Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Síða 27
Leirinn
lifnar við
Skötuhjúin Paul Bettany og Jennifer
Connelly munu á næstunni leika
saman í kvikmyndinni Born.
Kvikmyndin fjallar um par sem sest
að í smábæ á Bretlandi, svo
eiginmaðurinn geti unnið að leirlist
sinni í kyrrð og ró. Þau lifa svo hinu
fullkomna lífi, þar til að leirpersónur
mannsins lifna við og gera líf þeirra
að lifandi martröð. Það er Guillermo
del Toro sem er einn af framleiðend-
um kvikmyndarinnar en Daniel
Simpson leikstýrir. Tökur á myndinni
munu hefjast um miðjan ágúst.
Rás 2 og X-ið 977 eru með spennandi Hróarskelduleiki í gangi:
Enn möguleiki á að komast á Hróarskeldu
Uppselt er á Hróarskelduhátíð-
ina eins og margir vita, en rúmlega
75 þúsund miðar hafa selst á hátíð-
ina út um allan heim. Í byrjun júní
var tilkynnt að uppselt væri á há-
tíðina sjálfa, þó væru enn einhverj-
ar pakkaferðir eftir. Nú eru þær líka
uppseldar og má því búast við því
að margir tónlistarunnendur séu
svekktir. Ekki er þó öll von úti enn.
Hægt er að vinna miða á hátíðina
hjá bæði Rás 2 og X-inu 977, en báð-
ar útvarpsstöðvarnar eru um þessar
mundir með leiki í gangi þar sem í
verðlaun eru miðar. Til þess að taka
þátt í leik Rásar 2 þurfa áhugasam-
ir að taka þátt í getraun á heimsíðu
Popplands. Dregnir verða út tveir
vinningshafar þann 15. júní og þrír
vinningshafar dagana 22. júní og 29.
júní, í öllum tilfellum eru það tveir
miðar sem hver vinningshafi hlýt-
ur en þar að auki munu tveir vinn-
ingshafar fá flugmiða til Danmerk-
ur með Iceland Express. Í leik X-ins
þurfa hlustendur að fylgjast með
hvert Hróarskelduband dagsins er
og hringja svo inn þegar tónlist þess
er spiluð. Tíundi hver sem hring-
ir inn kemst í pott sem verður svo
dregið úr á endanum. Sigurvegarar
fá miða á hátíðina og sérstaka passa
á Tuborg VIP svæði, þar sem hægt
er bæði að tjalda og fá frían á krana
hvenær sem er sólarhringsins. Svo
fyrir þá sem hugðust fara á Kelduna
en urðu sviknir, það er ekki öll von
úti enn.
„Það sem við ætlum að gera núna
er að útfæra síðuna svo hún verði að-
gengilegri. Gera hana stærri í sniðum
og bjóða upp á almennilegar tónlist-
arfréttir. Í raun bara að búa til eins
spennandi síðu og hægt er,“ segir
Halldór Örn Guðnason ritstjóri tón-
listarsíðunnar rjóminn.is. Halldór
tók nýlega við starfi sínu af Ara Tóm-
assyni, sem hafði ritstýrt síðunni frá
því hún opnaði í október árið 2005.
Ari hafði einfaldlega ekki lengur tíma
til þess að sinna starfinu, en þeir sem
koma að rjómanum gera það algjör-
lega launalaust og af áhuganum ein-
um saman. Halldór segir þó að mik-
ill tími fari í að halda úti síðunni, „en
ég hef þetta af með herkjum,“ segir
hann glaður í bragði.
