Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Page 30
miðvikudagur 13. júní 200730 Síðast en ekki síst DV
Sandkassinn
Frægt Fólk Mig langar enn alveg
ofsalega að eignast frægan vin.
Einhvern sem sendir einkaflug-
vélina eftir mér
bara svo ég geti
sagt honum
uppáhaldssög-
una hans. Ég
hef ítrekað reynt
að stofna til
slíks vinasam-
bands, en ekkert
hefur gengið.
Hins vegar virðist eins og tækifæri
hafi runnið mér úr greipum um
helgina, en mínir menn á götum
Reykjavíkurborgar sögðu mér að
Matt Damon hefði verið á Sirkus.
Djöfull er ég alveg handviss um
að ég og Matt hefðum getað orðið
bestu vinir, hann er algjörlega mín
týpa.
Næsti sigurjóN sighvatssoN?
Ég sá Hostel 2 fyrir helgi og mér
fannst hún prýðileg. Ég man hvað
það gladdi
mig að sjá Ey-
þór Gunn-
arsson í fyrri
myndinni, en
það gladdi
mig kannski
enn meira að
sjá nafn hans
í associate
producers dálknum í kreditlista
seinni myndarinnar. Eyþór er
karl í krapinu, vílandi díla hér og
veigrar sér ekki við að leika í einni
mynd eða mæta á rauða dregil-
inn í Cannes. Vonandi fær hann
frekar tækifæri í gegnum vini sína
Eli Roth og Quentin Taranti-
no, því þarna er að ég held flottur
framleiðandi á ferð sem gæti gert
góða hluti.
ENdurviNNsla Það er samt merki-
legt hvað fólk er orðið hugmynda-
snautt í Holly-
wood. Önnur
hver kvikmynd
er gerð upp úr
annaðhvort
tölvuleik, leik-
verki, mynda-
sögu eða það
sem verst er:
eldri kvikmynd.
Auðvitað hlakka ég til að sjá næstu
Batman mynd, en það eru bara 18
ár síðan fyrsta myndin var gerð og
kannski óþarfi að reyna upp á nýtt,
sérstaklega þar sem Jack Nichol-
son var bara nokkuð flottur sem
jokerinn. Hins vegar mættu Ís-
lendingar alveg fara taka upp á því
að leita í eitthvað eldra og gera það
upp á nýtt. Ég heyrði að leikstjóri
Astrópíu, Gunnar Björn Guð-
mundsson væri að skrifa kvik-
myndahandrit upp úr Gauragangi
Ólafs Hauks Símonarsonar. Það
líst mér vel á, húrra fyrir því.
sirkusiNN Er að loka, ljónin eru
farin fyrir fullt og allt. Ég man þeg-
ar ég fór á stefnufund 365 á gamla
DV. Gunnar Smári Egilsson, þá-
verandi forstjóri fyritæksins var að
kynna Sirkus-hugtakið fyrir okkur.
Sirkus átti að vera regnhlífardæmi
yfir alla miðla 365 sem höfðuðu til
ungs fólks, 3 - 5 ára plan minnst
sagði Gunnar Smári. Sirkus-blað-
ið, þótt ágætt sé er varla hugsað
fyrir ungt fólk lengur. Sjónvarps-
stöðin er orðin að Stöð 2++ og
nú var ég að heyra að netsvæðið
Minnsirkus.is væri að fara loka.
Og ekki nema eitt og hálft ár liðið,
bömmer.
Dóri DNA lætur allt flakka
Auður er þekktur barnabókahöf-
undur og hver man ekki eftir bókun-
um um Elías sem voru aðalbækurn-
ar og gífurlega vinsælar fyrir rúmlega
tuttugu árum síðan.
„Bækurnar um Elías urðu fimm.
Hann hlýtur að hafa verið orðinn 12-
14 ára þegar tilveru hans lauk. Þá var
ég margbúin að fara fram á það við
útgefandann að fá að kasta honum
fyrir vörubíl í síðasta kafla en hann
svaraði þeirri beiðni alltaf neitandi.“
Auður segist hafa verið búin að fá
alveg nóg af barnabókageiranum og
það hefði verið erfitt fyrir alla aðra en
Vígdísi að fá sig út í slíkt ævintýri.
