Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Qupperneq 32
Verðbólga rúmlega síðasta aldar-
fjórðungs þýðir að lítið er eftir af krón-
unni sem var tekin upp í ársbyrjun
1981. Nú standa eftir tæpir fjórir aur-
ar af verðgildi hennar en verðbólgan
hefur étið upp restina, rúma 96 aura
af hundrað. Þetta þýðir að vara sem
kostaði 100 krónur 1. janúar 1981
myndi kosta 2. 638 krónur í dag.
Verðmæti íslensku krónunnar
hundraðfaldaðist þegar stjórnvöld
ákváðu að taka tvö núll aftan af geng-
inu, þá stríddu Íslendingar við mikla
verðbólgu.
Guðmundur Ólafsson hagfræð-
ingur segir að rýrnun krónunnar megi
að mestu rekja til níunda áratugarins,
fyrstu áranna eftir að nýja krónan leit
dagsins ljós. Þá ríkti hér mikil verð-
bólga. „Þetta gerist fyrst og fremst á
tímabilinu 1982 til 1990. Þetta gerist
miklu hægar eftir þjóðarsáttina,“ seg-
ir Guðmundur og vísar til átaks laun-
þega og vinnuveitenda við að ráða
niðurlögum verðbólgunnar. Hann
segir að ástandið hafi verið mjög við-
unandi frá 1991 til 1998. „Síðan fer
að síga á ógæfuhliðina upp úr 2000.
Ástæðan er augljóslega sú að menn
prenta hér of mikið af peningum.“
„Verðbólgan hefur verið notuð til
að lækka laun og halda illa reknum
fyrirtækjum gangandi,“ segir Guð-
mundur. „Ef við tækjum upp alvöru
gjaldmiðil þyrftu menn miklu síður
að standa hér í verkfallsátökum og
látum. Þá myndu launin halda kaup-
mætti sínum.“
Krónan er nú tæplega fjórum
sinnum verðmætari en hún var fyrir
myntbreytinguna 1981. Þá þótti krón-
an of verðlítil og upphæðir of háar
til að verjandi væri að nota krónuna
til frambúðar að óbreyttu verðgildi.
Ólíklegt er þó að gripið verði til nýrr-
ar myntbreytingar á næstunni. „Það
held ég að engum detti í hug núna,“
segir Arnór Sighvatsson, aðalhag-
fræðingur Seðlabankans. Hann seg-
ir að myntbreytingin hafi ekki dugað
til að draga úr verðbólgu heldur hafi
verðbólgan aukist stórlega eftir breyt-
inguna. Þá hafi engar aðrar breytingar
verið gerðar til að sporna gegn verð-
bólgu. „Hér ríkti ekki vaxtafrelsi og
peningastefnunni var ekki beitt til að
hemja verðbólguna,“ segir Arnór.
Hagstofan birti í gær tölur um
verðbólgu. Hún mælist fjögur prósent
síðasta árið og hefur ekki verið lægri
síðan í ágúst 2005, þá var hún 3,7 pró-
sent eða jafn há og aurarnir sem nú
standa eftir af krónunni frá 1981, eru
margir.
brynjolfur@dv.is
Afgreiðsla Hafnarfjarðarbæjar á bygg-
ingarleyfi Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur menntamálaráðherra og
Kristjáns Arasonar viðskiptafræð-
ings við Mávahraun 7 í Hafnarfirði
var á gráu svæði. Það staðfestir Bjarki
Jóhannsson, sviðstjóri skipulags- og
byggingasviðs Hafnarfjarðar. Leyfið
er byggt á röngum lóðamörkum og
því vafamál hvort að útgefið bygging-
arleyfi bæjarins sé lögmætt.
Sædís Sigurðardóttir og Valur R.
