Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Side 21
DV Lífstíll miðvikudagur 13. júní 2007 21
LífsstíLL
Liborius á Laugaveg
verslunin Liborius hefur nú flutt sig um set og mörgum til mikillar gleði er
verslunin nú til húsa á Laugavegi 7. Þar kennir ýmissa grasa og er verslun-
in einstaklega hugguleg og fallega innréttuð og eru fötin sem nú eru seld í
versluninni orðin mjög fáguð og má þar finna fatnað frá frægustu og virtustu
hönnuðum heims, bæði fyrir kvenfólk og karlmenn. Það skemmir heldur ekki
fyrir að verslunin er opin til klukkan níu á fimmtudags- og föstudagskvöldum.
Palestínskt matar- og
menningarkvöld á morgun
ÓkeyPis barnabox
Heimasíðan femin.is býður nú
verðandi og nýbökuðum mæðrum
upp á nýjung sem nefnist Barnabox-
ið. Barnaboxið er gjöf frá femin.is og
inniheldur það sýnishorn af vörum
og ýmis tilboð sem nýtast vel bæði
móður og barni. Það er lítið mál að
eignast ókeypis barnabox en það
eina sem þú þarft að gera er að skrá
þig á femin.is og sækja það í
barnavöruverslunina Fífu. Starfsfólk
femin.is sér svo um að senda
barnaboxið til kvenna sem búa úti á
landi. Barnaboxið inniheldur meðal
annars bleiur, þvottaefni, leikfang og
brjóstakrem.
rakakrem með
sÓLarvörn
nú þegar sólin ætlar loksins að fara
að skína á okkur íslendinga er
mikilvægt að passa sig að brenna
ekki. margir eiga það til að halda að
við séum örugg gagnvart sólbruna
hér á íslandi en svo er alls ekki. Það
sem er mjög fyrirhafnalítið og
sniðugt er krem og varanæring frá
snyrtivöruversluninni maC. kremið
sem ber heitið Studio moisture spf
15 er frábært rakakrem fyrir sumarið
með fimmtán í sólarvörn. kremið
gefur húðinni auk þess mikinn raka
og ljóma. varaþurrkurinn gerir líka
oft vart við sig á tímum hitafarsbreyt-
inga og þá er gott að nota varanær-
ingu sem einnig fæst í maC og heitir
Tinted Lip Condition-
er. varanæring-
in fæst í sex
litum með
fimmtán í
sólarvörn og
nærir varirnar vel
á sólríkum
sumardögum.
Samtökin
Ísland -
Palestína
standa
fyrir
menning-
arkvöldi í
Kebab-
húsinu við
Grensásveg
annað
kvöld.
Náttúruskóli Íslands verður með leiki og fræðslu í Grasagarðinum fyrir átta til tólf
ára börn og foreldra þeirra. Þar getur fjölskyldan fræðst um plönturnar með skemmti-
legum leikjum og notið útiverunnar saman.
Náttúruskóli Íslands hefur starf-
að í eitt og hálft ár. Að sögn Helenu
Óladóttur verkefnisstjóra er skól-
inn þróunarverkefni á vegum Um-
hverfissviðs Reykjavíkur, Mennta-
sviðs Reykjavíkur, Skógræktarfélags
Reykjavíkur og Landverndar.
„Skólinn er starfandi allan árs-
ins hring. Ég vinn með grunn- og
leikskólunum að því að innleiða
útikennslu með námskeiðum fyr-
ir kennara, leiðbeinendur og aðra
áhugasama. Í vetur prófuðum við
okkur áfram með fræðsludagskrá
fyrir hópa, kennara og nemendur, og
naut hún mikilla vinsælda.“
Helena segir það markmið Nátt-
úruskólans að efla útikennslu í
grunn- og leikskólum borgarinnar
og auðvelda skólum að sinna um-
hverfisstarfi og -fræðslu.
„Sú fræðsla fer best fram utan-
dyra,“ segir Helena. „Markmiðið er
að beina sjónum að umhverfinu og
ekki síst að kynna þá hugmynda-
fræði að það megi starfa utandyra að
öllum námsgreinum skólanna. Þessi
aðferð, að vera úti, fara út og nýta ná-
grennið í göngufæri frá skólanum
með sama hætti og kennslustofuna,
er ný af nálinni. Með útikennslunni
er brotin upp hin hefðbundna hlut-
verkaskipan í bekknum og við þær
aðstæður er viðbúið að ólíklegustu
nemendur blómstri. Krakkarnir er
kannski vanir að vera með foreldrum
sínum úti í náttúrunni en það er allt
annar handleggur að vera úti með
skólafélögunum.“
Gott samstarf
Samstarf Náttúruskóla Reykjavík-
ur og Grasagarðsins hófst fyrir einu
ári. Þar fara krakkarnir í náttúru-
leiki og fá að taka þátt í störfum garð-
yrkjufræðinga.