„En málið er sem sagt það að dag
nokkurn hringdi dyrabjallan heima
hjá mér og fyrir utan stóð afskaplega
yndisleg og sæt stúlka. Hún heilsaði
kurteislega og hógværlega, kynnti sig
og sagði erindið það að hún vildi at-
huga hvort ég væri til í að skrifa með
henni barnabók. Þessi bón var svo
fallega og vel framsett að ég bauð
Vigdísi inn og lét hana í stól. Hún út-
skýrði málið nánar, myndskreyting
barnabókar ætti að vera lokaverk-
efnið hennar í Listaháskólanum og
nú vantaði hana barnabók. Hún vildi
að bókin fjallaði um litla, rauðhærða
stúlku og mitt hlutverk yrði að skrifa
myndatexta. Þar sem við Vigdís erum
báðar rauðhræðar, hún með dásam-
lega fallegt sítt, náttúrulega rautt hár
og ég með örfá dásamleg, rauðlituð
hár leist mér vel á hugmyndina. Eft-
ir andartaks umhugsun ákvað ég að
verða við bóninni. Textarnir, sem
urðu dálítið lengri en myndatextar
og urðu að lítilli sögu um litla rauð-
hærða stúlku, eða öllu heldur um
foreldra sem þurfa að læra að verða
foreldrar, og áfallið sem þau fá þeg-
ar þau uppgötva að litla stúlkan er
með rautt hár. Sjálf er hún voða-
lega ánægð með það og hefur góða
ástæðu til.“
Rauðhært fólk ofsótt
Auður segir viðhorf til rauðhærðs
fólk alltaf hafa verið mjög merkilegt.
„Fólk hefur verið hrætt við okkur
alveg aftur í miðaldir og það eimir
enn eftir af því. Við erum talin tryllt-
ari, æstari, sterkari og meiri bardaga-
menn en aðrir. Sagt var að óvinaherir
hafi snúið við til síns heima ef rauð-
hærðir voru í fremstu víglínu. Ég var
að hugsa um snúa bókinni okkar
Vigdísar strax yfir á ensku og senda
eintak til Newcastle en þar býr rauð-
hærð, fjölmenn fjölskylda sem býr
við endalausar ofsóknir.“
Það kom fljótlega í ljós að Auður
og Vigdís áttu fleira sameiginlegt en
rauða hárið og Auður segir að henni
hafi þótt bæði þægilegt og traust-
vekjandi að uppgötva stöðugt fleiri
sameiginlega eiginleika þeirra.
„Við erum til dæmis báðar al-
veg sjúkar í fallegan pappír. Hún býr
svolítið svipað og ég, við erum báð-
ar lítið fyrir það að hafa hlutina inni
í einhverjum skápum. Svo eigum við
báðar kött. Við eigum líka sameigin-
legt vandamál og notum til dæmis
báðar skó númer 35. En svo er annað
alls ólíkt með okkur, hún er til dæm-
is sætari en ég. Miklu sætari. Ég er
gamall jaxl og hún er bara 22 ára.“
Helsti aðdáandinn féll í stafi
Auður og Vigdís eru ánægðar
með bókina og Auður segir teikning-
ar Vigdísar mjög fallegar.
„Vigdís, sem útskrifaðist sem
grafískur hönnuður, notar bland-
aða tækni og að mínu mati eru
myndir hennar fjölbreyttar og ótrú-
lega skemmtilegar. Hún lagði miklu
meiri vinnu í bókina en ég sem var
ekki nema svona tíu daga að ljúka
því sem að mér sneri. Þetta er eng-
inn doðrantur, heldur lítið hefti
sem er alfarið hannað af Vigdísi. Ég
sendi harðasta aðdáanda mínum
eintak um leið og bókin var tilbú-
in og hún var svo hrifin að hún féll
eiginlega bara í stafi þar sem hún er
enn þá.“
Nú ætla þær stöllur að taka sig til
og selja bókina svo ungi myndlist-
armaðurinn nái inn fyrir kostnaðin-
um.