Jóhannsson, íbúar við Mávahraun
9 eru nágrannar Kristjáns og Þor-
gerðar Katrínar, og eru afar ósátt við
breytingar sem fyrirhugaðar eru við
húseign ráðherrans. Eftir grennd-
arkynningu mótmæltu Sædís og
Valur breytingunum strax og síðar
meir kærðu þau til Úrskurðarnefnd-
ar skipulags- og byggingamála. Þar
bíður málið formlegrar meðferðar
en framkvæmdastjóri nefndarinnar
vonast eftir því að málsaðilar sættist
áður.
Umsóknirnar héngu saman
Bjarki segir ákveðinn vanda blasa
við þar sem hægt sé að efast um rétt-
mæti byggingarleyfisins. Hann telur
deiluna mikla lagaflækju og bend-
ir á að fyrri eigandi beggja húsanna
beri að miklu leyti ábyrgð á deilunni.
„Fyrri eigandi fékk synjun á stækk-
un upphaflega en eftir að hafa gert
raunhæfari tillögur fékkst gefið út
byggingarleyfi. Vandinn er hins veg-
ar sá að í því tilviki fylgdi með tillaga
að lóðabreytingum við bæði hús-
in, þær umsóknir héngu saman og
ég samþykkti þær þannig. Þarna var
um sama einstaklinginn að ræða og
því litið svo á að viðkomandi væri
ekki í neinum deilum við sjálfan
sig,“ segir Bjarki. „Fyrir vikið er af-
greiðsla málsins á gráu svæði. Hníf-
urinn stendur þannig í kúnni að af-
greiðsla lóðamarkanna var ekki rétt
og réttlætanlegt að efast um réttmæti
byggingarleyfisins. Þorgerður Katrín
og Kristján eru með meiri hugmynd-
ir að stækkun en fyrri eigandi hafði
lagt fram en fyrri eigandi húsanna
var það sniðugur að honum tókst að
breyta lóðamörkunum meðfylgjandi
byggingarleyfinu.“
Málinu er lokið
Aðspurður telur Bjarki málinu
lokið af hálfu Hafnarfjarðarbæjar og
segir harða afstöðu hjá bænum að
leggja ekki út kostnað til sátta. „Við
afgreiðslu byggingarleyfisins vorum
við í góðri trú að hlutirnir væru í lagi
en lögfræðingarnir segja að ekki sé
alveg víst að svo sé. Að mestu leyti
er fyrri eigandi ábyrgur fyrir klúðr-
inu kringum lóðamörkin. Vand-
inn er svo aftur sá að ef lóðamörkin
hafa ekki verið rétt afgreidd þá gild-
ir byggingaleyfið heldur ekki. Fyrir
vikið þyrftum við eiginlega að grafa
lengra aftur í tímann og þá veit ég
eiginlega ekki alveg hvernig landið
liggur,“ segir Bjarki. „Byggingarleyf-
ið og lóðabreytingarnar hafa að nýju
verið ræddar og afgreiddar hjá okkur.
Sú tillaga bíður nú samþykktar bæj-
arstjórnar og síðan spurning hvort að
sú samþykkt standist. Af hálfu bæjar-
ins lítum við svo á að málinu sé lokið
en ekki gott að segja hvort Sædís og
Valur séu ánægð með það.“
miðvikudagur 13. júní 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Af hverju ekki nýja nýkrónu...?
AFGREIÐSLA BYGGINGAR-
LEYFIS Á GRÁU SVÆÐI
Vafi um hvort byggingarleyfi Þorgerðar katrínar Gunnarsdóttur í Hafnarfirði sé gilt.
Nýja krónan sem var tekin upp árið 1981 er næstum því horfin:
Fjórir aurar eftir af krónunni
Vilja skerpa kröfur
um háskóla
Stjórnvöld menntamála hafa
ekki haft nægjanlega skýra af-
stöðu til þess hvernig verja eigi
framlögum til kennslu á háskóla-
stigi. Þá er skilvirkni námsgreina
ekki nógu góð í samanburði við
erlenda háskóla. Þetta er mat
Ríkisendurskoðunar eftir að hafa
borið saman kennslu fjögurra
íslenskra háskóla í lögfræði, tölv-
unarfræði og viðskiptafræði. Mik-
ilvægt þykir að yfirvöld setji lág-
markskröfur um menntunarstig
kennara á háskólastigi.