Marktækur miðill
Rjóminn.is býður upp á fjöl-
breytta umfjöllun um tónlist, bæði
íslenska og erlenda. Þar má ekki að-
eins finna gagnrýni á nýútkomn-
ar plötur heldur einnig umfjallanir
um tónleika og viðtöl við ýmsa þjóð-
þekkta Íslendinga um tónlistarsmekk
þeirra. Í kringum síðustu jól birtist á
síðunni árslisti þar sem bestu plöt-
ur ársins 2006 voru reifaðar. Listinn
var birtur í hinum ýmsu fjölmiðlum,
en rjóminn gerði sig fljótt gildandi
sem marktækur tónlistarmiðill enda
sækja síðuna að sögn Halldórs allt
frá 500 - 1500 manns á dag. Í ritstjórn
rjómans sátu upphaflega 18 manns,
flest allt háskólanemar. Á þeim tíma
sem síðan hefur verið starfrækt hafa
svo nýjir aðilar bæst í hópinn, enda
hafa margir af upprunalegu rit-
stjórninni klárað nám sitt og leitað á
ný mið. Þá hafa einnig vel skrifandi
framhaldsskólanemar verið teknir
inn í hópinn.
Auglýsa eftir tónlistarskríbent-
um
Til þess að síðan verði jafn spenn-
andi og öflug og Halldór hefur í
hyggju að gera hana, hefur verið aug-
lýst eftir fleira fólki til þess að skrifa.
„Við reynum að keyra síðuna áfram á
fólki sem hefur áhuga á þessu, en ekki
liði sem vill fá borgað,“ segir Halldór,
en þegar hefur fjöldi umsókna borist
til ritstjórnar. Auk eldmóðsins þurfa
skríbentarnir að vera vel skrifandi,
með mikinn áhuga á tónlist og síðast
en ekki síst skoðanir á því sem þeir
skrifa um hverju sinni. Leitað er að
fastapennum, lausapennum og ljós-
myndurum en einnig eru umsókn-
ir frá fólki sem vill starfa í kringum
tónlistarfjölmiðil. Til dæmis við tón-
listarskipulagningu og augslýsinga-
söfnun, en af og til hafa aðstandend-
ur síðunnar blásið til tónleika, undir
yfirskriftinni „Rjómatónleikar“. Svo-
leiðis uppákomur gætu því orðið tíð-
ari hafi einhver áhuga á því að leggja
síðunni lið. Áhugasamir um störf hjá
Rjómanum er bent á að senda tölvu-
póst á rjominn@rjominn.is. dori@dv.is
Ofurstúlkan
í Smallville
Supergirl, eða Ofurstúlkan mun
bætast í hóp persóna Smallville
þáttanna í næstu seríu þáttanna, sem
verður jafnframt sú síðasta. Stúlkan
heitir Kara í þáttunum og er 19 ára
gömul frænka Ofurmennisins og
fæddist einnig á plánetunni Krypton.
Hún er gædd sömu kröftum og
Ofurmennið en er í leiðinni aðeins
táningsstúlka, með hvolpavitið í
hámarki. Leikkona hefur enn ekki
verið skipuð í hlutverkið, en þættirnir
munu verða frumsýndir seinna á
árinu.
Barrymore
talsetur
chihuahua
Drew Barrymore hefur verið fengin
til þess að vera rödd aðalpersónu
næstu Disney-kvikmyndar sem ber
heitið South of the border. Myndin
fjallar um Chloe, ofdekraðan
kjölturakka sem er aðeins vanur því
að ferðast um í handveski eiganda
síns. Þegar svo eigandinn skellir sér í
frí til Mexíkó týnist hundurinn, og
þarf að reiða sig á nýja vini til þess að
komast aftur heim til sín. Einnig
munu Andy Garcia, Salma Hayek og
George Lopez sjá um raddir í
myndinni.
Íslenska tónlistarsíðan rjóminn.is hóf göngu sína í október 2005. Síðan þá hefur síðan
gert sig gildandi í umfjöllun um íslenskt tónlistarlíf og sækja hana hundruð manns
hvern dag. Halldór Örn Guðnason, nýr ritstjóri síðunnar hefur blásið til sóknar, en til
stendur að ráða inn fleiri skríbenta og auka umsvif síðunnar töluvert:
miðvikudagur 13. júní 2007DV Bíó 27
Rjóminn.is marktækur og alíslenskur tónlistarmiðill á netinu.
Hróarskelduhátíðin uppselt er á
hátíðina en heppnir eiga enn möguleika
á því að fara.
Rjóminn.is
stækkar við sig
Halldór Örn Guðnason ritstjóri
Rjómans Leitar eftir áhugasömu
fólki til að þess að starfa við
síðuna.