa tónlist sem þau
höfðu ekki aðgang að og hvern-
ig það eflir hljómsveitirnar að hafa
þennan markað.“
Kvikmyndirnar spiluðu stóra
rullu
Eggert segir þó ómögulegt að
meta það hvort áhrif veru herliðs-
ins hafi haft meiri eða minni áhrif
en talið hefur verið því engin leið
sé að mæla slíkt. „Hins vegar höfðu
margir af eldri kynslóðinni áhyggj-
ur af því að rokkið hefði slæm áhrif
á unga fólkið og að þjóðleg menn-
ing ætti undir högg að sækja gagn-
vart þessum erlendu menning-
aráhrifum sem herstöðin hafði
auðvitað.“ Kvikmyndirnar spiluðu
stóra rullu í landnámi rokksins á Ís-
landi að sögn Eggerts. „Kvikmynd-
irnar voru öflugar í að kynna rokk-
ið og sýna fólki hvernig dansað var
við rokkið. Rock Around the Clock
er þar sennilega frægust.“
Ekki bara rokkið
Eggert vill lítið segja um það
hvernig hann sér fyrir sér að þróun
dægurtónlistar á Íslandi hefði orðið
ef Bandaríkjamenn hefðu ekki ver-
ið með herlið hér á landi. „Ég er nú
lítið fyrir „ef-sögu“ en það er nátt-
úrlega engin spurning að ef Kana-
útvarpið hefði ekki verið til staðar
hefði þessi tónlist ekki borist jafn
hratt hingað til lands,“ segir Egg-
ert. „Þarna var líka kynnt svo margt,
ekki bara rokkið heldur alls konar
tónlistarstefnur.“
Djassinn var geysilega mikil-
vægur á 5. áratugnum að sögn Egg-
erts. „Það er hins vegar svolítið á
reiki hvað sé djass. Margir notuðu
bara orðið „djass“ yfir dægurtón-
listina. En það sem maður skynj-
ar svolítið í þessari sögu er hvernig
unga kynslóðin er raunverulega að
verða til og verða afl í samfélaginu.
Í gegnum tónlistina fær unga fólkið
ákveðinn kraft. Djassinn ýtir und-
ir það á fimmta áratugnum, síðan
koma dægurlögin á þeim sjötta og
rokkið á seinni hluta þess áratugar.
Svo brýst þetta náttúrlega út með
svo miklum krafti þegar bítlaæðið
hefst. Og þá er eiginlega ekkert aft-
ur snúið.“
kristjanh@dv.is
Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur fjallar um þróun íslenskrar dægurtónlistar á
árunum 1940-1963 í nýjasta hefti Sögu, tímarits Sögufélagsins. Hann segir
Kanaútvarpið, kvikmyndir og djass hafa haft mestu áhrifin á þróunina. TónlisT
KYNSLÓÐIN
VERÐUR TIL
Unga
Eggert Þór Bernharðsson
sagnfræðingur „Ég er nú lítið
fyrir „ef-sögu“ en það er
náttúrlega engin spurning að ef
kanaútvarpið hefði ekki verið til
staðar hefði þessi tónlist ekki
borist jafn hratt hingað til
lands.“
Leikir og
fræðsla
Náttúruskóli Reykjavíkur
verður með leiki og fræðslu
fyrir 8 til 12 ára börn og foreldra
þeirra í Grasagarðinum í Laug-
ardal á morgun. Gróðurinn
í Grasagarðinum er afar fjöl-
breyttur og býður upp á mis-
munandi upplifun og fræðslu,
að því er segir í tilkynningu. Þar
eru ævintýraleg skógarrjóð-
ur, litskrúðug blóm, íslenskar
villtar plöntur og nytjaplöntur.
Með skemmtilegum leikjum
geta börn og foreldrar fræðst
um plönturnar og um leið
nýtur fjölskyldan útiverunnar
saman. Mæting er í lystihúsinu
klukkan 20.
Íslensk sam-
tímahönnun
Ein viðamesta sýning sem sett
hefur verið upp í íslenskri
samtímahönnun, Magma/
Kvika, stendur nú yfir á
Kjarvalsstöðum. Spannar svið
hennar ótal víddir listgreinar-
innar, svo sem húsgögn, fatnað,
ljós, skartgripi, byggingarlist,
vefnað, tækninýjungar og
matargerð. Um 80 fremstu og
framsæknustu hönnuðir
Íslands taka þátt í sýningunni
en þar verða auk þess kynnt
nýsköpunarverkefni fimm
hönnuða, sem gerð eru
sérstaklega fyrir hana. Þessir
hönnuðir eru Ninna Þórarins-
dóttir, Páll Einarsson, Sigríður
Heimisdóttir, Unnur Friðriks-
dóttir og Þórunn Árnadóttir og
spanna verk þeirra allt frá
gólfofni til ljósakjóls.
sköpun