„Við ætlum að koma okkur fyrir
á Laugaveginum, líklega fyrir fram-
an Bónus, á laugardaginn ef veður
leyfir. Þar verður hægt að fá bókina
áritaða af báðum höfundum en það
hefur ekki gerst oft í Íslandssögunni.
Bókin kostar aðeins tvö þúsund og
fimm hundruð krónur og þeir sem
eiga mjög mikið af barnabörnum
fá auðvitað magnafslátt,“ segir Auð-
ur að lokum, áður en hún brunar í
burtu á reiðhjólinu.
Auður Haralds rithöfundur segist geta svarið fyrir það að hún
hefði ekki þorað, þegar hún var 22 ára, að banka upp á hjá virtum
eldri rithöfundi (og á þá við sjálfa sig) og spyrja hann hvort hann
vildi skrifa með sér barnabók. Vigdís Hlíf Sigurðardóttir hafði
kjarkinn og afraksturinn verður til sölu á laugardaginn:
litla, rauð-
hærða stúlkaN
Í dag Á morgun
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
xx
+121
xx
xx
xxxx
xx
xx
+11
1
xx
+13
1
xx
+11
1+10
4
+11
4
xx
+10
1+11
4
xx
+11
1
xx
xx
xx
+114
-xx
Vigdís og Auður Höfundar bókar
um litla, rauðhærða stelpu.
Takið sumarfríið ykkar núna með-
an veðrið er gott. Við Íslendingar
vitum aldrei hvenær veðurguðirnir
svíkja okkur og það er ekkert súrara
en að ætla að eyða sumarfríinu í
að ferðast um Ísland í fríinu og það
rigni allan tímann. Það er um að
gera að leggjast bara útí sundlaug-
arnar og ná á sig smá brúnku áður
en sólin hverfur. Ef þið ætlið að
gifta ykkur í sumar, gerið það þá
á morgun til að reyna að ná góða
veðrinu, ekki skipuleggja útibrúð-
kaup á Íslandi því veðrinu er aldrei
treystandi hér á landi.
Það er frábær hreyfing og skemmti-
leg útivist að skella sér á línuskauta.
Dragið vinkonurnar eða vinina
með og skellið ykkur á línuskauta
í Nauthólsvíkinni í staðinn fyrir að
setjast inná kaffihús að spjalla. Það
er svo sniðugt að samræma útivist
og vinafund með þessum hætti og
manni líður svo hrikalega vel eftir
að hafa hreyft sig svolítið.
En samt bara á meðan veðrið er
gott. Það er fólkið sem er í útivinnu
á svona dögum sem lítur alltaf best
út, sólbrunnið og sætt eftir að hafa
verið í vinnunni. Það er lúxus vinna
úti og reyta arfa í sólskini og blíðu
svo við mælum bara með útivinnu
meðan veðrið er gott. Mikið af
skemmtilegri útivinnu er í boði en
hinsvegar óvíst að einhverjir séu
til í að ráða starfskraft sem vill bara
vinna í góðu veðri.
Þetta er allt saman spurning um að
nýta góða veðrið og þá er tækifæri
til að hringja í alla vinina bara helst
núna og bjóða í grillpartý í kvöld.
Ekki taka týpuna á þetta sem segir
að allir eigi að mæta með eitthvað
sjálfir á grillið því þá kemur eng-
inn. Splæstu frekar bara í pulsur
og borgara og vertu grand á því.
Mundu líka að hafa nóg af bjór með
grillgóðgætinu til að skapa alvöru
partístemningu. Og skipuleggja að
minnsta kosti þrjá leiki til að halda
blóðinu á hreyfingu.
Við mælum með...
...LíNuSkAutum
...SumARfRíi
...ÚtiViNNu
...GRiLLVeiSLu