Ferðamenn
í bílveltu
Ökumaður var fluttur á sjúkra-
hús með minniháttar meiðsl eftir
bílveltu við Fljótstunguveg í Borg-
arfjarðarsýslu um hádegisbilið
í gær. Tveir erlendir ferðamenn
voru í bílnum og sakaði farþega
ekki. Að sögn lögreglu fór bíllinn
eina eða tvær veltur. Bíllinn er
töluvert skemmdur.
Mæðgin flutt á
sjúkrahús
Mæðgin voru flutt á sjúkrahús
eftir bílslys á Vesturlandsvegi í gær.
Ökumaður var í bílbelti og sakaði
hann ekki þegar bíllinn fór utan í
staur við norðanverð Hvalfjarðar-
göng. Eiginkona mannsins sat í fram-
sæti og uppkominn sonur í aftursæti,
og voru þau hvorugt í belti. Talið er
að sonurinn hafi slasast mest, en
hvorugt þeirra er í lífshættu.
Að sögn lögreglu er óvíst um
tildrög slyssins. Bíllinn er mikið
skemmdur.
Þyrlusveit TF-Lífar bjargaði sex
ungum konum af Grænlandsjökli
á laugardag eftir að áhyggj fullur
vi ur einnar stúlkunnar hafði ósk-
að eftir því að þær yrðu sóttar eftir
að flugvél Flugfélags Íslands hafði
bilað á jöklinum. Stúlkurnar höfðu
verið veðurtepptar á Grænlandi í
meira en viku þegar loks viðraði til
þess að sækja þær. Ekki vildi betur
til en svo að flugvéli féll niður um
þunnt yfirborðslag íss á jöklinum og
ekki náðist að rétta hana við. Stúlk-
urnar voru ekki taldar í lífshættu því
þær voru vel búnar til dvalarinnar.
„Þær voru vopn ðar rifflum og
ísöxum þegar björgunarmennirn-
ir komu að. Það eru náttúrleg ís-
birnir þarna út um allt og mínum
önnum leist held ég ekkert á blik-
una þegar þær mættu alvopnaðar,“
segir Jón Ebbi Björnsson, varðstjóri
Landhelgisgæslunnar.
Nokk rn tíma tók að finna kon-
urnar en eftir að þ r fundust var
flogið með þær til Íslands. Áætl-
uð heimkoma þeirra til Ísl nds var
fyrsta júní og því höfðu þær v rið
mun le gur á jöklinum n upph f-
lega var stefnt að. Samtals voru þær
því 36 d ga á jöklinum. Ekið var með
konurnar beina leið til Keflavíkur-
flugvallar þar sem þær náðu flugi til
En lands um miðjan dag í gær.
Lárus Kristjánsson, flugmaður
Landhelgisgæslu Íslands, t k þátt
í björguninni. Hann segir konurn-
ar hafa verið verulega fegnar þeg-
ar þyrlusveitin fann þær. „Þær voru
vel búnar en ósköp fegnar þegar við
komum. Þá voru þær bú ar að bíða
í 8 ga eftir því að komast af jökl-
inum og áttu að vera löngu farnar,“
segir Lárus. trausti dv.is
Mikið hefur borið á fugladrápi nærri
Ásgarði á Suðurnesjum síðastliðin
ár. Ítrekað h fur komið fyrir að un -
menni gera sér að leik að keyra á ofsa-
hraða yfir kríur og unga þeirra. Hjón-
in bænum hafa talið m st 200 hræ
á l dinu og þeim blöskrar hegðun
ungmennanna. Eitt sinn urðu þau
vitni að því að piltar drógu lifandi fu l
eftir bílnum sínum. Svo keyrðu þeir
yfir hann ítrekað.
