Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 1
aðeins tvær
þjóðir skulda
meira en við
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
fimmtudagur 26. júlí 2007 dagblaðið vísir 112. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
íslensk heimili taka peninga að láni og skuldirnar aukast:
>>Hvenær gerum við
góð kaup og hvenær
kaupum við eitthvað
sem við höfum
ekkert með að
gera.?Nokkrir
Íslendingar láta
hugann reika og
segja okkur frá
hvenær þeir gerðu
góð kaup og eins
segja þeir frá verstu
innkaupunum.
Skrýtinn
íslenskur
matur
>>Vinsæll, banda-
rískur sjónvarps-
þáttur fjallar um
undarlegan,
íslenskan mat.
>>Lindsay
Lohan á í vanda.
Hún hefur verið
tekin drukkin á bíl
og með eiturlyf.
Fari allt á versta veg
á hún yfir höfði sér
þungan dóm.
fréttir
neyslan er fjármögnuð með
lánum og skuldir einstaklinga
aukast hratt og eru nú hærri en
nokkru sinni. Hver Íslendingur
skuldar að meðaltali 2,5 milljónir
króna. sjá bls. 6 til 7.
bestu verstu&kaupin
sviðsljós
Á kafi í
eiturlyfjum
Kekic hetja Víkinga
DV Sport
fimmtudagur 26. júlí 2007 15
Sport
Fimmtudagur 26. júlí 2007
sport@dv.is
MSI í mál við West Ham Jafntefli hjá Breiðabliki og KR
Það var sannkallaður sex stiga leikur í gær Þegar víkingur vann fram 2-1. bls. 17
Íslandsmeistarar FH eru komn-ir áfram í aðra umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðið gerði markalaust jafntefli gegn Færeyja-meisturum HB á útivelli í gær. Þetta var seinni viðureign þessara liða en sú fyrri fór fram í Kaplakrikanum í síðustu viku. Þar vann FH 4-1 sigur og kemst því örugglega áfram. Það var öllu rólegra yfir leiknum í gær en þeim sem fram fór hér á landi.
Danski miðjumaðurinn Denn-is Siim komst næst því að skora fyrir FH í fyrri hálfleiknum en markvörður HB varði vel. Heimamenn voru lík-legri undir lok hálfleiksins en náðu ekki að skora og staðan var marka-
laus þegar Petteri Kari, dómari frá Finnlandi, flautaði til leikhlés.
Leikurinn var hraðari í fyrri hálf-leik og Davíð Þór Viðarsson gerðist líklegur til að skora snemma í hon-um þegar hann átti gott skot sem ekki hitti á rammann. FH byrjaði betur en smátt og smátt náði HB betri tök-um á miðjunni og leikurinn jafnað-ist. Það gerðist fátt á lokasprettinum enda ljóst að Hafnarfjarðarliðið var komið áfram.
FH kemst áfram samanlagt 4-1 en Freyr Bjarnason, Sigurvin Ólafsson og Matthías Vilhjálmsson skoruðu mörk FH í fyrri leiknum en sá síð-astnefndi skoraði tvö mörk. FH mun
mæta liði Bate frá Hvíta-Rússlandi í næstu umferð forkeppninnar en Bate sigraði Apoel frá Kýpur í fyrra-
dag. Fyrri viðureignin verður 31. júlí eða 1. ágúst en seinni leikurinn fer fram viku síðar. elvargeir@dv.is
HB FH
MARKALAUST Í FÆREYJUM EN FH ÁFRAM
mikilvægur
sigur víkings
FH áfram tryggvi
guðmundsson er hér
á fleygiferð í fyrri
leiknum gegn HB.
>>Sinisa Kekic skoraði bæði mörk
Víkings sem vann Fram 2-1 í sannkölluð-
um sex stiga leik í Landsbankadeildinni.
Á sama tíma mættust Breiðablik og KR
en með sigri hefðu Vesturbæingar
komist úr botnsæti deildarinnar. Hins
vegar varð jafntefli niðurstaðan og er að-
eins eitt stig í Framara sem eru sæti ofar.
Allt um leiki gærdagsins í DV-Sport.