„Við ákváðum að vinna markvisst
að fræðslumálum í garðinum en þar
hafði ekki verið reglulegt fræðslu-
prógram þótt margir skólar hafi nýtt
sér garðinn að einhverju leyti. Í vetur
tókum við vikulega á móti nemend-
um sem léku sér í náttúruleikjum
eins og við köllum þá. Við vinnum
með það sem við finnum í náttúr-
unni, skoðum það, leikum okkur
að því og lærum að þekkja það. Það
skiptir ekki máli hvort krakkarnir viti
hvort blómið heitir túnfífill eða sóley
heldur að þeir átti sig á því að þetta
eru mismunandi fyrirbæri. Að því
loknu eru þau reiðubúin að meðtaka
hvað hlutirnir heita, hvernig þeir
haga sér og hversu ólíku hlutverki
þeir gegna í umhverfinu. Við erum
ekki að velta fyrir okkur næringar-
flutningi og ljóstillífun, slíkur lær-
dómur kemur seinna.“
Helena gerir lítið úr því að lítill
gróður sé í garðinum á veturna.
„Það má alltaf finna eitthvað, til
dæmis spýtukubba, steina og sölnuð
lauf. Einnig trjábörk, greinar, brum
og köngla. Ruslið er meira að segja
hluti af umhverfi okkar og það er for-
vitnilegt að vita hvernig það lítur út,
hvaðan það kemur og hvers vegna.
Garðurinn er fjölbreyttur og skjól-
góður og þar er gott að vera,“ segir
Helena að lokum.
Leikja- og fræðslukvöldið byrjar
klukkan átta og að leikjunum lokn-
um er boðið upp á piparmintute
sem er unnið úr laufum ræktuðum í
Grasagarðinum.
Jazzhátíð í umbria
Fjöldinn allur af tónlistarhátíðum fer
fram um heim allan og þá aðallega á
sumrin. jazzþyrstum tónlistaráhuga-
mönnum og ítalíu-elskandi
ferðamönnum er bent á hið
stórskemmtilega umbria jazz Festival
sem fram fer í borginni Perugia sem
staðsett er í hinu gríðarlega fagra
umbria-héraði á ítalíu. Þar er dansað
á götum úti og stemningin ólýsanleg,
fólk kemur alls staðar að úr heiminum
og eru áhorfendur á öllum aldri.
Hátíðin í ár hefst þann sjötta júlí og
lýkur þann fimmtánda. Hátíðin er
stjörnum prýdd ár hvert en Solomon
Burke, Sly and The Family Stone og
dionne Warwick eru meðal þekktra
jazzista sem láta sjá sig í ár. nánari
upplýsingar má finna á síðunni
umbriajazz.com.
Á morgun, fimmtudaginn fjórtánda júní
verður haldið palestínskt matar og menn-
ingarkvöld á Kebab húsinu við Grensás-
veg. Quassay er einn af þeim sem stendur
fyrir viðburðinum en hann er í stjórn sam-
takanna Ísland-Palestína. Quassay hefur
verið búsettur hér á landi í átta ár og stend-
ur nú fyrir þessu menningarkvöldi í fjórða
skipti og segir hann kvöldin hafa gengið
vel hingað til. „Það eru reyndar liðin sex ár
síðan við héldum þetta síðast en það hef-
ur alltaf verið troðfullt hús og margir farnir
að bíða eftir því að svona kvöld yrði haldið
aftur.“ Allur ágóði af matar og menningar-
kvöldinu rennur í hjálparstarf samtakanna
en miðaverð er 1.990 krónur og innifalið í
því er þriggja rétta palestínsk máltíð með
gosi. „Það verður svona einskonar arab-
ísk jógúrt með hrísgrjónum og kjöti, svo
verður líka salat með hummus og falafel
og í eftirrétt eru sætindi sem verður að öll-
um líkindum kaka,“ segir Quassay. „Það
verður líka boðið upp á skemmtiatriði en
við ætlum að sýna mynd um Palestínu og
spiluð verður palestínsk tónlist. Einnig eru
nokkrir sem ætla að lesa fyrir okkur ljóð.“
Quassay segir meiri hlutann af þeim sem
sæki menningarkvöldin vera Íslendinga.
„Við erum ekki nema fjórtán til fimmtán
Palestínumenn sem erum búsettir á Ís-
landi svo flestir sem sækja þessi kvöld eru
Íslendingar. Það eru í kringum áttatíu til
hundrað miðar í boði og hefur skráning
farið vel af stað,“ segir Quassay. Hægt er að
nálgast miða á menningarkvöldið í síma
694 6748 og 864 6636 eða senda póst á pa-
lestina@palestina.is.
krista@dv.is
Quassay Stendur fyrir
palestínsku matar og
menningarkvöldi.
SkólaStofan flutt
út í náttúruna
Helena Óladóttir
verkefnisstjóri
„með útikennsl-
unni er brotin upp
hin hefðbundna
hlutverkaskipan í
bekknum.“