Viðurstyggileg heg un
„Þetta er hreinlega viðurstyggileg
hegðun,“ segir Herbert Pétur Gu -
mundsson bóndi í Ásgar i í Garði á
Suður esjum. H n segir að sum-
ir krakkar keyri í gegnum kríuvarp,
þar sem ung r sitja varnarlausir. Að
sögn Herberts telja krakkarnir fugl-
ana se þeir drepa o gefa sér stig
fyrir. Eitt si n urðu þau vit i að því að
tveir pilt r drógu fugl á eftir bifreið-
inni sinni. Hann hafði verið bundinn
aftan í bílinn með gulu girni. Eftir að
girnið slitnaði keyrðu þeir ítrekað yfir
fuglan
Hrein illska
„Nýlega vorum við að ger við
girðinguna þeg r við sáum mikið fið-
ur koma undan bíl,“ segir Herbert um
grimmdarverk tv ggja pilta. Hann
segir að bíllinn, sem var í hundrað
metra fjarlægð fr þeim, hafi stoppað
og a nar pilturin stigið út. Sá fór ft-
ur fyrir bílinn og sáu Herbert og konas
hann bogra yfir einhverj . Þegar hann
svo ók f stað sáu þau að fugl dróst á
eftir bílnum í spotta. Svo slit aði
spottinn en ungmennin hættu ekki
þar. „Þeir bökkuðu yfir hræið tvisv r
sinnum og óku svo á brott,“ segir Her-
b rt um forkasta lega h gðun öku-
man sins og farþegans.
Gerist ár eftir ár
Herbert segir þetta gerast á hverju
sumri. Þeim hjónum þykir miður að
horfa upp á svona lagað ár eftir ár
nda þy ir þeim hrikalega vegið að
málleysingjunum.
„Þa vantar augljóslega heilmikið
upp á þroska þessara einstaklinga,“
segir Herbert sem blöskrar hegðun
þeirra. Han segist hreinlega ekki
skilja hvað fólki gangi til með þessu
athæfi og þykir heldur sjúkt ð menn
geti haft gaman af því að drepa mein-
lausa u og kríur. „Ég vona næst-
um því að krían færi sig um set svo við
þurfum ekki að horfa upp á svona við-
bjóð,“ segir Herbert og vo ar að fólk
sjái að sér.
Ford mir verknaðinn
„Ég er alveg miður ín yfir þessu,“
segir Sigríður Ásgeirsdóttir, lögfræ -
ingur og formaður Dýraverndun-
arsamtaka Íslands. Hún segist hafa
komið málinu ál iðis til Lögreglunnar
á S ðurnesjum.
mánudagur 11. júní 2007 Dagbla i vísir st fna 1910
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot se leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers ánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot ánaðarins.
Um að gera að vera vel vopnum
búinn í jöklaferð...
UNGMENNI GERA SÉR
UNGADRÁP AÐ LEIK
Ánægður varaformaður Valgerður Sverrisdóttir hlaut yfirburðakosningu til varaformanns á miðstjórnarfundi Framsóknar-
flokksins í gær. Valgerður lýsti ein yfir framboði og tekur við embætti af Guðna Ágústssyni, sem tók við formennsku í Framsóknar-
flokknum þegar Jón Sigurðsson sagði af sér eftir þingkosningar í síðasta mánuði. Guðni sagði að framsóknarmenn geti kennt
sjálfum sér um hið mikla tap sem flokkurinn upplifði í þingkosningunum. DV-MYND STEFÁN
Tóku vopnaðar á móti TF-Líf
Leita nauðgara
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu lýsir enn eftir vitnum að
tilraun til nauðgunar, í húsasundi
við Alþjóðahúsið á Hverfisgötu,
aðfaranótt laugardags.
Kona á tvítugsaldri kærði til-
raunina en hún lýsir því svo að
maður á þrítugsaldri hafi dregið
hana inn í port og reynt að nauðga
henni. Henni tókst með erfiðis-
munum að komast undan árásar-
manninum sem er á milli 1,85 og
1,90 sentímetrar á hæð, stutt dökkt
hár, skeggbrodda, grannvaxinn og
klæddur í rauðleita peysu og svart-
ar buxur. Einhverjar ábendingar
hafa borist lögreglu en þeir sem
geta gefið upplýsingar geta hafa
samband í síma 444-1000.
Ofsaakstur
ógnaði öryggi
Ökumaður ógnaði öryggi sam-
ferðamanna sinna í umferðinni
þegar hann flúði lögreglu aðfaranótt
sunnudags en á Kjalarnesi fór hann
oftar en einu sinni yfir á öfugan veg-
arhelming þegar bílar komu á móti.
Eftirför lögreglu hófst í Mosfells-
bæ en maðurinn sinnti ekki stöðv-
unarmerkjum. Ekki náðist að stöðva
för mannsins fyrr en hann var nánast
kominn inn í Botn í Hvalfirði en þar
þvingaði lögreglan manninn út af
veginum. Báðir bílarnir skemmd-
ust talsvert. Ekki er vitað hvað hon-
um gekk til en hann var í annarlegu
ástandi, hugsanlega undir áhrifum
fíkniefna. Maðurinn er 25 ára gamall.
Alvarlega slösuð
Erlend kona slasaðist al-
varlega þegar hún höfuðkúpu-
brotnaði í bílveltu á Landvegi við
Galtalæk um kvöldmatarleytið á
laugardag. Maður sem var með
henni í bílnum slasaðist einnig
en ekki eins alvarlega. Konan var
flutt með sjúkrabíl á gjörgæslu
þaðan sem hún var flutt á gjör-
gæslu.
Piltur með sex vikna gamalt
ökuskírteini var sviptur ökurétt-
indum eftir að hann var tekinn
á 154 kílómetra hraða á Norð-
fjarðarvegi í Fagradal um helg-
ina. Lögreglan á Hvolsvelli segir
talsvert hafa verið um hraðakst-
ur útlendinga að undanförnu
en alls hafa tuttugu Íslendingar
og útlendingar verið teknir á of
miklum hraða í umdæmi hennar
um helgina. Lögreglan á Akureyri
tekur undir að erlendir ferða-
menn hafi í auknum mæli verið
teknir fyrir hraðakstur og eru
Þjóðverjar þar helst áberandi.
Fimm skip svipt
veiðileyfi
Fimm íslensk skip voru í maí svipt
veiðileyfi, flest fyrir að veiða umfram
aflaheimildir. Kambaröst RE 120 var
svipt veiðileyfi í annað sinn á árinu,
vegna veiða umfram aflaheimildir.
Óskar SK 131 og Guðbjörg Stein-
unn GK 37 voru einnig svipt veiði-
réttindum fyrir að veiða of mikið, en
hafa bæði fengið veiðileyfi aftur eft-
ir að aflamarksstaða þeirra var lag-
færð. Bjössi RE 277, sem sviptur var
veiðileyfi vegna vanskila á afladag-
bókarfrumriti, hefur fengið leyfið á
nýjan leik og þá var Eydís EA 44 svipt
veiðileyfi í tvær vikur fyrir að veiða án
aflaheimilda.
Hryllileg meðferð Unginn var dreginn
eftir bíl, festur með girni. Þegar girnið
slitnaði þá óku piltarnir ítrek ð yfir hann.
Valur Grettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Árás á leikvelli
Níu líkamsárásir komu inn á borð
lögreglunnar á höfðuborgarsvæðinu
um helgina.
Ein árásanna varð á leikvelli við
Dalsmára í Kópavogi þar sem þrjár
stúlkur fæddar árið 1993 réðust á
jafnöldru sína sem hlaut minnihátt-
ar áverka. Barnaverndaryfirvöld fara
með málið og rætt hefur verið við for-
eldra stúlknanna. Þá réðst ökumaður
á annan ökumann á rauðu ljósi við
Stekkjarbakka klukkan sex á laug-
ardag. Þar sem bílar ökumannanna
voru kyrrstæðir, hver á eftir örðum, á
rauðu ljósi fór ökumaður aftari bíls-
ins að hinum rykti upp hurðinni hjá
hinum bílstjórnaum kýldi hann og
öskraði og hvarf svo á braut. Málið er
í rannsókn. Flestar hinna árásanna
urðu í miðbæ Reykjavíkur.
Frelsinu fegnar Stúlkurnar voru afar
ánægðar þegar björgunarsveit Land-
helgisgæslunnar fann þær en þá höfðu
þær verið veðurtepptar í rúma viku.
traUsti haFsteinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Tugir fórnarlamba
á Akureyri
Í fyrra leituðu yfir 60 fórn rlömb
kynferðisofbeldis til Aflsins, systur-
félags Stígamóta á Akureyri. Samtök-
in hafa st rfað frá
2002 og t ka þau á
móti kö lum jafnt
sem konum sem
hafa orðið fyrir
kynferðisofbeldi
eða heimilisof-
beldi. Allt starf s mtakanna er unnið
í sjálfboðavinnu. „Við náum að sinna
öllum sem til okkar leita en sá hópur
stækkar ö t,“ segir Viktoría Jóhann-
esdóttir, hjá Aflinu. Á föstudagskvöld
halda samtökin styrkt tónleika á
veitingastaðnu Capone á Akureyri.
krónan 1981 og 2007 Nýja krónan var
100 sinnum verðmeiri en sú gamla.
Verðbólgan hefur étið upp 96,3 aura af
hundrað.
Félagar á hjólfáki Hinn ferfætti félagi lætur fara vel um sig á meðan sá tvífætti sér um puðið. Báðir virðast þó hafa gaman af.
Bora vatnsból
fyrir hirðingja
Þróunarsamvinnustofnun Íslands
borar vatnsból fyrir hirðingja í Nam-
ibíu. Um er að ræða 33 ný vatnsból
í heimkynnum Himba í norðvestur-
hluta landsins en áætlað er að verk-
inu ljúki árið 2010. Vatnsbólin verða
þá í eign og umsjá heimamanna
í framtíðinni og viðhald á þeirra
ábyrgð.
Stefán Jón Hafstein, verkefna-
stjóri Þróunarsamvinnustofnunar
Íslands, telur að vatnsbólin skipti
sköpum fyrir hirðingjana. Byggð á
svæðinu sé strjál og því þarf að fara
langar vegalengdir eftir vatni.
„Himbar eru mikið á faralds-
fæti með nautgripahjarðir að leita
uppi vatn og beitilönd og vatnsbólin
munu auka lífsgæðin og gera hirð-
ingjunum fært að hafa lengur fasta
búsetu en nú er.“
Átján mánuðir
fyrir líkamsárás
Jón Trausti Lúthersson var í hér-
aðsdómi í gær dæmdur í 18 m naða
fan elsi. Hann var fundinn sekur um
fólskulega líkamsárás í ágúst í fyrra,
þar sem hann réðst á heimilislausan
man í iðnaðarhúsnæ i við Hverf-
isgötu.
Jón Tr usti og félagi hans, sem
hlaut 12 mánaða fangelsisdóm,
bör u mannin með bareflum, bæði
biljardkj ða og vinkiljárni í um tíu
mínútur og að lokum migu þeir yfir
hann. Jón Trausti neitaði st fastlega
sök, en vitnisburður var afgerandi.